Mynd um Maidan er sterkur vitnisburður um úkraínsku mótmælin

Í nóv­em­ber 2013 mót­mæltu þús­undir á sjálf­stæð­is­torg­inu Maidan í Kænu­garði, höf­uð­borg Úkraínu. Ein ástæðan var að Viktor Janu­kovits for­seti hafði rift sam­komu­lagi varð­andi Evr­ópu­sam­bandið og snúið sér að Rúss­landi og Pútín í stað­inn. Þegar mót­mælin hófust var kvik­mynda­leik­stjór­inn Sergei Loznitsa staddur í Kænu­garði. Loznitsa ,sem býr í Berlín, fædd­ist árið 1964 í Hvíta-Rúss­landi en ólst upp í Kænu­garði þar sem hann nam stærð­fræði og japönsku. 1997 lauk hann námi í kvik­mynda­leik­stjórn í Moskvu og hefur leik­stýrt fjórtán marg­verð­laun­uðum heim­ilda­myndum og tveimur leiknum kvik­myndum sem m.a. voru sýndar á kvik­mynda­há­tíð­inni í Cannes.

Nýjasta mynd hans Maidan ,var frum­sýnd þar í vor og vekur nú víða athygli og hefur hlotið alþjóð­legar við­ur­kenn­ingar . Á kvik­mynda­há­tíð­inni CinEast í Lux­em­borg var Loznitsa nýlega heiðr­aður sem „einn af mik­il­væg­ustu lista­mönnum okkar tíma.“

[quote font="0" align="right"]Heim­ilda­myndin var tekin upp á 90 dögum og sýnir mót­mæli og upp­reisn almenn­ings gegn spilltum stjórn­völdum.[/quote]

Heim­ilda­myndin var tekin upp á 90 dögum og sýnir mót­mæli og upp­reisn almenn­ings gegn spilltum stjórn­völdum. Það er eng­inn sögu­maður, aðeins nokkrir textar sem mynda kafla­skipti.Við heyrum ræður og tón­list en sjáum sjaldan flytj­endur. Stöðugri mynda­vél er beint að fólk­inu og sýnir þróun og fram­vindu bylt­ing­ar­innar. Marg­breyti­legt líf og litir innan rammans minna stundum á mál­verk eldri meist­ara.

Eftir að um klukku­tími er búinn af mynd­inni birt­ast sjúkra­bílar og stemn­ingin sortnar. Hjálmar og gas­grímur, mót­mæl­endur í röðum færa götu­steina að fremstu víg­línu. Sprengjur, tára­gas og hóstandi mann­eskjur. Maidan er sterkur vitn­is­burður um mót­mælin en um leið tíma­laus mynd með átak­an­legum loka­senum þar sem hund­rað manns hafa fallið, hund­ruð eru týnd og mörg hund­ruð særðir.

Kjarninn ræddi nýverið við Loznitsa.

Breytingarnar höfðu sterk áhrif á mig


Af hverju gerðir þú mynd um Maidan?

„Ég var í Kænu­garði í nóv­em­ber 2013 að und­ir­búa leikna mynd um Babi Jar fjöldamorðin sem áttu sér stað í seinni heim­styrj­öld­inni. Ég fann að þetta væri áríð­andi og að ég þyrfti að mynda það, svo ég fór heim og lagði önnur verk­efni til hliðar. Þegar ég snéri aftur til Kænu­garði í des­em­ber gerði ég mér grein fyrir því að Janu­kovits var ekki lengur for­seti Úkraínu. Hann hafði tapað allri virð­ingu fólks­ins. Það var ljóst að þessi stjórn myndi falla fljót­lega og engir kraftar gætu haldið for­set­anum við völd. Jafnvel þótt ég hafi alist upp í Kænu­garði og þekki borg­ina vel höfðu þessar breyt­ingar sem ég sá mjög sterk áhrif á mig.“

[caption id="attachment_12727" align="alignnone" width="1000"] Sergei Loznitza tók mynd­ina upp á 90 dögum.[/caption]

Var erfitt að finna fram­leið­enda að mynd­inni með svona stuttum fyr­ir­vara?

„Yfir­leitt þegar ég fer til fram­leið­enda er ég alveg viss um hvernig myndin mun líta út. Þarna vissi ég ekki hvernig þetta gæti þró­ast eða hvort ég væri yfir­leitt með mynd. Það tekur tíma að fá svar frá fram­leið­endum og í okkar til­felli var eng­inn tími til að bíða. Fram að 23. mars í ár var myndin fjár­mögnuð af mér og litlu fyr­ir­tæki okkar í Hollandi. Síðan fengum við stuðn­ing frá Hol­lensku Kvik­mynda­stofn­un­inni. Frá þeim sjón­ar­hóli séð er þetta „no-budget“ mynd.“

Hvernig bylt­ing var þetta ?

„Í fyrsta lagi var þetta and-nýlendu­bylt­ing. Rússland er auð­vitað nýlendu­herr­ann, þetta var ein­hvers konar „and­leg bylt­ing“ gegn rúss­neskum yfir­ráðum. Það sést einnig á stríð­inu í austur Úkraínu. Það hófst vegna þát­töku Rúss­lands. Í öðru lagi var þetta and-sov­ésk bylt­ing. Við gerðum enga bylt­ingu gegn Sov­ét­ríkj­unum. Það varð bara hrun í land­inu en engin póli­tísk bylt­ing. Við höfum aldrei gert upp við Sov­ét­ríkin eins og Þjóð­verjar gerðu í Nürnberg-rétt­ar­höld­unum. Komm­ún­ista­flokk­ur­inn er enn til og lög­legur í Úkraínu. Á meðan á Maidan mót­mæl­unum stóð voru mörg minn­is­merki um Lenin eyðilögð.

Í þriðja lagi var þetta hug­mynda­leg bylt­ing. Á Sov­é­tím­anum vildi fólk heldur láta aðra um að taka ákvarð­anir, Stalin til dæmis. Nú gerir fólk sér grein fyrir því hversu mik­il­vægt það er að stjórna eigin lífi. Út frá þessu sjón­ar­horni þá er evr­ópskur hugs­un­ar­háttur að færa sig í austur.“

[caption id="attachment_12729" align="alignnone" width="2048"] „Fólkið hafði upp­lifað hræði­lega hluti saman og þú sást það í and­litum þeirra. Sjálfsag­inn og vinnu­harkan voru mjög áhrifa­rík þegar haft er í huga að það var eng­inn að skipu­leggja neitt. Hlutinn þegar hinir syrgj­andi kveðja þá látnu er auð­vitað mjög mik­il­vægur. Ég sleppti því vilj­andi að mynda það, sýni bara fólkið sem fylgist með," segir Loznitsa um mynd sína.[/caption]

Sjálfstæðistorgið Maidan í Kænugarði


„Hátíð­ar­stemmn­ingin á fyrstu dögum Maidan-mót­mæl­anna var mjög heill­andi og styrkj­andi, næstum eins og að liggja í móð­ur­kviði. Ég hef aldrei áður séð eða upp­lifað þannig sam­stöðu og vin­áttu .Það var ótrú­legt að sjá fjöld­ann vinna saman. Allir virt­ust upp­teknir við að gæta Mai­dan­torgs­ins, hjálpa til í eld­hús­unum, veita lækn­is­að­stoð, koma fram á svið­inu og skipu­leggja starf sjálf­boða­lið­anna. Það voru líka ótrú­lega margir sem gáfu og eld­uðu mat, allir fengu að borða sama í hvaða liði þeir voru. Ég held að engin bylt­ing hafi verið jafn vel nærð og þessi.

[caption id="attachment_12726" align="alignnone" width="2048"] „Allir virt­ust upp­teknir við að gæta Mai­dan­torgs­ins, hjálpa til í eld­hús­unum, veita lækn­is­að­stoð, koma fram á svið­inu og skipu­leggja starf sjálf­boða­lið­anna. Það voru líka ótrú­lega margir sem gáfu og eld­uðu mat, allir fengu að borða sama í hvaða liði þeir voru," segir Loznitsa.[/caption]

Fyrstu vik­urnar á Madi­an­torgi var auð­vitað hætta en þar var líka mik­ill húmor og hlátur. Þessi sér­staka úkra­ínska kímni­gáfa hefur hjálpað þjóð­inni við að kom­ast í gegnum erf­iða tíma. Að hlægja að heimskum og spilltum stjórn­mála­mönnum í stað þess að hata þá. Þarna blómstr­aði sköp­un­ar­kraft­ur­inn. Hópur áhuga­söngv­ara og skálda fluttu stundum fremur ein­faldar en ótrú­lega ein­lægar ball­öður á svið­inu við Maidan.“

Myndin hefst á mann­fjölda sem syngur þjóð­söng­inn og þú sýnir það tvisvar. Af hverju?

„Af því að það er hlaðið merk­ingu. Þetta er mjög áhrifa­rík sena. Hún snertir áhorf­and­ann og vekur sterkar til­finn­ingar. Ég bað töku­mann­inn um að fylla rammann af fólki, mann­haf­inu. Það er erfitt að ímynda sér þús­undir rússa sem taka sam­tímis ofan halda hönd að hjarta og syngja þjóð­söng­inn. Þannig séð er Úkraína ólík Rúss­landi. Fólk var stöðugt syngj­andi á Maidan. Það vakti furðu mína. Ég get ekki ímyndað mér að þetta gerð­ist í Moskvu. Ég veit reyndar ekki með þjóð­söng­inn en þar eru þjóð­lögin að deyja út. Eitthvað mjög mik­il­vægt er að hverfa, það sem var mjög sér­stakt við þjóð­ina, fyrir fólkið.

Þetta hefur varð­veist í Úkraínu. Það eru svo mörg skáld þarna sem lesa ljóðin sín, þeir gera það af ástríðu og allir eru til­búnir að syngja með. „Cherovna Ruta“ (vin­sælt úkra­ínskt lag) kom ekki mjög vel út í upp­tök­unum svo við þurftum að gera nýja útgáfu við hljóð­vinnsl­una í Vilnius. Við leit­uðum til Úkra­ínska sendi­ráðs­ins þar og starfs­fólkið hóf svona líka fal­legan söng fyrir kokur öll saman. Nei þetta er ekki Rússland, heldur annað.“

Af hverju var mynda­vélin alltaf föst?

„Áður en ég geri mynd bý ég til vinnu­reglur sem ég fylgi. Þessar reglur stjórna mynd­bygg­ing­unni, flæði og lengd. Myndin átti að fjalla um fólkið, því þurfti ég á stöðugri mynda­vél að halda til að sýna það. Ég gat ekki sagt þessa sögu á annan hátt. Ef þú fylgir einni per­sónu þá verður hún og einka­líf hans mið­punktur. Þú þarft að stíga nokkur skref aft­urá­bak. Þegar ég setti upp mynda­vél­ina gætti ég þess að eng­inn ein per­sóna tæki yfir rammann.Það er til stór­kost­legt dæmi úr rúss­neskri kvik­mynda­sögu með fólks­fjölda í upp­reisn, „Verk­fallið“ eftir Eisen­stein. Hann var fyr­ir­mynd mín. Síðan fylgdi ég bara atburð­ar­rásinni. Þannig byggði ég mynd­ina. Hver ný sena sýnir nýtt stig í þróun sög­unnar. Þannig séð er þetta sögu­leg mynd.

Takmark mitt er að fara með áhorf­and­ann á Maidan og láta hann upp­lifa 90 daga bylt­ingu. Ég vildi fjar­lægj­ast og láta áhorf­enda mæta atburð­unum augliti til auglits. Ég not­aði því langar tökur til að draga fólk inn í frá­sögn­ina án þular eða skýr­inga.“

[caption id="attachment_12725" align="alignnone" width="989"] Sjálf­boða­liðar í Kænu­garði að útbúa mat fyrir mót­mæl­endur.[/caption]

Er ein­hver hluti í mynd­inni sem skiptir þig meira máli en aðrir?

„Það er lyk­il­sena eftir skotárás­irnar, þegar skytt­urnar eru farnar frá Mai­dan­torgi. Þú sérð stóra hópa fólks að hreinsa til, byggja varn­ar­garða, bera bíldekk og vatn. Þetta hafði djúp áhrif á mig. Fólkið hafði upp­lifað hræði­lega hluti saman og þú sást það í and­litum þeirra. Sjálfsag­inn og vinnu­harkan voru mjög áhrifa­rík þegar haft er í huga að það var eng­inn að skipu­leggja neitt. Hlutinn þegar hinir syrgj­andi kveðja þá látnu er auð­vitað mjög mik­il­vægur. Ég sleppti því vilj­andi að mynda það, sýni bara fólkið sem fylgist með.“

Eftir að skyttur Janu­kovits höfðu myrt yfir hund­rað manns flúði for­set­inn landið ásamt fjöl­skyldu­með­limum. Viku seinna yfir­tóku þung­vopn­aðir grímu­klæddir menn þingið í Sim­fer­opol og mynd­uðu lepp­stjórn Rúss­lands. Sumir þeirra skyttur, sem nýlega höfðu myrt mót­mæl­endur í Kænu­garði, á flótta undan rétt­læt­inu. Síðan hertók Vladimir Pútín Krím­skaga og kynnti undir vopn­aðum upp­reisnum í Donbas hér­aði í austur Úkraínu.

Neitaði að tala rússnesku


Við frum­sýn­ingu mynd­ar­innar í Cannes í vor neit­aðir þú að tala við rúss­neska fjöl­miðla. Af hverju?

„Allt sem sagt er um Úkraínu í opin­berum rúss­neskum fjöl­miðlum er lygi og ég vil ekki taka þátt í því. Það er upp­lýs­ing­ar­stríð í gangi og fjöl­miðlar eru not­aðir sem vopn. Og með góðum árangri skilst mér. Opin­berir rúss­neskir fjöl­miðlar mis­nota ótta fólks og mála atburð­ina í Úkraínu eins dökka og þeir mögu­lega geta. Eitt dæmi er að rúss­neskir fjöl­miðlar tala um Úkraínsk stjórn­völd sem Juntu.

Junta var yfir­leitt notað yfir það sem gerð­ist í löndum Suður Ameríku. Eða yfir það sem gerð­ist í Grikk­landi á sjö­unda og átt­unda ára­tugnum. Orðið vísar í valda­rán og á alls ekki við. Það virkar sem hug­mynda­fræði­leg klisja. Fólk þekkir orðið frá Sovét-tím­anum. Rússar tala um fas­ista í Úkraínu. Tækni­lega séð var fas­ismi aðeins til á Ítalíu. Ef maður opnar Soviet Encyclopedia, sem var aðal upp­slátt­ar­rit þess tíma, má lesa skýr­ingu á fas­isma. Þar eru sex skýr­ingar. Að minsta kosti fimm þeirra (ofsóknir á frjálsum félaga­sam­tökum, ofsóknir gegn minni­hluta­hópum osfr.) eru það sem stjórn Pútíns er að gera! Rússar geta stýrt umræðu og áróðri á mjög áhrifa­ríkan hátt. Þeir nota orð úr sov­éskri for­tíð og rang­færa þau upp á stöð­una í dag.“

[caption id="attachment_12730" align="alignnone" width="1273"] Leik­stjór­inn segir að bylt­ingin hafi verið þrí­þætt. Í fyrsta lagi and-nýlendu­bylt­ing gagn­vart Rúss­landi, í öðru lagi and-sóvésk bylt­ing gagn­vart sög­unni og í þriðja lagi hug­mynda­fræði­leg bylt­ing.[/caption]

En hvað er að ger­ast í Úkraínu í dag?

„Í fyrsta lagi kem ég frá Kænu­garði, öllum sem lifðu í Sov­ét­ríkj­unum stendur þetta nærri því það eru nokkrir mik­il­vægir hlutir. Þessir árekstrar hugs­un­ar­hátta, eða með­vit­undar. Þetta er stríð sem fjallar um rétt þræla til að verða þrælar aftur. Þetta fólk sem ver draum­inn um Sov­ét­ríkin, það dreymir í raun og veru um að verða þrælar aftur. Til að ein­hver frændi leysi vanda­mál þeirra. Lenin eða Vova frændi. Það fjallar um þetta.“

Á kvimynda­há­tíð­inni í Cannes mót­mæltir þú hand­töku kollega þíns kvik­mynda­leik­stjór­ans Oleg Sentsov frá Úkraínu sem var hand­tek­inn í mai í Sim­fer­opol af rúss­nesku leyni­þjón­ust­unni FSB?

„Honum er haldið í fang­elsi mán­uðum saman á alger­lega ógrund­uðum ásök­unum. Hann var pynt­aður og hótað kyn­ferð­is­of­beldi og lam­inn til játn­inga. Síðan var hann fal­inn í tær vikur þar til verstu örin hurfu. Hann er hug­rakkur maður og nú hafa þeir brotið tennur hans og fram­lengt fang­els­is­vist hans í Moskvu. Ég tel það afar mik­il­vægt að tala um Oleg Sentsov það er eina leiðin til að stuðla að frelsi hans og ann­ara.

Þeir sem hand­tóku hann og aðra eru , eins og Stalín­tím­anum, að búa til absúrd ákærur sem hafa ekk­ert með raun­veru­leik­ann að gera.“

En verður myndin þín þá ein­hvern tíma sýnd í Rúss­landi?

„Já, ég mun bráðum setja hana á netið. Ég lít á hana sem fræðslu­mynd. Fólk þarf að sjá þetta.Hvað sem öllu líður hefur hún hlotið góðar mót­tökur. Af yfir hund­rað myndum sem voru sýndar í Cannes lenti hún fyrsta sæti gagn­rýnenda sem kom mér reyndar á óvart. Á sýn­ingum mynd­ar­innar hefur fólk klappað og einnig hrópað Slava Ukraina! Heiður til Úkraínu. Það er mjög áhrifa­ríkt að upp­lifa það.

Myndin endar á minn­ing­ar­at­höfn til heið­urs bar­áttu­fólki sem lét lífið á Mai­dan­torgi. Í löndum okkar er algengt að reisa minn­is­varða yfir óþekkta her­menn. Ég trúi því að hlut­irnir geti breyst ef hetj­urnar bera nöfn því við verðum að muna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár