Litið tilbaka

Viðtal við kvik­mynda­leik­stjór­ann Sergei Loznitsa um nýj­ustu mynd hans „The Event“ sem unnið hefur til verð­launa á kvik­mynda­há­tíð­inni í Leipzig. Myndin fjallar, líkt flestar myndir hans, um Rússland og sögu þess.

Árið 1991 reyndi hópur sov­éskra harð­línu­manna að fremja valda­rán í Moskvu á meðan Gorbachev var í fríi við Svarta­haf á Krím. Í upp­lausn­ar­á­standi sem ríkti 19. - 21. ágúst tókst Boris Jeltsín með aðstoð almenn­ings að brjóta valdaránið á bak aftur. Þá hélt hann á fræga ræðu á skrið­dreka fyrir utan þing­húsið í Moskvu. „Ef myndin mín væri um atburð­ina í Moskvu þá hefði ég þurft að fylgja þekktum per­sónum og atburð­ar­rás. Þess í stað sýni ég fólkið og stemn­ing­una sam­tímis í Len­ingrad. Fjar­lægðin í tíma og rúmi hjálpar. Fólkið í mynd­inni veit ekki örlög sín og lands­ins en við gerum það. Fyrir okkur sem lifðum þarna snertir þessi vit­neskja okkur við áhorf mynd­ar­innar djúpt. Það má segja að við höfum glutrað niður 25 árum. Við vorum svo grunn­hyggin og það er leitt."

Þetta segir kvik­mynda­leik­stjór­inn Sergei Loznitsa um nýj­ustu mynd sína „The Event“. Loznitsa fædd­ist 1964 í Hvíta­rúss­landi en ólst upp í Kiev. Nam stærð­fræði og japönsku en lauk síðan námi í leik­stjórn við kvik­mynda­skól­ann VGIK í Moskvu. Efni­viður mynda hans er oft­ast saga Rúss­lands, eins og í „The Event“ eða „Sobytje“ sem hann gerði úr myndefni frá 1991, árinu sem Sov­ét­ríkin liðu undir lok.

Loznitsa á að baki 17 verð­laun­aðar heim­ilda­myndir auk tveggja leik­inna kvik­mynda sem voru frum­sýndar á kvik­mynda­há­tíð­inni í Cannes.

Nýjasta myndin „The Event“ hefur meðal ann­ars unnið til verð­launa á kvik­mynda­há­tíð­inni í Leipzig. Á blaða­manna­fundi fyrir frum­sýn­ingu í Feneyjum í fyrra , minnti Loznitsa á að úkra­ínskur kollegi hans Oleg Sentsov var nýlega dæmdur í Moskvu í 20 ára fang­elsi fyrir til­búnar ásak­anir FSB. Samtökin Amnesty International hafa for­dæmt rétt­ar­höldin og borið dóm­inn saman við þá sem tíðk­uð­ust á tímum Stalíns.

Nú segja margir gamla tím­ann kom­inn aftur til Rúss­lands?

„Þetta lík­ist gamla tím­anum en í stjórn­málum hefur í raun ekk­ert gerst þar öldum saman. En nú er eitt­hvað nýtt því nú höfum við þjóð af fólki án sögu og án sið­ferð­is­kenndar. Á Sov­ét­tím­anum hafði fólk sið­ferð­is­kennd. Þá var þetta vissu­lega einnig villtur og dýrs­legur heimur en opin­ber­lega ríkti sið­ferð­is­kennd. Þú gast gerst alls­konar sið­lausa hluti og það var horft fram­hjá því en því var ekki hampað. En það sem ég heyri í dag frá opin­berum aðilum og full­trúum valds­ins, klept­okra­tí­unnar, eru hlutir sem aldrei hefðu við­geng­ist á tímum Brezhnev eða Chrustjov, jafn­vel á tímum Stalíns. Þeir sýna skort á sið­ferð­is­kennd með stolti. Þetta er það nýja og mun­ur­inn. Fólk sem lifir innan þannig sam­fé­lags skilur oft ekki hversu hættu­legt það er. Helm­ingur rúss­nesku þjóð­ar­innar lifir undir fátækt­ar­mörkum. Og flestum virð­ist standa á sama. Jafnvel þessi 5 % sem eiga allt í Rúss­landi eru stoltir yfir því hvað þeir eru svalir að raka að sér miklum pen­ingum. Og restin í þeirra augum eru bara eitt­hvað, sem má deyja. Þetta er sið­ferði­lega alger­lega röng staða.“

Þú býrð í Þýska­landi en myndir þínar fjalla flestar um Rússland og sög­una. Af hverju?

„Ég fædd­ist inn í rúss­nesk-úkra­ínska fjöl­skyldu. Tungumál og hugs­un­ar­háttur minn er rúss­neskur en í dag líður mér eins og ég sé fyrir utan þetta rými. Á milli landa því ég bý í Berlín en er ekki þýskur heldur til­heyri rúss­neskri menn­ingu. Mér líður eins og frá Kiev, ekki Úkraínu sem ríki heldur bara sem náunga frá Kiev. Ég lærði og bjó í Rúss­landi en get ekki verið þar því ég er ósam­mála svo mörgu þar . Í Úkraínu get ég heldur ekki verið eins og ekta úkra­ínu­maður sem ég skynja ögn ólíka mér. Ég er ekki útlend­ingur þar eða hér, í raun og veru þarf ég engan ákveð­inn stað og líður bara vel með það. En ef þú spyrð, hvaðan ertu þá svara ég að ég komi frá Kiev frá sjö­unda til níunda ára­tug­ar­ins. Á þeim tíunda bjó ég í Moskvu. Gömlu vanda­málin og það sem trufl­aði mig og tók á er allt úr rúss­neskri menn­ingu sem er hluti af mér. En landið sem ég til­heyri er ekki lengur til. Mér líkar ekki hug­myndin um vega­bréf , í raun og veru til­heyra öll lönd okkur öllum og mér er illa við landa­mæri. Ég ólst upp í Sov­ét­ríkj­unum og var með Sovéskt vega­bréf sem einn dag­inn var klippt í sundur og ég lát­inn hafa Úkra­ínskt. Allt í lagi ef þeir láta mig hafa Kiev-passa þá verð ég glaður. En ég mun aldrei fara og biðja um þýskan passa. Ég ber ábyrgð gagn­vart mínu upp­runa­landi og þarf að þekkja það vel og velja hvað ég sýni sem kvik­mynda­gerða­maður. Ég er ekki þjóð­verji og í myndum mínum er ég mjög virkur og með­vit­aður um fyrrum landið mitt.“

Nýja myndin þín byggir á efni frá 1991. Hvað veldur því?

„Þessi mynd er ekki í beinu sam­bandi við það sem er að ger­ast í dag, en auð­vitað yfir­lýs­ing. Til dæmis tón­listin sem ég nota minnir alla á atburð­inn. Þessa daga sem Valda­ránstil­raunin stóð léku opin­berar útvarps­stöðvar aðeins Svana­vatnið eftir Tjaikov­sky. Því nota ég það auk útvarps­hljóða sem við söfn­uðum aðal­lega af net­inu. Það kom mér á óvart hversu erfitt það var að finna hljóð og margt var horfið frá þessum tíma. Hljóð­vinnsla mynd­ar­innar tók þrjá mán­uði með Vladimir Gor­lovet­sky en ég hef fengið að njóta snilldar hans í meira en tíu ár. Ég vildi sem mesta nær­veru við fólkið og það er ástæðan fyrir því að ég hef ekki þul sem truflar áhorf­end­ann við að njóta mynd­anna."

Hvernig fannstu myndefnið?

Ég vissi um þessar kvik­myndir og að efnið væri vandað. Tekið á filmu af átta frá­bærum kvik­mynda­töku­mönnum frá heim­ilda­mynda­stofn­un­inni í Len­ingrad. Efnið veitti mér inn­blástur og það að ég gerði síð­astu mynd mína í Úkraínu um Maidan mót­mælin í Kiev. Þessar myndir vinna vel saman vegna þess að þú hefur fjar­lægð, 22 ár á milli. Umsjón­ar­maður arkífefnis í St. Pét­urs­borg Sergei Gelver er snill­ingur sem hefur oft bent mér á athygl­is­vert efni. Þökk sé honum gerði ég Blokada (Umsátrið í Len­ingrad) og Predsta­v­lenia/Revue. Þetta er þriðja myndin sem ég til­einka þess­ari borg. Fyrir mér er aðeins ein borg í Rúss­landi, Sankti Pét­urs­borg. Fyrir mér er Moskva ein­hverss­konar þorp. Iðn­að­ar­þorp.“ 

Þú áttir samt heima í Moskvu?

„Í Moskvu bjó ég á milli Húss kvik­mynd­anna og kvik­mynda­safns­ins og ferð­að­ist með neð­an­jarð­ar­lest­inni í Kvik­mynda­skól­ann. Ég vann seinna í 8 ár í St. Pét­urs­borg og bjó þar af og til og klippti myndir. Mér lík­aði vel og fór allra ferða minna fót­gang­andi. Það gat tekið yfir klukku­tíma en þetta er fal­leg borg sem mér þykir vænt um. Í Moskvu tók ég heldur neð­an­jarð­ar­lest­ina. Fyrir mér er hún eins og klipp, hlutar af ólíkum svæðum. St. Pét­urs­borg er heild, borg þar sem ein­hver velti fyrir sér skipu­lag­inu og mögu­leik­unum. Það er einnig ástæðan fyrir því að ég gerði mynd­ina um 1991 í Len­ingrad. Þar var þetta berg­mál ómur af því sem við vitum um sög­una um það sem ger­ist utan rammans. Áhorf­endur geta ein­beitt sér að fólk­inu hreyf­ingum og and­litum. Þessum anda sem er ekki lengur til . Í Len­ingrad voru fjöl­menn­ustu mót­mælin á þessum tíma Sov­ét­ríkj­anna. Með frið­ar­merkjum og mín­útu þögn fyrir fórn­ar­lömbin sem féllu í Moskvu og víðar. Um 500 þús­und manns söfn­uðst saman þarna á torg­inu.“

Þú varst ekki við­staddur sýn­ingu myndar þinnar á Artdoc kvik­mynda­há­tíð­inni í Moskvu nýlega. Hver var ástæðan?

„Það eru nokkrar ástæður og mér þykir það leitt. En vegna ástands­ins sem er nú milli Rúss­lands og Úkraínu og að úkra­ínski kvik­mynda­leik­stjór­inn Oleg Sentsov svar dæmdur í 20 ára fang­els­is­vist . Ég hef ekki séð neina hreyf­ingu í þeim málum. Það hjálp­aði aðeins þegar það komu mót­mæli frá Evrópsku kvik­mynda­aka­dem­í­unni, bréf frá Berlín . Nei póst­kort sem var sent eftir að rúss­arnir mis­þyrmdu honum og þving­uðu til að játa .Evrópska Kvik­mynda­aka­dem­ían var mjög var­kár í til­mælum sínum til Pútíns. En nú eru þeir ákveðn­ari og setja upp mynd af Sentsov á við­burðum. Við skiljum þó öll að það skiptir engu máli hvað við segjum , ekk­ert ger­ist. Og vitum að við erum í þeirri stöðu þar sem KGB eða Rússnesk stjórn­völd segja við alla: „ Þið eruð einsk­is­verð! Þið getir ekk­ert gert þið eruð ekki stjórn­mála­menn . Stingið ekki nefi ykkar í stjórn­málin.“

Þetta má lesa úr þögn­inni og skorti á við­bröðgum frá Kreml. Ég segi þetta ekki vegna þess að við eigum að hætta að skipta okkur af. Nei alls ekki því við gerum þetta einnig vegna þess að þetta hjálp­aði Oleg og öðrum sem einnig var dæmdur. Það hjálp­aði því nú er hann frægur og þeir geta ekki bara látið hann hverfa án þess að umheim­ur­inn bregð­ist við. Í öðru lagi skipta þessi mómæli máli fyrir okkur, til að finna að við erum enn mann­eskjur. Við erum ekki hrædd við að segja þetta. Þetta er ástæðan og ekki vegna þess að ég er hræddur sem ég fer ekki til Rúss­lands, heldur vegna þess að Oleg Sentsov kollegi minn og vinur situr þarna í fang­elsi vegna upp­spunna ástæðna, eftir að hafa verið hand­tek­inn á Krím. Eftir margra daga mis­þyrm­ingar var hann þving­aður til að skrifa undir ásak­anir sem eru alger­lega út í hött.

Ég get ekki ímyndað mér sjálfan mig að kynna mynd eftir mig í Moskvu. Skiftir ekki máli þó þetta sé kvik­mynda­há­tíð and­ófs­manna eða ekki. Þá mundi ég kynna mynd­ina á sviði, fólk að klappa osfr. Þetta er eins og að Tomas Mann hefði mætt til að kynna nýja bók í Berlín Hitlers. Þetta er sama staðan í dag og því yfir­lýs­ing að mæta ekki. Það gefur í skyn að það séu fram­farir þegar þú kemur til lands og kynnir eitt­hvað. Rússar þurfa að gera eitt­hvað sjálfir. Því eins og Oleg Sentsov var dæmdur sak­laus þá situr fjöldi fólks í rúss­neskum fang­elsum í dag. Vís­inda­menn og nú æ fleiri blogg­arar sem skrifa eitt­hvað og eru hand­teknir fyrir það sitja nú sem sam­visku­fangar. Einnig fjöldi fólks sem fyr­ir­tækin eru stolin frá á bíræfnum þjófum. Þetta er mögu­legt vegna þess að almenn­ingur í Rúss­landi þegir og gerir þessar aðstæður mögu­legar.“

Á tímum Sov­ét­ríkj­anna sýndu margir á vest­ur­löndum and­ófs­mönnum sam­stöðu en nú með vax­andi fjölda sam­visku­fanga heyr­ist minna úr þeirri átt. Hvað veldur?

„Ég held að fyrst og fremst sé þetta spurn­ing fyrir rúss­neskan almenn­ing. En auð­vitað erum við öll tengd saman og við verðum að berj­ast gegn órétt­læti hvar sem það er. En þessi teg­und skiln­ings held ég að muni ekki birt­ast fyrr en hjá kom­andi kyn­slóðum. Ég ætla ekki að fara að dæma Vest­ur­evr­ópu­búa. Þeir hafa eigin vanda­mál sem þeir þurfa að takast á við. Það er ekki heldur svo auð­velt að vita hvernig á að takast á við þetta villta land Rússland sem enn er á nítj­ándu öld eða jafn­vel mið­öldum.“ 

Grunaði þig árið 1991 að þetta færi í þessa átt?

„Þegar ég fór að hugsa af alvöru þá sá ég hvað myndi ger­ast á miðjum tíunda ára­tugnum. Árið 1994-95 skildi ég að hlut­irnir myndu þró­ast svona. Því að þá hófst stríðið í Tjetj­eníu og eng­inn sinnti því. Allir vissu að þetta var stríð með þús­undum fórn­ar­lamba en það voru ekki margir sem höfðu samúð með fólk­inu. Fólk hélt sig fjarri. Þetta var upp­hafið, við misstum, ég segi við og á við íbúa fyrrum Sov­ét­ríkj­anna . Við misstum tæki­færi til þess að breyta ein­hverju eftir 1991. Lestin fór án okkar, og í raun hefði átt að hefja ferlið á því að tala um eignir."

Hvernig þá?

„Tvær mik­il­vægar spurn­ingar: Rétt­ar­höld um Sov­ét­valdið. Það má kalla það Nürnberg- eða Kiev-Rétt­ar­höld en það verða að vera rétt­ar­höld um Moskvu. Einnig Varsjá osfr. Það verður að fara í gegnum þetta ferli. Án þess ger­ist ekk­ert. Og seinni spurn­ingin fjallar um eignir og það sem gerð­ist árið 1917. Hvort það hafi bara verið allt í lagi að myrða alla og taka eignir þeirra eða ekki. Ef ríkið segir nei þýðir það að eitt­hvað þarf að gera til að takast á við þetta vanda­mál. Fyrir ætt­ingja eða fyrir fólkið sem þjáð­ist vegna þessa. Ekki síst allar fjöl­skyldur sem liðu vegna vald­hafa Sov­ét­ríkj­anna. Þetta er ekki eitt augna­blik heldur afar langur tími og Rússland er risa­stórt land. Þetta hefur fyrst og fremst tákn­rænt gildi en það er mjög mik­il­vægt. En það er ekki mögu­legt með þessa menn við stjórn­völin sem nú eru í Rúss­landi því þeir vilja ekki að almenn­ingur sé sjálf­stætt hugs­andi fólk. Þeir vilja ekki að fólki sé umhugað um eignir sínar. Þeir eru enn fastir í hugs­ana­hætti Bolsjevika eða Stalíns þegar þú varst ekk­ert. Jafnvel þótt þetta séu Ólig­arkar þá þurfa þeir að vera til­búnir til að segja. Ég er reiðu­bú­inn að gefa ríki­dæmi mitt til rík­is­ins. Eins og Oleg Der­ipaska lýsti yfir í fyrra. Hann sagði ef ríkið þarf á eignum mínum að halda þá mun ég láta þær af hendi. Þetta er hug­mynda­fræði­leg spurn­ing. Ef hún kemst ekki upp á yfir­borðið mun ekk­ert ger­ast."

En búa ekki margir Rússar hér í Berlín sem hafa flúið ástandið þar?

„Ekki bara hér heldur einnig í öðrum borgum og í Eystra­salts­löndum og Finn­landi. Já reyndar mjög margir í Berlín en ég er ekki hluti af neinum hópi. Þegar ég er ekki að skrifa, taka upp eða klippa myndir í Úkraínu eða Eystra­salts­ríkj­unum þá bý ég hér svo að segja úti í horni. Ég er með stórt bók­safn og mig langar núna mest til að bara lesa í nokkur ár. Mig dreymir um tím­ann þegar morg­un­dag­ur­inn var eins og haf af óvæntum hlutum og hægt var að gera það sem maður vildi.“

Það lítur ekki út fyrir að þessi draumur Loznitsa ræt­ist á næst­unni því hann vinnur að klipp­ingu heim­ilda­myndar. Auk strangrar dag­skrár kvik­mynda­há­tíða og fyr­ir­lestra mun hann leik­stýra stutt­mynd í vor og leik­inni mynd í fullri lengd eftir eigin hand­riti á kom­andi ári.

Þetta er annað við­talið sem Kjarninn birtir við Sergei Loznitsa. Það fyrra birt­ist 23. nóv­em­ber 2014. Það má lesa hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár