Fjölbragðaglímumaðurinn sem skoraði krabbameinið á hólm

Bret "The Hitman" Hart er eng­inn venju­legur fjöl­bragða­glímur­maður, þó hann líti út fyrir það. Kristinn Haukur Guðnason sagn­fræð­ingur kynnti sér bar­áttu hans og hug­sjónir.

Fyrrum fjöl­bragða­glímu­kapp­inn Bret “The Hitman” Hart greind­ist nýlega með krabba­mein í blöðru­háls­kirtli. Í stað þess að fela sjúk­dóm­inn fyrir umheim­inum ákvað hann að lýsa reynslu sinni opin­ber­lega og beita sér fyrir vit­und­ar­vakn­ingu um þennan mikla vágest sem herjar aðal­lega á karl­menn á efri árum.

Flugumaður í bleiku og svörtu

Bret Hart er fæddur árið 1957 í borg­inni Calgary í Albertu­fylki í Kanada. Hann er eitt af 12 börnum glímu­fröm­uðs­ins Stu Hart og ólst upp á heim­ili þar sem lítið annað var gert en að glíma og fljúg­ast á. Bret þótti strax efni­legur og keppti í áhuga­mannaglímu á ung­lings­árum. En leiðin lá snemma í atvinnu­mennsk­una og árið 1978 keppti hann í fyrsta skipti í glímu­deild föður síns. Hann keppti í ýmsum smærri deildum til árs­ins 1984 þegar hann fékk samn­ing hjá stærsta fjöl­bragða­glímu­sam­bandi heims WWF. Það var þá sem Bret tók upp við­ur­nefnið Hitman (flugu­mað­ur­inn) og skap­aði ímynd sína. Hann varð þekktur fyrir að klæð­ast bleikum og svörtum spandex-galla, stórum spegla­gler­augum og svörtum leð­ur­jakka. En hann átti yfir­leitt í erf­ið­leikum með við­töl og að rífa kjaft utan vallar eins og lenskan er í fjöl­bragða­glímu. Bret þurfti því að skapa sig í hringnum og það gerði hann með stæl. Fimi hans og frum­leiki þóttu ein­stök og frægð­ar­sól hans reis hratt. Til að byrja með glímdi hann aðal­lega í teymi með mági sínum Jim Neidhart og köll­uðu þeir sig The Hart Foundation. Seinna hóf hann að glíma að mestu leyti einn og vin­sældir hans juk­ust enn meir. Árið 1991 vann hann sinn fyrsta þunga­vigt­ar­titil og um miðjan tíunda ára­tug­inn var hann án vafa stærsta fjöl­bragða­glímu­stjarna heims.

Hann var fag­maður fram í fing­ur­góma, bar virð­ingu fyrir and­stæð­ingum sínum og stærði sig af því að hafa aldrei slasað nokkurn mann í hringnum. Fer­ill­inn tók þó sinn toll af heils­unni. Árið 1999 fékk hann slæmt höf­uð­högg og hlaut heila­hrist­ing. Þremur árum seinna fékk hann heila­blóð­fall, lam­að­ist og var bund­inn við hjóla­stól um tíma. Auk þess lést bróðir hans, glímu­kapp­inn Owen Hart, í hringnum um þetta leyti. Bret skyldi þó ekki alfarið við glímuna og keppti endrum og eins allt til árs­ins 2013. Bret Hart var ekki bara einn vin­sæl­asti fjöl­bragða­glímu­maður sög­unnar, hann var einnig einn sá allra virt­asti. Samtíma glímu­menn dáð­ust að flóknum brögðum hans og fjöl­margir yngri glímu­menn líta á hann sem sína helstu fyr­ir­mynd.Þess vegna var oft sagt að hann væri sá besti sem er, sá besti sem var og sá besti sem verður nokkurn tím­ann.

Tilkynningin sem kom öllu af stað

Bret Hart greind­ist með krabba­mein í blöðru­háls­kirtli um mitt árið 2015. Hann til­kynnti fjöl­skyld­unni og aðdá­endum þetta í ein­lægri Facebook-færslu þann 1. febr­úar síð­ast­lið­inn þar sem hann sagð­ist halda af stað í sína erf­ið­ustu orr­ustu til þessa en myndi þó ekk­ert gefa eftir.. Hann segir m.a.:“Ég strengi þess heit til allra þeirra sem hafa nokkurn tím­ann trúað á mig, bæði dáinna og lif­andi, að ég mun berj­ast við meinið með einum skildi og einu sverði stað­festu minnar og eld­móði mínum til að lifa, umvaf­inn allri þeirri ást sem hefur haldið mér gang­andi til þessa. Ástin er vopn mitt sem ég hef allt í krignum mig allar stundir og er sann­ar­lega þakk­látur fyrir. Börnin mín, barna­börn og ást­kær eig­in­kona mín Steph hafa verið og munu vera hér mér til stuðn­ings. Ég neita að tapa, ég mun aldrei gef­ast upp og ég mun sigra þessa orr­ustu eða a.m.k. ekki deyja átaka­laust.”

Í færsl­unni seg­ist hann einnig ætla beita sér fyrir bar­átt­unni gegn blöðru­hálskrabba­meini almennt og verða fyr­ir­mynd fyrir aðra við að kljást við þetta mein. Þessi færsla fékk strax mikla og jákvæða athygli. Krabba­mein í blöðru­háls­kirtli herjar að lang­mestu leyti á eldri karl­menn og sjúk­dóm­ur­inn hefur verið mikið feimn­is­mál í gegnum tíð­ina. Það er því ekki algegnt að karlar opni sig um sjúk­dóm­inn á þennan hátt. Sér­stak­lega ekki menn með bak­grunn eins og Bret Hart, þ.e. hinn karllæga heim fjöl­bragða­glímunnar þar sem allir veik­leikar eru álitnir aum­ingja­skapur.

Hafði strax áhrif

Viðbrögð glímu­sam­fé­lags­ins létu ekki á sér standa. Bæði fyrrum sam­herjar og and­stæð­ingar Harts fylkt­ust að baki honum og lýstu opin­ber­lega yfir stuðn­ingi við bar­átt­una. Má þar nefna Hulk Hogan, Ted “Million Dollar Man” DiBiase, Jerry Lawler, Triple H og Chris Jericho. Auk þess hafa glímu­sam­böndin staðið þétt við bakið á honum og komið skila­boð­unum vel á fram­færi, t.d. á stórum skjá fyrir utan Madison Square Garden í New York þar sem Hart háði margar af sínum eft­ir­minni­leg­ustu rimmum. Hart og stuðn­ings­fólk hans hafa einnig farið í átak til að koma skila­boð­unum áleiðis undir slag­orð­unum “Fight Bret Fight”. Plaggöt og vef­borðar sjást víða og einnig eru stutt­erma­bolir með slag­orð­unum komnir í sölu, allt vita­skuld í hans frægu bleiku og svörtu litum. Ágóðinn rennur svo til rann­sókna og vit­und­ar­efl­ingar á krabba­meini í blöðru­háls­kirtli.

Krabba­meins­lækn­ir­inn David Samadi við Lenox Hill sjúkra­húsið í New York von­ast til að hin opna og hrein­skilna bar­átta Harts brjóti niður múra og hjálpi öðrum að leita sér hjálpar. Krabba­mein í blöðru­háls­kirtli er næstal­geng­asta dán­ar­or­sök karla í Banda­ríkj­unum og tekur um 27.500 manns­líf á ári. Auk þess geta óþæg­indi og kvalir sjúk­dóms­ins verið mjög miklar, má þar nefna þvag­færa­vanda­mál, nýrna­bil­anir, þrýst­ing á mæn­una og jafn­vel bein­brot. Í Banda­ríkj­unum er krabba­mein í blöðru­háls­kirtli næstal­geng­asta krabba­mein karl­manna, á eftir húð­krabba­meini.

Barátta Harts virð­ist nú þegar vera farin að hafa bein áhrif. Á Blöðru­hálskrabba­meins­stöð­inni í heima­borg hans, Calgary, hafa sím­arnir hringt lát­laust síðan hann opin­ber­aði sjúk­dóm­inn. Fjöldi karl­manna, bæði ungra sem aldna, hafa spurst fyrir um og boðað sig í skoð­anir. Pam Heard, yfir­maður á stofn­un­inni, segir að vanda­málið hafi hingað til verið að fá menn til að mæta í skoð­anir og hugsa um sjálfa sig. Í Kanada er blöðru­hálskrabba­mein jafn­vel enn meira vanda­mál en í Banda­ríkj­unum. Það er algeng­asta teg­und krabba­meins í land­inu og að með­al­tali fær einn af hverjum sjö karl­mönnum þar sjúk­dóm­inn ein­hvern tím­ann á lífs­leið­inni. Lífslík­urnar eru aftur á móti góðar ef meinið finnst snemma.

Baráttan heldur áfram

Hart fór í skurð­að­gerð um miðjan febr­úar síð­ast­lið­inn sem gekk að eigin sögn vel. Á blaða­manna­fundi við­ur­kenndi hann að hafa haldið sjúk­dómnum leyndum í um hálft ár. Hann hafði farið í reglu­legar blóðprufur frá árinu 2013 og þar kom í ljós að mótefna­vak­inn PSA (prostate specific antigen) fór ört vax­andi í blóði hans. [http://calgaryherald.com/entertainment/celebrity/i-fought-back-bret-hart-reveals-details-of-prostate-cancer-surgery-and-urges-men-to-get-tested]Um mitt ár 2015 var ljóst að Hart væri með krabba­mein. Hann sagð­ist hafa verið virki­lega hræddur, sér­stak­lega eftir að hann tal­aði við menn sem höfðu fengið sjúk­dóm­inn. Einnig sagð­ist hann hafa íhugað að leita inn á svið óhefð­bund­inna lækn­inga á borð við ósón-með­ferð eða neyslu mat­ar­sóda. En eftir að hafa kynnt sér sögu Steve Jobs, sem not­að­ist við óhefð­bundnar lækn­ingar og lést loks af völdum krabba­meins í brisi, ákvað Hart að not­ast við þau reyndu lækn­is­fræði­legu úrræði sem í boði eru í dag. Kirtill­inn og meinið voru fjar­lægð í aðgerð­inni en Hart mun þó þurfa að fara í reglu­legar skoð­anir til að full­vissa sig um að það taki sig ekki aftur upp að nýju. [http://www.torontosun.com/2016/03/07/it-was-really-scary-canadian-wrestler-reflects-on-cancer-and-future-recovery] Bar­átt­unni er þó alls ekki lokið og Bret Hart mun halda áfram að vekja athygli og berj­ast gegn þessum vágesti sem því miður er ennþá mikið feimn­is­mál.

Mottumars

Við Íslend­ingar erum farnir að þekkja bar­átt­una gegn blöðru­hálskrabba­meini vel vegna átaks­ins Mottu­mars sem haldið hefur verið á hverju ári síðan 2010 af Krabba­meins­fé­lag­inu. Átakið á fyr­ir­mynd sína í fjár­öfl­un­ar­verk­efn­inu Movember sem hófst í Ástralíu árðið 1999 og hefur farið sig­ur­för um heim­inn síðan. Eins og frægt er safna karl­menn yfir­vara­skeggi, birta myndir af þeim á heima­síðu félags­ins og safna áheitum. Ágóðanum er svo m.a. varið í rann­sóknir, stuðn­ing og ráð­gjöf fyrir þolendur og vit­un­ar­vakn­ingu um meinið og mik­il­vægi þess að karl­menn láti rann­saka sig. Á und­an­förnum árum hafa safn­ast rúm­lega 250 millj­ónir króna, eða að með­al­tali um 40 millj­ónir króna í hverju átaki. [http://www.mottumars.is/]Í átak­inu er ekki verið að velta sér upp úr eymd og vol­æði sem fylgir því að vera hald­inn krabba­meini. Þess í stað er ein­blínt á eitt­hvað sem er töff og fyndið og stílað inn á menn­ingu hip­ster­anna. Líkt og bar­átta Bret Hart þá er Mottu­mars tek­inn mjög karl­mann­legum tökum. Það er ein­fald­lega orðið sjálf­sagt og jafn­vel kúl að vera með­vit­aður um þennan sjúk­dóm og láta athuga sig reglu­lega. Átakið er ein­stak­lega vel heppnað og gríð­ar­lega mik­il­vægt þar sem ótal manns­líf eru í húfi. Hér er karl­mennska notuð á jákvæðan hátt til þess að tækla ein­stak­lega karllægt vanda­mál, þ.e. feimni og skömm.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár