Birgitta: Bað Helga Hrafn að fara ekki í viðtöl um ágreiningsmál

Birgitta Jóns­dóttir, þing­maður Pírata, segir að það sé „stór­kost­lega mikil rang­færsla“ hjá sam­flokks­manni hennar, þing­mann­inum Helga Hrafni Gunn­ars­syni, að til­laga hennar um styttra þing á næsta kjör­tíma­bili hafi verið felld á aðal­fundi. „Henni var breytt smá­vægi­lega þar sem ákveðið var að hafa það opn­ara en ella að hafa þetta lengur en 9 mán­uði, þetta er þó sam­kvæmt til­lög­unni ekki ályktun um lengra tíma­bil en eitt þing.“

Helgi Hrafn er í við­tali í Kjarn­anum í dag þar sem hann sagði að það væri mis­skiln­ingur í gangi um að Píratar vilji styttra þing á næsta kjör­tíma­bili. Það sé Birgitta sem sé á þeirri skoðun, en til­laga hennar um málið hafi verið felld á aðal­fundi og hann sé ekki sam­mála henni í mál­inu.

„Helgi Hrafn virð­ist alger­lega gleyma því að þetta er bara ekki til­lagan mín heldur til­laga sem hlaut lang­mestan stuðn­ing frá félögum okkar í kosn­inga­kerf­inu,“ segir Birgitta á Facebook-síðu sinni. Hún seg­ist svo hafa áhyggjur af mál­inu og að hún hafi útrétt sátta­hönd og beðið Helga Hrafn um að fara ekki í við­töl um ágrein­ings­mál. Hann hafi því miður ekki virt það.

Sjá má færslu Birgittu hér að neðan, og við­talið við Helga Hrafn má lesa hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár