Topp 10 - Þekkt fólk erlendis af íslenskum uppruna

Íslend­ingar eru víða og hafa náð langt á ýmsum sviðum. Það á líka við um fólk af íslenskum ættum. Kristinn Haukur Guðnason sagn­fræð­ingur skoð­aði sög­una.

Á Íslandi búa í dag um 333.000 manns. Þar af eru um 30.000 þús­und inn­flytj­endur frá öðrum löndum og svipað magn af íslenskum rík­is­borg­urum fæddum hér á landi búa erlendis. Íslend­ingar eru þó mun fleiri. Á árunum 1870 til 1914 flutti um 20% þjóð­ar­innar til Kanada og Banda­ríkj­anna. Í dag eru Vestur-Íslend­ingar a.m.k. 135.000 tals­ins. Auk þess fluttu margir Íslend­ingar til Dan­merkur, Bret­lands, Brasilíu, Ástralíu og fleiri landa. Má því ætla að fólk með íslenskan upp­runa sé um hálf milljón. Hér er listi yfir þekkt erlent fólk sem á rætur að rekja til eld­gamla ísa­folds.

10. Guy Maddin

Kvik­mynda­gerð­ar­mað­ur­inn Guy Maddin er einn af athygl­is­verð­ustu lista­mönnum sam­tím­ans. Hann er sann­kall­aður sonur kanadísku borg­ar­innar Winnipeg og bera margar af myndum hans keim af því. Hann fædd­ist þar árið 1956, sonur hjón­anna Charles og Herdísar. Í upp­hafi virt­ist fátt benda til þess að hann yrði fram­úr­stefnu­legur leik­stjóri því að hann nam hag­fræði við Winnipeg háskóla á átt­unda ára­tugnum og starf­aði svo sem banka­stjóri. Um miðjan níunda ára­tug­inn hóf hann að gera stutt­myndir og skömmu seinna kvik­myndir í fullri lengd. Kvik­myndir hans eru mjög óhefð­bundnar. Þær eru draum­kenndar og minna mikið á kvik­myndir frá þriðja og fjórða ára­tug sein­ustu aldar. Hann er þó mjög virtur bæði innan kvik­mynda­geirans og heima­borgar sinnar. Hans þekkt­ustu verk eru Archangel (1990) og Twilight of the Ice Nymphs (1997) en hann hefur aldrei sagt skilið stutt­mynda­gerð. Auk þess hefur hann sett upp fjölda lista­sýn­inga þar sem áhersla er lögð á hreyfi­myndir.

9. Kristjana Gunnars

Krist­jana Gunnars er fædd í Reykja­vík árið 1948. Hún er dóttir hjón­anna Gunnars Böðv­ars­sonar jarð­eðl­is­fræð­ings og lista­kon­unnar Tove Christensen Böðv­ars­son. Gunnar vann víða um heim og flutti fjöl­skyldan til Oregon fylkis á vest­ur­strönd Banda­ríkj­anna árið 1964. Krist­jana gift­ist og flutti til Kanada þremur árum síðar. Á næstu árum sótti hún sér háskóla­menntun og á árunum 1974-1975 kenndi hún hér á Íslandi við alþýðu­skól­ann á Eiðum. Krist­jana hafði dundað sér við skriftir allt frá ung­lings­árum og árið 1980 kom út hennar fyrsta bók, ljóða­bókin One-Eyed Moon Maps. Síðan þá hefur hún gefið út fjölda ljóða­bóka, skáld­sagna og smá­sagna. Tengsl hennar við Ísland hafa ávallt verið sterk og hún hefur notað Íslend­inga­sög­urnar, goða­fræð­ina og dag­bækur vest­ur­fara við skriftir sínar. Þemu á borð við útlegð, söknuð og ævin­týra­þrá eru áber­andi í verkum hennar.

8. Gunnar Hansen

Leik­ar­ans Gunnars Hansen verður ávallt minnst fyrir að leika fjöldamorð­ingj­ann þroska­hefta Leðurfés úr hryll­ings­mynd­inni Texas Chain Saw Massacre frá árinu 1974. Hann fædd­ist í Reykja­vik árið 1947 en flutti til Maine í Banda­ríkj­unum með fjöl­skyldu sinni fimm ára gam­all. Hann lærði ensku og stærð­fræði við Austin háskóla í Texas og þar kynnt­ist hann leik­list­inni fyrst. Skömmu eftir útskrif­ina fékk hann hlut­verkið fræga en þar virt­ist fer­ill­inn ætla að enda því að hann hafði mun meiri áhuga á skrifum og hafn­aði mörgum kvik­mynda­hlut­verkum. Hann skrif­aði fyrir ýmis tíma­rit á átt­unda og níunda ára­tugnum en á þeim tíunda hóf hann á ný að leika í kvik­myndum. Hann fékk hlut­verk í ýmsum hryll­ings­myndum sem fengu þó litla ef nokkra dreif­ingu. Tengsl hans við Ísland voru end­ur­nýjuð í einum af hans sein­ustu hlut­verkum, í kvik­mynd Júlíusar Kemp Reykja­vik Whale Watching Massacre frá árinu 2009. Gunnar lést þann 7. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn.

7. Bjarni Tryggvason

Bjarni Valdimar Tryggva­son fædd­ist í Reykja­vík árið 1945 en flutti mjög ungur með for­eldrum sínum til Kanada. Fyrst til Nova Scotia á aust­ur­strönd­inni en svo Vancouver á vest­ur­strönd­inni. Hann lærði flug og eðl­is­fræði á átt­unda ára­tugnum og vann við ýmis verk­efni. Árið 1983 voru sex Kanad­menn valdir inn í geim­ferða­á­ætlun NASA og var Bjarni einn af þeim. Kanada­menn stofn­uðu sína eigin geim­ferða­stofnun, CSA árið 1989 og var Bjarni tengdur henni allt til árs­ins 2008. Bjarni var vara­maður þegar flaugin Columbia var send á loft árið 1992. Þann 7. ágúst 1997 varð hann svo fyrsti Íslend­ing­ur­inn í geimnum þegar hann fór með flaug­inni Discovery í sam­vinnu­verk­efni NASA og CSA. Takmark Discovery var að gera rann­sóknir á loft­hjúpi jarðar og ferða­lagið stóð í tæpa 12 sól­ar­hringa. Þetta var eina geim­ferða­lag Bjarna en hann starf­aði áfram hjá CSA við þjálfun geim­fara og prófun bún­aðar. Bjarni hefur heim­sótt Ísland, verið sæmdur fálka­orð­unni og heið­urs­dokt­or­s­tign Háskóla Íslands.

6. Peter Steele

Petrus Thomas Ratajczyk, betur þekktur sem Peter Steele, var fæddur í New York borg árið 1962. Hann söng og spil­aði á bassa með nokkrum lítt þekktum þung­arokks­hljóm­sveitum á níunda ára­tugnum þangað til hann stofn­aði loks Type O Negative árið 1989. Hljóm­sveitin spil­aði rólegt og drunga­legt þung­arokk með got­neskum stíl og miklum popp­á­hrifum. Þeir urðu heims­frægir árið 1993 þegar þeir gáfu út plöt­una Bloody Kisses og um miðjan tíunda ára­tug­inn voru þeir eitt af stærstu rokk­böndum heims. Það var þá sem Steele sat fyrir á for­síðu tíma­rits­ins Playgirl. Steele var rúm­lega tveir metrar á hæð, ákaf­lega vöðva­mik­ill og með svart slegið hár. Hann gat spilað á kontra­bassa hang­andi á sér með ól líkt og venju­legan raf­bassa. Steele lést vegna inn­vortis blæð­inga árið 2010 en hann hafði lengi átt við áfengis og eit­ur­lyfja­vanda­mál að stríða. Móðir Steele var af íslenskum ættum og heim­sótti hann því landið nokkrum sinnum.

5. Tom Johnson

Johnson fædd­ist í Nýja Íslandi, í smá­bænum Baldri í Manitoba-fylki, árið 1928. Eins og margir ungir kanadískir drengir hóf hann snemma að spila ísknatt­leik. Hann var efni­legur varn­ar­maður og fékk tæki­færi hjá stór­lið­inu Montreal Canadiens í NHL deild­inni árið 1949. Honum gekk brösu­lega í upp­hafi en vann sér þó sess við hlið hins mikla Doug Harvey og mynd­uðu þeir eitt öfl­ug­asta varn­arpar sög­unnar. Johnson var ekki sér­stak­lega snöggur leik­maður en þótti ein­stak­lega útsjón­ar­samur og snjall. Canadiens urðu fljótt yfir­burða­lið í deild­inni og Johnson vann sam­an­lagt 6 Stanley bik­ar­ara með lið­inu á 14 árum. Tvö sein­ustu árin í atvinnu­mennsku spil­aði Johnson með Boston Bruins en hann átti eftir að verða þar allt til árs­ins 1999, sem leik­maður, þjálf­ari og stjórn­ar­maður. Undir hans stjórn vann liðið Stanley bik­ar­inn árið 1972. Tveimur árum áður var Johnson tek­inn inn í frægð­ar­höll ísknatt­leiks­ins.

4. Linda Bennett

Linda Kristín Bennett, stofn­andi fyr­ir­tæk­is­ins L.K. Bennett hefur frá barn­æsku verið tengd fata­hönnun, tísku og list. Faðir hennar rak tísku­vöru­versl­anir í London og móðir hennar, hin íslenska Hafdís Her­berts­dóttir Bennett var mynd­höggv­ari. Linda, sem fædd er í London árið 1964, opn­aði þar sína fyrstu verslun árið 1990 og óx fyr­ir­tækið hratt upp frá því. Bennett hann­aði bæði föt, hand­töskur og fleira en áherslan hefur alltaf verið á skófatnað. Skór hennar hafa þótt ein­stak­lega glæsi­legir en þó á við­ráð­an­legu verði. L.K. Bennett er í dag eitt af helstu tísku­merkjum Bret­lands og fjöldi frægra kvenna þar í landi klæð­ast vörum þess. Bennett hefur fengið fjölda verð­launa, m.a. sem við­skipta­kona árs­ins og frum­kvöð­ull árs­ins í Bret­landi. Árið 2006 var hún öðluð af Elísa­betu II Eng­lands­drottn­ingu.

3. Jon Dahl Tomasson

Tomasson hengdi skóna á hill­una árið 2011 eftir að hafa verið einn af eitr­uð­ustu fram­herjum evr­ópskrar knatt­spyrnu um nokk­urt skeið. Hann er fæddur í Kaup­manna­höfn árið 1976 og hóf sinn feril hjá danska lið­inu K øge. 18 ára hélt hann til Hollands og spil­aði aldrei framar í Danmörku. Hann spil­aði m.a. með Newcastle United, Feyenoord og Stutt­gart. En frægð­ar­sól hans skein skær­ast með ítalska stór­lið­inu AC Milan. Þar vann hann fjölda titla og þar á meðal meist­ara­deild­ina sjálfa árið 2003. Hann skor­aði alls 234 mörk í 574 leikjum fyrir félög sín en hann var ennþá beitt­ari með danska lands­lið­inu. Í 112 lands­leikjum á árunum 1997 til 2010 skor­aði hann 52 mörk og þar af 3 gegn Íslandi. Hann var einn af marka­hæstu mönnum heims­meist­ara­móts­ins í Japan og Suður Kóreu 2002 og evr­ópu­meist­ara­móts­ins í Portúgal 2004. Tomasson, sem er ætt­aður frá Íslandi í gegnum móður sína, vinnur nú sem aðstoð­ar­knatt­spyrnu­stjóri hol­lenska félags­ins Vitesse Arnhem og danska lands­liðs­ins.

2. K.D. Lang

Kathryn Dawn Lang var um tíma ein þekktasta country-söng­kona heims. Hún fædd­ist árið 1961 og ólst upp í Albertu-fylki í Kanada. Hún varð snemma heilluð af söng­kon­unni Patsy Cline og spil­aði framan af mest­megnis hreina country tón­list á níunda ára­tugnum. Hún þótti hafa ein­staka rödd og sló í gegn árið 1989 með plöt­unni Absolute Torch and Twang. [http://www.kdlang.com/bio]Þá fór hún inn á önnur svið tón­listar, svo sem popps og jazz. Árið 2002 tók hún upp plöt­una A Wonderful World með söngv­ar­anum Tony Bennett og hafa þau marg­sinnis sungið saman síðan. Lang hefur unnið alls fjögur Gram­my­verð­laun og hún var fengin til þess að syngja á opn­un­ar­há­tíð tveggja ólymp­íu­leika (Calgary 1988 og Vancouver 2010). Hún er mikil hug­sjóna­mann­eskja og hefur barist fyrir ýmsum mál­efnum, t.a.m. rétt­indum sam­kyn­hneigðra (hún er sjálf sam­kyn­hneigð) og dýra­vernd. Lang á mjög bland­aðan upp­runa en þar á meðal íslenskan.

1. Vilhjálmur Stefánsson

Vil­hjálmur Stef­áns­son var einn af merki­leg­ustu en jafn­framt umdeild­ustu land­könn­uðum 20. ald­ar­innar. For­eldrar hans fluttu frá Íslandi til Gimli í Kanada árið 1877 og tveimur árum seinna fædd­ist Vil­hjálmur. Þau flúðu þó til Norður Dakóta í Banda­ríkj­unum vegna flóða þegar hann var ein­ungis eins árs gam­all og þar ólst hann upp. Hann lærði mann­fræði við Harvard háskóla og kom svo til Íslands til að rann­saka mat­ar­venjur. Eftir það hófust ferðir hans til norð­ur­slóða þar sem hann m.a. rann­sak­aði lífs­hætti Inúíta. Árið 1913 fengu kanadísk yfir­völd hann til þess að stýra leið­angri um nyrstu eyjur lands­ins. Eitt af þremur skipum leið­ang­urs­ins, Karluk, fórst og fjöl­margir skip­verjar lét­ust. Vil­hjálmur var harð­lega gagn­rýndur fyrir að hafa yfir­gefið skip­verj­ana. Árang­ur­inn af norð­ur­slóða­ferðum Vil­hjálms eru þó ótví­ræðar. Hann fann og kort­lagði eyjar sem aldrei höfðu sést áður (Borden, Meighen, Lougheed o.fl.) og beitti sér fyrir könnun norð­ur­slóða alla tíð síðan. Vil­hjálmur lést árið 1962.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár