Bjargvætturinn Göring

Nafnið Göring tengja flestir við nán­ast ómann­lega illsku. Hermann Göring var með valda­mestu mönnum nas­ista og beitti harð­ræði gegn fólki. Bróðir hans hefði ekki getað verið ólík­ari. Kristinn Haukur Guðnason sagn­fræð­ingur rýndi í sögu Göring bræðra.

Hinn alræmdi nas­ista­for­ingi Hermann Göring var einn af valda­mestu mönnum þriðja rík­is­ins. Hann stofn­aði leynilög­regl­una Gestapo, leiddi flug­her­inn Luftwaffe, tók þátt í hel­för­inni og var um tíma næst­ráð­andi þýska rík­is­ins á eftir Adolf Hitler. Bróðir hans Albert Göring hefði varla getað verið ólík­ari. Albert fyr­ir­leit nas­is­mann og barð­ist gegn honum bæði leynt og opin­ber­lega. Með hjálp bróður síns bjarg­aði hann fjöl­mörgum gyð­ingum og öðrum fórn­ar­lömbum úr klóm nas­ista.

Ólíkir bræður

Albert Günther Göring var fæddur árið 1895 í Berlín. Hann var yngstur fimm barna hjón­anna Heinrich og Fanny Göring, en faðir hans átti fimm upp­komin börn úr fyrra hjóna­bandi. Heinrich starf­aði sem lög­fræð­ingur og diplómati fyrir Þýska­land víða um heim. Hann hafði t.a.m. verið lands­stjóri Þýsku Suð-vestur Afríku sem í dag heitir Namibía. Í Afríku kynnt­ist Heinrich hinum vell­auð­uga Herrmann von Epen­stein, lækni sem var af gyð­inga­ættum en þó kaþ­ólikki sjálfur. Hann bauð Göring fjöl­skyld­unni að búa hjá sér í kast­ala sínum í Veld­en­stein í Bæj­ara­landi.

En það sem Heinrich vissi kannski ekki var að eig­in­kona hans hélt við von Epen­stein um áraraðir. Heinrich var mikið í burtu frá fjöl­skyld­unni og þegar hann var til staðar var hann þung­lyndur og afskipta­laus. Grun­semdir hafa vaknað um það að Albert Göring hafi verið sonur von Epen­steins. Samkvæmt við­tali við dóttur Alberts, Elísa­betu, þá hélt hann því víst sjálfur fram. En það er þó óstað­fest og skiptir kannski ekki miklu máli í stóra sam­heng­inu en með tengslum sínum við von Epen­stein kynnt­ist Albert Göring efri stéttar lífi og blóm­legri menn­ingu bæði í Þýska­landi og í Aust­ur­ríki þar sem fjöl­skyldan dvaldi einnig.

Næst yngsta barnið í fjöl­skyld­unni var Hermann Göring, tveimur árum eldri en Albert. Hermann og Albert voru ákaf­lega ólíkir bæði í útliti og í fasi. Hermann var með blá augu og germ­anskt útlit en Albert með brún augu og dekkri á hör­und. Hermann var upp­reisn­ar­gjarn og gasl­ara­legur og kunni vel við sig í marg­menni þar sem hann tal­aði yfir­leitt hæst allra. Albert var hann ófé­lags­lyndur, nei­kvæður og lét lítið fyrir sér fara. Hermann átti erfitt með bók­nám en fann sig aftur á móti í hernum. Hann hóf feril sinn þar í fót­göngu­lið­inu í fyrri heims­styrj­öld­inni en flutti sig snemma yfir í flug­her­inn, þar sem hann var orr­ustuflug­maður.

Alla tíð var Hermann tengdur flugi og flug­hernum. Þegar Nas­ista­flokk­ur­inn komst til valda árið 1933 var hann gerður að flug­mála­ráð­herra og hélt þeirri stöðu allt til stríðsloka. Bóknám hent­aði Albert Göring betur. Hann hafði engan áhuga á stjórn­málum eða hernum en var þó vita­skuld kvaddur í her­inn í fyrri heim­styrj­öld­inni og starf­aði þar sem skeyta­maður. Eftir stríðið lærði hann verk­fræði í Tækni­há­skóla München. Þrátt fyrir að vera eins ólíkir og þeir voru kom bræðr­unum ágæt­lega saman í upp­hafi. En eftir að Hermann tók þátt í hinni mis­heppn­uðu bjór­kjall­ar­upp­reisn Hitlers árið 1923 versn­aði sam­band bræðrana til muna og um margra ára skeið töl­uð­ust þeir lítið við.

Hið góða líf í Vín

Árin eftir bjór­kjallaraupp­reisn­ina voru Hermanni Göring erfið. Hann hafði fengið skot í nár­ann í upp­reisn­inni og ánetj­að­ist mor­fíni eftir sjúkra­leg­una. Illa hald­inn af fíkn flakk­aði hann um Evrópu þar sem hann var eft­ir­lýstur í Þýska­landi. Um tíma var hann vistaður á geð­sjúkra­húsi í Svíþjóð en fékk að snúa aftur heim til Þýska­lands árið 1927 þegar honum voru gefnar upp sakir. Þetta var aftur á móti tím­inn þar sem Albert blómstr­aði. Eftir útskrift úr háskóla vann hann fyrir Junckers og hann­aði ýmis hit­un­ar­tæki og ofna. Hann var svo feng­inn til að selja vörur fyrir fyr­ir­tækið víða um Evrópu. Best leið honum í Mið-Evrópu og þá sér­stak­lega fjöl­menn­ing­ar­borgum eins og Vín, Prag og Búdapest. Í kringum 1930 höfðu nas­istar náð aftur vopnum sínum og juku fylgi sitt með hverjum deg­inum.

Hermann stóð þétt við hlið Hitlers í þess­ari upp­bygg­ingu sem lauk með valda­töku flokks­ins árið 1933. Albert fyr­ir­leit nas­is­mann og alla þá kúgun og ofbeldi sem fylgdi honum. Honum hugn­að­ist ekki þjóð­ernis eða kyn­þátta­hyggja, í hans augum voru allar mann­eskjur jafn rétt­háar. Þegar nas­ist­arnir tóku völdin í Þýska­landi flutti Albert til Vín­ar­borgar. Þar stýrði hann kvik­mynda­veri fyrir bræð­urna Kurt og Oskar Pilzer sem voru gyð­ingar. Mikið af gyð­ingum og öðru „óæski­legu“ fólki úr þýska skemmt­ana­iðn­að­inum flúði til Vín­ar­borgar og fékk atvinnu þar. Albert kunni vel við sig í Vín og þeirri menn­ingu sem borgin er fræg fyrir, svo vel reyndar að hann gerð­ist aust­ur­rískur rík­is­borg­ari. Í eitt skipti gerð­ist það að Hermann Göring leit­aði til bróður síns til að fá hjálp. Góð vin­kona Emmy Göring, eig­in­konu Hermanns, var gift gyð­ingi og hrökkl­að­ist úr landi. Albert útveg­aði henni kvik­mynda­hlut­verk í Aust­ur­ríki. Þetta var greiði sem Albert átti eftir að inn­heimta margoft til baka.

Þegar Aust­ur­ríki var inn­limað inn í Þýska­land árið 1938, í hinu svo­kall­aða Anschluss, umturn­að­ist ver­öld Alberts og hann fór að berj­ast beint gegn ofbeldi og kúg­unum nas­ism­ans. Á þessum tíma voru völd Hermanns meiri en nokkru sinni fyrr. Hann var óum­deil­an­lega næst­ráð­andi í þriðja rík­inu á eftir sjálfum Adolf Hitler og Albert ákvað að nýta sér það til góðs. Annar vinnu­veit­andi hans Oskar Pilzer var hand­tek­inn skömmu eftir Anschluss af Gestapo-mönnum. Albert hringdi í bróður sinn og Pilzer var strax lát­inn laus. Pilzer fjöl­skyldan komst að lokum til Banda­ríkj­anna fyrir til­stilli Alberts. Albert lét sér það þó ekki duga að bjarga nán­ustu vinum sínum. Við Anschluss var kansl­ari Aust­ur­ríkis Kurt Schuschnigg hand­tek­inn. Schuschnigg sem hafði barist hart fyrir sjálf­stæði lands­ins var geymdur í ein­angr­un­ar­vist og hann pynd­aður með ýmsum aðferðum. Albert sendi bróður sínum bréf um hvers lags hneisa þetta væri fyrir Þýska­land að koma svona fram við frá­far­andi leið­toga og hvort hann gæti ekki hjálpað honum. Í kjöl­farið var Schuschnigg leystur úr ein­angrun og sendur í vinnu­búðir í Sachenhausen.

Skoda og andspyrnuhreyfingin

Eftir Anschluss missti Albert Göring áhugan á að starfa fyrir kvik­mynda­verið. Eftir að Pilzer bræðrum var bolað í burtu voru ein­ungis áróð­urs­myndir fyrir Nas­ista­flokk­inn fram­leiddar þar. Þá bauðst honum staða útflutn­ings­stjóra hjá bíla og véla­fram­leið­and­anum Skoda í Tékkóslóvakíu. Albert flutti þangað árið 1939 og má segja að and­spyrnu­starf­semi hans hafi haf­ist að alvöru. Tékkóslóvakía var her­setin af Þjóð­verjum og verk­smiðjur Skoda sáu um að afla þýska hernum vél­ar­hluti. En í verk­smiðjum Skoda störf­uðu mikið af mönnum sem unnu á laun fyrir tékk­nesku and­spyrnu­hreyf­ing­una. Albert Göring vissi af þessu og aðstoð­aði þá með ýmsum hætti, t.d. veitti hann upp­lýs­ingar, aðstoð­aði og hvatti til skemmd­ar­verka og hjálp­aði hand­söm­uðum and­spyrnu­mönnum að sleppa úr haldi. Hann nýtti sér tengsl sín við bróður sinn og fals­aði jafn­vel und­ir­skrift hans.

Það eru til margar sögur af hetju­dáðum Alberts, þar sem hann setti sig jafn­vel opin­ber­lega í hættu. Frægasta atvikið var senni­lega þegar hann hjálp­aði nokkrum gyð­inga­konum sem voru neyddar af SS-liðum til að skrúbba gang­stétt. Albert sá atvikið og hófst handa við að skrúbba með þeim. Þegar SS-lið­arnir stöðv­uðu hann og báðu um skil­ríki sýndi hann þeim að hann væri bróðir Hermanns. Alberti og kon­unum var í kjöl­farið sleppt þar sem þeir vildu ekki nið­ur­lægja hann og þar með Hermann sjálfan. Sams konar atvik átti sér stað í Vín þegar SS-liðar neyddu aldr­aða gyð­inga­konu til að sitja í búð­ar­glugga með skilti um háls­inn sem á stóð „ég er skítugur gyð­ingur“. Albert leiddi kon­una í burtu og SS-lið­arnir þorðu ekki að stöðva hann. Hann bjarg­aði mörgum frá því að verða sendir í útrým­ing­ar­búðir, hann kom fjölda fólks úr landi, keyrði þeim jafn­vel sjálfur. Hann bjarg­aði líka eigum fólks sem höfðu verið gerðar upp­tækar og sendi gjald­eyri til fólks í gegnum sviss­neskan banka­reikn­ing sem hann átti.

Hann hjálp­aði fólki úr útrým­ing­ar­búðum t.d. með því að biðja um vinnu­afl fyrir Skoda verk­smiðj­una. Föngunum var síðan öllum sleppt lausum. Eftir að Reinhard Heydrich, land­stjóri Tékkóslóvakíu, var myrtur af tékk­nesku and­spyrnu­hreyf­ing­unni lét yfir­maður hans, Heinrich Himmler, sverfa til stáls og mik­ill fjöldi Tékka voru aflífaðir eða fang­els­aðir. Albert bjarg­aði mörgum frá þess­ari hefnd Þjóð­verja. Hann var hand­tek­inn alls fjórum sinnum í stríð­inu en alltaf kom Hermann honum til bjargar. Himmler, sem átti sjálfur í innri valda­bar­áttu við Hermann Göring, mis­lík­aði fram­ferði Alberts sér­stak­lega en sá sér þó ekki fært að beita sér frekar gegn honum. Þó er ljóst að Albert var í eig­in­legri lífs­hættu.

Það kann að koma á óvart hversu mikla þol­in­mæði Hermann hafði gagn­vart bróður sínum. En sam­band þeirra var sér­stakt. Þeir töl­uð­ust lítið við og hitt­ust nær ein­ungis á fjöl­skyldu­mótum. Albert var ekki við­staddur skírn Eddu Göring, dóttur Hermanns, þar sem Adolf Hitler var guð­fað­ir­inn. Þeir töl­uðu aldrei um stjórn­mál og má vera að þeir hafi viljað vernda hvorn annan frá sann­leik­anum um gjörðir hvors ann­ars. En þrátt fyrir þann mikla mun á afstöðu og gjörðum bræðr­anna þá kom þeim ágæt­lega saman. Það virð­ist einnig sem Hermann hafi verið hænd­ari að Alberti en öfugt, senni­lega vegna þess hversu mik­ill fjöl­skyldu­maður hann var. Alberti mis­lík­aði gjörðir Hermanns ákaf­lega en hann þurfti á honum að halda, hann hefði aldrei getað hjálpað öllu þessu fólki án Hermanns. Hermann lét alla vita, bæði Gestapo-menn, SS-liða og aðra að fjöl­skyldu hans mætti ekki snerta.

Erfiðleikar eftir stríð

Þegar stríð­inu lauk gáfu báðir Göring bræð­urnir sig fram við her­sveitir banda­manna. Hermann hafði fallið úr náð Hitlers og eyddi sein­ustu dögum stríðs­ins í stofu­fang­elsi í kast­ala sínum í Aust­ur­ríki. Hann var hæst setti liðs­maður Nas­ista­flokks­ins sem banda­menn hand­söm­uðu og réttað var yfir honum í Nurem­berg á árunum 1945 og 1946. Hann var dæmdur til dauða, m.a. fyrir stríðs­glæpi og glæpi gegn mann­kyni en framdi sjálfs­víg í klefa sínum rétt fyrir aftök­una. Albert var einnig yfir­heyrður í Nurem­berg og banda­menn sök­uðu hann um að taka þátt í glæpum bróður síns.

En Albert lýsti gjörðum sínum í stríð­inu, hvernig hann hefði aðstoðað and­spyrnu­hreyf­ing­una og hjálpað gyð­ingum og öðrum fórn­ar­lömbum nas­ista. Hann skrif­aði upp lista 34 helstu manna og kvenna sem hann hafði hjálpað, þar á meðal Oskar Pilzer og Kurt Schuschnigg. Sak­sókn­arar trúðu þessu tæp­lega en það breytt­ist þó þegar fólk sem hann hafði hjálpað sendi vitn­is­burð um hetju­dáðir hans til Nurem­berg, þar á meðal Pilzer bræður sem þá bjuggu í Banda­ríkj­unum.

Sak­sókn­arar urðu nú að taka mark á Alberti en þeir vildu þó ekki sleppa honum lausum. Hann var því fram­seldur árið 1947 til Tékkóslóvakíu þar sem hann var eft­ir­lýstur. Þar var réttað yfir honum og hann hefði átt dauða­dóm­inn vísan ef ekki hefði verið fyrir aðstoð þeirra sem hann hafði hjálpað í gegnum tíð­ina og þá sér­stak­lega and­spyrnu­manna úr verk­smiðjum Skoda sem vitn­uðu til um gjörðir Alberts. Hann var sýkn­aður af dóm­stól í Prag og var nú loks frjáls maður.

Þó að Albert hafi sloppið við fang­elsis eða dauða­dóm eftir stríð þá átti eft­ir­nafnið Göring eftir að reyn­ast honum erfitt allt til dauða­dags. Margir nas­istar og skyld­menni þeirra breyttu um nafn eftir stríð en þar sem hann var mik­ill hug­sjóna­maður fannst honum það aldrei koma til greina. Hann leit á það sem svik við föður sinn og ætt sína. Enginn vildi þó ráða mann með eft­ir­nafnið Göring í vinnu eftir stríðið. Hann fékk ein­staka verk­efni sem þýð­andi þangað til hann fékk loks fasta vinnu árið 1955 hjá bygg­ing­ar­fyr­ir­tæki í München. Sam­starfs­menn hans komust þó fljótt á snoðir um tengsl hans við Hermann og hót­uðu að hætta allir sem einn. Albert var því lát­inn fara og hann bjó í fátækt í borg­inni sein­ustu ár ævi sinnar. Fáir vissu af hetju­dáðum hans í stríð­inu og hann þáði mat­ar­að­stoð frá þeim sem hann hafði hjálpað í gegnum tíð­ina. Albert Göring lést árið 1966.

Það var ekki fyrr en á tíunda ára­tug sein­ustu aldar, rúmum 30 árum eftir dauða­dag Alberts að sagn­fræð­ingar fóru að gefa honum gaum. Skrif­aðar voru greinar, bækur og heim­ild­ar­myndir um hann og honum jafn­vel líkt við hinn fræga Oscar Schindler. Breski sagn­fræð­ing­ur­inn William Hastings Burke hefur tekið mál Alberts sér­stak­lega að sér og reynt að koma honum á fram­færi. Hann fór til Ísrael til þess að kynna málið og athuga hvort Albert kæmi til greina til að fá Yad Vashem orð­una, en það er heiður sem Ísra­els­ríki veitir þeim sem hættu lífi sínu til að hjálpa gyð­ingum í hel­för­inni en voru ekki gyð­ingar sjálfir. Það er ennþá til skoð­unar að veita Albert þennan heiður. [http://www.thejewishweek.com/news/new-york/will-yad-vashem-honor-goering] Irena Stein­feldt hjá Yad Vashem segir að það verði erfitt vegna þess hve langt er liðið frá atburð­unum en við­ur­kennir þó að það myndi senda sterk skila­boð ef Ísra­els­ríki við­ur­kenndi „góðan Göring“. Illska er ekki með­fædd, hún er val. Talið er að þeir sem Albert Göring bjarg­aði úr klóm Nasista hafi skipt hund­ruðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár