Píratar taka á samskiptaörðugleikum með sálfræðingi

Þing­flokkur Pírata hefur haf­ist handa við að vinna úr sam­skipta­örð­ug­leikum sínum með hjálp vinnu­stað­arsál­fræð­ingar. Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu frá honum. Þar segir að álagið á þá fáu kjörnu full­trúa sem Píratar hafi á þingi og í sveita­stjórn hafi marg­fald­ast sam­hliða því að flokk­ur­inn hafi vaxið og dafnað. Vegna þessa hafi þing­menn Pírata átt í sam­skiptar­erf­ið­leikum, eins og oft vilji verða þegar fólk er undir álagi.

„

En við erum þrátt fyrir allt lausn­a­miðað fólk og höfum því haf­ist handa við að vinna úr þessum örð­ug­leikum undir hand­leiðslu vinnu­staða­sál­fræð­ings. Það hefur verið mann­bæt­andi ferli sem við þing­menn­irnir njótum nú þegar góðs af með lausn­a­mið­ari aðferða­fræði um hvernig má vinna betur saman með umburð­ar­lyndi og sátt að leið­ar­ljósi. Það er sam­hugur meðal þing­flokks­ins að leysa innri ágrein­ing á sem far­sælastan hátt og þess vegna höfum við ákveðið í sam­ein­ingu að fara þessa leið. Hún hefur þegar borið mik­inn árangur á skömmum tíma. Mál­staður okkar og stefnu­mál eru stærri en hvert okkar. Við erum miklu sterk­ari sam­einuð heldur en sundruð og við í þing­flokki Pírata teljum okkur koma sterk­ari og sam­heldn­ari út úr þessu heldur en nokkru sinni fyrr."

Undir til­kynn­ing­una skrifa Helgi Hrafn Gunn­ars­son, Birgitta Jóns­dóttir og Ásta Guðrún Helga­dóttir.

Sauð uppúr eftir viðtal um helgina

Sam­skipta­örð­ug­leikar milli Pírata komu skýrt fram um helg­ina. Helgi Hrafn var þá í við­tali í Kjarn­anum þar sem hann sagði að það væri mis­skiln­ingur í gangi um að Píratar vilji styttra þing á næsta kjör­tíma­bili. Það sé Birgitta sem sé á þeirri skoðun, en til­laga hennar um málið hafi verið felld á aðal­fundi og hann sé ekki sam­mála henni í mál­inu.

Birgitta Jóns­dóttir sagði að það væri „stór­kost­lega mikil rang­færsla“ hjá sam­flokks­manni hennar, þing­mann­inum Helga Hrafni Gunn­ars­syni, að til­laga hennar um styttra þing á næsta kjör­tíma­bili hafi verið felld á aðal­fundi. „Henni var breytt smá­vægi­lega þar sem ákveðið var að hafa það opn­ara en ella að hafa þetta lengur en 9 mán­uði, þetta er þó sam­kvæmt til­lög­unni ekki ályktun um lengra tíma­bil en eitt þing.“ Hún sagð­ist svo hafa áhyggjur af mál­inu og að hún hafi útrétt sátta­hönd og beðið Helga Hrafn um að fara ekki í við­töl um ágrein­ings­mál. Hann hafi því miður ekki virt það.

Helgi Hrafn bað Birgittu í kjöl­farið afsök­unar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár