Það byrjar í Iowa

Í frétta­skýr­ingu í gær var sjón­unum beint að Demókrötum og banda­rísku kosn­ing­unum. Nú er það ríkið Iowa þar sem for­valið hefst. Af hverju hefst það þar? Kristinn Haukur Guðnason sagn­fræð­ingur kynnti sér póli­tíska sögu Iowa.

Miðað við frétta­flutn­ing sein­ustu mán­aða mætti halda að for­seta­kosn­ing­arnar í Banda­ríkj­unum væru handan við hornið en svo er alls ekki. Þetta langa ferli er í raun rétt að byrja. Á mánu­dag­inn þann 1. febr­úar halda bæði Demókra­ta­flokk­ur­inn og Repúblíkana­flokk­ur­inn sitt fyrsta for­val, í Iowa að venju. Þetta er án efa mik­il­væg­asta for­valið af öllum og vert er á athuga af hverju það er og af hverju þetta litla land­bún­að­ar­ríki fékk þennan sess í banda­rískum stjórn­málum.

Af hverju Iowa?

Um ára­tuga skeið hefur fyrsta próf­kjörið hjá stóru flokk­unum tveimur, Demókra­ta­flokknum og Repúblíkana­flokknum, verið haldið í New Hamps­hire. Það stendur meira að segja í lögum rík­is­ins að halda verði próf­kjör þar á undan öðrum ríkjum. Það hefur ekk­ert breyst því fyrsta próf­kjörið (primary) verður haldið þann 9. febr­úar næst­kom­andi og fyrstu full­trú­arnir kjörnir beint á lands­þing flokk­anna í sumar þar sem til­nefn­ing­arnar eru veittar. Í Iowa er aftur á móti haldin svokölluð sam­kunda (caucus) þar sem full­trúar eru valdir á litlum fundum um allt ríkið.

Flokk­arnir stóru fara ekki alveg eins að en fund­ar­gestum er gert skilt að hlusta á ræður fram­bjóð­enda og taka þátt í umræðum áður en þeir fá að kjósa. Ferlið allt hefur verið gagn­rýnt fyrir hversu opið og ólýð­ræð­is­legt það er og tíma­frekt. Það getur tekið 2-3 klukku­tíma að taka þátt í sam­kundu og margir hafa ekki þann tíma aflögu á mánu­degi. Full­trú­arnir sem valdir eru á sam­kund­unni eru líka ekki laga­lega bundnir til að kjósa á ákveð­inn hátt og þess vegna hefur Iowa fengið að vera á undan New Hamps­hire síðan 1972.

Varð fyrst fyrir slysni

Það gerð­ist hálf­part­inn fyrir slysni að Iowa fékk sinn sess sem fyrsta for­valið árið 1972. Demókra­ta­flokk­ur­inn þar þurfti að flýta for­val­inu vegna skipu­lags­vand­ræða og lenti það á undan New Hamps­hire. Fjórum árum síðar færðu Repúblík­anar í Iowa sig yfir á sama dag og Demókrat­arnir og hefur það verið þannig síðan.

Leið­togar ýmsra ann­arra ríkja hafa verið ósáttir við þetta fyr­ir­komu­lag og oft hafa komið fram til­lögur um að ríki skipt­ist á að hefja for­vals­tíð­ina. Það hefur þó ekki verið vilji fyrir því í höf­uð­stöðvum flokk­anna.

Iowa er mið­vest­ur­ríki, stað­sett nán­ast í miðju Banda­ríkj­anna,sam­an­sett úr 99 sýslum. Íbúa­fjöldi rík­is­ins er rúm­lega 3 millj­ónir sem eru tæp­lega 1% af íbúa­fjölda lands­ins. Ríkið er aftur á móti nokkuð stórt og dreif­býlt en þó búa um 600.000 manns í höf­uð­borg­inni Des Moines og nágrenni. Sam­fé­lagið er einnig nokkuð eins­leitt, t.a.m. eru rúm­lega 90% af íbú­unum hvítt fólk af norður-evr­ópskum upp­runa. Iowa er sögu­lega mikið land­bún­að­ar­ríki þar sem jarð­veg­ur­inn og lofts­lagið hentar sér­lega vel fyrir ýmis konar korn­rækt. Meira en 90% af lands­svæði rík­is­ins er lagt undir land­búnað, sem er þekkt fyrir mikla maís­ræktun. Iowa er einnig þekkt fyrir fram­leiðslu og notkun á grænni orku, t.d. vind­orku og etanóli. Þetta er við­kvæmt efni í rík­inu og fram­bjóð­endur verða að vanda sig hvað þeir segja varð­andi græna orku­gjafa.

Prófsteinn á framboð

Árið 1972 stóð öld­ung­ar­deild­ar­þing­mað­ur­inn Bruce McGovern frá Suður Dakóta sig vel í for­val­inu í Iowa. Þetta gaf tón­inn og hann náði óvænt til­nefn­ingu Demókra­ta­flokks­ins eftir bar­áttu við fyrrum vara­for­set­ann Hubert Humphrey og fleiri. Það bjarg­aði honum þó ekki frá nið­ur­lægj­andi ósigri gegn Richard Nixon í for­seta­kosn­ing­unum um haustið. Sá fram­bjóð­andi sem átt­aði sig þó fyrstur á mik­il­vægi Iowa var Jimmy Carter fjórum árum síðar. Carter var hnetu­bóndi og fyrrum rík­is­stjóri Georgíu og lítt þekktur á lands­vísu. Árið 1976 var í fyrsta skipti haldið for­val í öllum fylkjum Banda­ríkj­anna og Carter sá að sigur í Iowa myndi koma sér á kortið. Carter sendi mikið af starfs­fólki og sjálf­boða­liðum til rík­is­ins og vann að lokum stór­sigur þar.

Þetta vatt svo upp á sig og Carter sigr­aði hvert ríkið á fætur öðru uns hann náði til­nefn­ingu flokks­ins og vann svo hvíta húsið um haustið. Síðan þá hafa flestir gert sér grein fyrir mik­il­vægi Iowa í kosn­inga­lang­hlaup­inu og eytt tölu­vert meiri tíma og fjár­munum í rík­inu en öðrum ríkjum af sömu stærð­argráðu. Vanmat á áhrifum for­vals­ins hefur reynst fram­bjóð­endum dýrt í gegnum tíð­ina. Árið 2004 tap­aði Howard Dean, fyrrum rík­is­stjóri Vermont, eft­ir­minni­lega í for­vali Demókrata. Dean, sem var lang­fjár­sterkasti og sig­ur­strang­leg­asti fram­bjóð­and­inn, ákvað að eyða kröftum sínum í öðrum fylkjum. Hann end­aði þriðji í Iowa með ein­ungis 18% atkvæða og allur vindur fór úr fram­boði hans. Í stað­inn fékk hinn óvænti sig­ur­veg­ari for­vals­ins, öld­ung­ar­deild­ar­mað­ur­inn John Kerry frá Massachusetts, mik­inn með­byr og vann að lokum til­nefn­ing­una.

Mik­il­vægi þess að standa sig vel í for­val­inu sést best ef rennt er yfir sög­una. Síðan 1972 hefur eng­inn fram­bjóð­andi í flokk­unum tveimur náð til­nefn­ing­unni án þess að ná a.m.k. þriðja sæti í Iowa. Enginn Demókrati hefur náð til­nefn­ing­unni með undir 20% fylgi í Iowa ef und­an­skilið er árið 1992 þegar annar öld­ung­ar­deild­ar­þing­maður rík­is­ins Tom Harkin var í fram­boði. Sá fram­bjóð­andi Repúblíkana­flokks­ins sem stóð sig verst í rík­inu var John McCain, öld­ung­ar­deild­ar­þing­maður frá Arizona, árið 2008 en fékk þó 13%. Iowa virkar því eins og sigti á fram­bjóð­endur áður en for­vals­tíma­bilið hefst fyrir alvöru. Ef fram­bjóð­endur fá ekki 15-20% fylgi þar eiga þeir litla sem enga mögu­leika á sigri. Því gef­ast margir upp skömmu eftir að nið­ur­stöð­urnar frá Iowa eru kunn­gjörðar.

Forvalið er einnig gott tæki­færi fyrir fram­bjóð­endur til að sanna sig fyrir kjós­endum og flokks­for­yst­unni. Ef menn geta unnið Iowa, þá geta þeir unnið ann­ars staðar líka. Hafa ber í huga að Iowa hefur und­an­farna ára­tugi verið svo­kallað sveiflu­ríki(swing state), þ.e. að styrkur flokk­anna er nokkuð jafn. Fram­bjóð­endur sem geta unnið sigra í slíkum fylkjum eru ómet­an­legir fyrir flokks­for­yst­una. Fram­bjóð­endur fá einnig tæki­færi til að sjá hvort að stefna þeirra sé að virka og skila­boðin að ná til kjós­enda. Þeir geta því stillt sig af fyrir kom­andi átök.

Kröfuharðir kjósendur

Gras­rót­ar­starf er mik­il­vægt í rík­inu en það er ekki nóg að hafa nóg af starfs­fólki og sjálf­boða­liðum. Það er heldur ekki nóg að aug­lýsa í sjón­varpi, útvarpi og á götu­skiltum. Nærvera fram­bjóð­enda er Iowa-búum ákaf­lega mik­il­væg. Íbúarnir gera sér vel grein fyrir stöðu sinni og þeirri ábyrgð sem fylgir því að kjósa fyrstir. Þeir ræða mikið um stjórn­mál við hvern sem er, jafn­vel börnin sín, og eru þekktir fyrir að hafa opinn huga og að skipta um skoðun á sein­ustu stundu. Einn sjálf­boða­liði repúblík­ana í Des Moines segir: „Iowa-búar eru aldrei ánægðir. Það þarf meira en eina ræðu, eitt handa­band eða einn fund til að sann­færa kjós­endur í Iowa.“

Fram­bjóð­endur eru t.d. eig­in­lega skyldugir til að mæta á rík­is­há­tíð­ina (Iowa State Fair) og taka þátt í öllum þeim und­ar­legu hefðum sem þar hafa skap­ast svo sem að borða korn­pylsur og svína­kóti­lettur á priki og láta mynda sig með hinni frægu smjörkú. Um 100.000 manns sækja hátíð­ina árlega og fram­bjóð­endur ham­ast því við að fanga athygli fólks. Nærvera í heima­byggð er einnig mik­il­væg og þar sem Iowa er dreif­býlt ríki er það heil­mikið verk að heim­sækja hvern krók og kima. Þetta er sér­stak­lega mik­il­vægt fyrir Repúblík­an­ana þar sem þeir hafa almennt meira fylgi í dreif­býli en í þétt­býli. Fram­bjóð­and­inn Rick Santorum varð stjarna í Iowa þegar hann heim­sótti allar 99 sýsl­urnar á Dodge Ram 1500 pickup jeppa.

Hann upp­skar árangur erf­ið­is­ins og vann nauman sigur í for­val­inu. Mikil við­vera hjálpar og til eru dæmi þess að fram­bjóð­endur hafi flutt til Iowa tveimur árum fyrir for­val til að und­ir­búa jarð­veg­inn, jafn­vel með alla fjöl­skyldu sína með sér.

Fjöl­miðlar hafa mik­inn áhuga á for­val­inu í Iowa og hafa að tölu­verðu leyti skapað mik­il­vægi þess. Her fjöl­miðla­manna dvelur í rík­inu vikum og mán­uðum fyrir for­val og fram­bjóð­endur kepp­ast við að hæna þá að sér. Ef fram­bjóð­anda gengur illa í for­val­inu er lík­legt að fjöl­miðl­arnir yfir­gefi hann. Fjöl­miðla­fólkið hefur þó ekki ein­göngu áhuga á fram­bjóð­end­unum sjálfum. Þetta er tím­inn þegar frétta­menn og stjórn­mála­skýrendur ræða við venju­legt fólk um stjórn­mál yfir kaffi og böku.

2016

Fyrsta lota ein­víg­is­ins milli Hillary Clinton og Bernie Sanders um til­nefn­ingu Demókra­ta­flokks­ins hefst á mánu­dag­inn og ljóst er að Sanders rær líf­róður í rík­inu. Ef Sanders vinnur ekki í Iowa verður eft­ir­leik­ur­inn erf­iður fyrir hann. Sanders hefur reitt sig tölu­vert á ungt fólk og þá sér­stak­lega háskóla­nema. Fylgi hans gæti því ráð­ist á því hversu vel þeir skila sér á sam­kundur út um allt ríkið. Hann er því nokkuð óhepp­inn að því leyti að háskól­arnir eru einmitt í fullum gangi meðan á for­val­inu stendur. Þegar Barack Obama sigr­aði Hillary Clinton eft­ir­minni­lega fyrir átta árum síðan voru háskóla­nemar í fríi og því dreifðir út um allt ríkið og skil­uðu sér því vel á sam­kundur.

Sanders hefur byggt kosn­inga­bar­áttu sína á jafn­rétti og félags­legri sam­hjálp. Það gæti hjálpað honum í Iowa sem er ekki ríkt ríki. Hann fang­aði athygli fólks þegar hann hug­hreysti konu í bænum Iowa Falls sem á við fátækt að stríða.

Clinton þekkir þennan slag vel og hún hefur ennþá sterkt net sjálf­boða­liða í rík­inu sem studdi hana 2008. Hún hefur reynt að byggja bar­áttu sína á leið­toga­færni sinni, mýkt og með því að hlusta á kjós­endur. Hún hefur líka beitt gömlu trixi Demókra­ta­flokks­ins óspart, þ.e. að beita fyrir sig frægu fólki. Til dæmis kom söng­konan Katy Perry fram fyrir hennar hönd á kosn­inga­fundi í haust. Bill er líka aldrei langt undan enda vin­sæll á kosn­inga­sam­komum sem þessum.

Kosn­inga­bar­átta fram­bjóð­enda Repúblíkana­flokks­ins í Iowa hefur verið nokkuð óhefð­bundin. Tveir fram­bjóð­endur, Donald Trump og Marco Rubio, hafa verið sak­aðir um að sinna rík­inu ekki nægi­lega vel, þ.e. að hafa ekki næga per­sónu­lega við­veru þar. Báðir hafa þó haft tölu­vert fylgi. Trump hefur aftur á móti dælt mun meira fjár­magni í kosn­inga­bar­átt­una í Iowa en nokkur annar fram­bjóð­andi enda með mun dýpri vasa. Hann hafði t.a.m. efni á því að gefa börnum þyrlu­ferðir á rík­is­há­tíð­inni og hafa aðrir fram­bjóð­endur gagn­rýnt hann fyrir það.

Einn af sig­ur­strang­leg­ustu fram­bjóð­end­unum, Ted Cruz frá Texas, verður seint tal­inn mik­ill vinur grænna orku­gjafa. Hann hefur barist hart gegn allri lög­gjöf sem greiðir götu etanóls-fram­leið­enda sem eru svo mik­il­vægir í Iowa. Vin­sældir hans mætti því kannski skýra með þeirri miklu athygli sem hann hefur sýnt rík­inu. Cruz ætlar að fylgja for­dæmi Ricks Santorum og heim­sækja allar 99 sýsl­urnar. Cruz er líka sá fram­bjóð­andi sem er hvað vin­veitt­astur byssu­eig­endum og mik­ill veiði­maður sjálfur. Þetta hjálpar honum í Iowa þar sem byssu­eign og menn­ing er mikil. Í Iowa mega blindir ganga um með hríð­skotariffla.

Tveir fyrr­ver­andi sig­ur­veg­arar rík­is­ins taka aftur þátt nú en gengur illa að höfða til kjós­enda og fjöl­miðla, Santorum og Mike Huckabee. Huckabee, sem túraði um Iowa með Chuck Norris sér við hlið, var svo vin­sæll fyrir átta árum síðan að minnstu mun­aði að hann væri skor­inn á háls á rak­ara­stofu vegna ágangs frétta­manna. Hófsömum Repúblík­önum hefur oft gengið illa í Iowa og sagt hefur verið að ríkið ýti Rep­búlíkana­flokknum til hægri. Ríkið hefur aftur á móti verið kjör­lendi fyrir félags­lega íhalds­sama fram­bjóð­endur. Það kemur kannski ekki á óvart að fram­bjóð­endur á borð við Jeb Bush og Chris Christie höfða ekki til Iowa-búa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár