Þorskastríðið við Kína

Banda­rískar B-52 sprengju­flug­vélar flugu nokkrum sinnum í fyrra yfir Spratly-eyja­kla­s­ann nærri Fil­ipps­eyjum. Stjórn­völd í Peking gera til­kall til eyj­anna og brugð­ust ókvæða við og sök­uðu Banda­ríkja­menn um ögrun.

Mörgum frétta­skýrendum þóttu yfir­lýs­ingar rík­is­full­trúa í Peking merki­legar í ljósi þess að eyj­arnar eru flestar eyði­leg sand­rif í óra­fjar­lægð frá meg­in­landi Kína. Öðrum þykja afskipti Banda­ríkj­anna óvið­eig­andi í ljósi þess að þau lögðu niður her­stöðvar sínar á Fil­ipps­eyjum fyrir löngu. Á meðan hefur Kína staðið fyrir mik­illi upp­bygg­ingu á Spratly svæð­inu á und­an­förnum árum.

Í þess­ari deilu eru Fil­ipps­eyjar eins og lítið peð sem minnir á smá­þjóð sem eitt sinn háði sögu­frægt Þorska­stríð. Fil­ipps­eyjar standa and­spænis Kína eins og Davíð gegn Golíat. Báðir aðilar halda frammi sögu­legum rökum um fisk­veiðar og risa­vaxin her­skip athafna sig við þröngar aðstæður innan um litla veiði­báta.

Hefð­bundin utan­rík­is­stefna Kína gengur út á frið­sam­lega sam­vinnu milli ríkja. Oft er vitnað til Deng Xiaoping heit­ins til að útskýra stefn­una með orð­unum: „Vertu með höf­uðið í lagi og haltu þig til hlés. Taktu aldrei að þér for­yst­una – en fram­kvæmdu stór­virki.“ Áðdá­un­ar­vert er að Kína heldur við þeirri stefnu á svæð­inu þegar í harð­bakk­ann slær. En á hinn bóg­inn er Kína að koma upp strangri land­helg­is­gæslu og fil­ip­p­eyskir sjó­menn eru orðnir boð­flennur á fiski­miðum for­feðra sinna.

Því er ólíkt farið með Þorska­stríðið þá og nú að í stað þess að smá­ríki eins og Ísland þræti við hnign­andi heims­veldið Bretland þá etja Fil­ips­eyj­ingar kappi við ört vax­andi stór­veldi Kínverja. Líkt og þá vegur þungt þraut­segja ungra manna sem eru langt frá konum sínum og börnum með þol­in­mæð­ina eina að vopni.

Eyjaklasi með sjóræningjanöfn

Spratly er klasi smá­eyja og sand­rifja. Þær teygja sig út í mitt sunn­an­vert Suður Kínahaf frá hinni löngu Palawan eyju i sam­nefndu hérað á vest­an­verðum Fil­ipps­eyjum. Eitt umdeildasta skerið ber nafn með rentu og kall­ast Prakk­ara­striks­sker (e. Mischief Reef). Það er 250 km frá Palawan eyju en 1300 kíló­metra frá meg­in­landi Kína.

Yfirráð Kína á svæð­inu ná ein­ungis til átta sand­rifja og engra eyja. Sú stað­reynd grefur undan stöðu Kína því sam­kvæmt Haf­rétt­ar­sátt­mál­anum þarf strand­lengju til að gera til­kall til yfir­ráða. Á úrræða­góðan hátt hefur Kína leyst það vanda­mál með því að breiða úr rifj­unum með fjölda sand­dælu­skipa. Frá des­em­ber 2013 fram til ágústs 2015 höfðu land­fyll­ingar Kína náð nærri 30 fer­kíló­metrum og ljóst var að flug­braut væri að rísa á Eld­kross­skeri (e. Fiery Cross Reef). Í grein á Vísi í vik­unni kom fram að kín­versk far­þega­flug­fé­lög eru farin að mæta með kín­verska ferða­langa á skerið.

Víetna­mar ráða yfir 6 eyjum og 17 sand­rifjum, Fil­ipps­eyj­ingar 7 eyjum og 3 sand­rifjum. Þar fyrir utan hafa nokkur önnur ríki í kring yfir­ráð yfir afmörk­uðum hlutum eyja­kla­s­ans. En sand­rifin 8 sem Kín­verjar ráða eru dreifð víðs vegar um klas­ann svo að í krafti her­skipa sinna stjórna þau fisk­veiðum. Kín­verskir bátar fá for­gang en fil­ip­p­eyskum sjó­mönnum er mein­aður aðgangur. Olíu er einnig að finna á svæð­inu og túlka margir harða land­helg­is­gæslu Kín­verjaá svæð­inu sem und­an­fara olíu­bor­ana.

10.000 þriðjungsmílna steinabeðið og 9 strika línan

Tilkall Kína til Spratly eyja­kla­s­ans er byggt á tveimur rökum. Þau fyrri eru að eyj­arnar séu óað­skilj­an­legur hluti af kín­versku áhrifa­svæði allt aftur til keis­ara­alda. Því er haldið fram að kín­verskir sjó­menn hafi veitt þar allt frá 200 fyrir Krists burð og hafi hafst við á eyj­unum. Fundist hafa kín­verskir pen­ingar og leir­brot því til vitnis. Kín­verski sagna­rit­ar­inn Zhao Rugua gæti hafa vísað til þeirra í ann­álum um útlönd í kringum 1200 e.Kr. þar sem þær voru kall­aðar 10.000 þriðj­ungsmílna steina­beð (kín­verska lengd­ar­mæli­ein­ing li er álíka löng og þriðj­ungur úr mílu).

Önnur rök Kína byggja á gömlum kortum og svo­kall­aðri 9 strika línu en það er brota­lína sem umlykur nær allt haf­svæðið fyrir sunnan Kína. Hún liggur allt upp að land­helgi Malasíu og Fil­ips­eyja. Þetta er ekki hefð­bundin 200 mílna land­helgi Kína heldur meira en 1000 mílna, eða u.þ.b. vega­lengd­ina frá Hainan, syðstu eynnar við meg­in­land Kína, til Palawan, næstu stóru eyjar Fil­ips­eyja við Spratly klas­ann.

Fyrstu kort Kína þar sem 9 strika línan kom fram voru birt árið 1947 á vegum Lýð­veld­is­ins Kína, rík­is­stjórnar þjóð­ern­is­sinn­ans Chiang Kai Shek. Þeir áttu á þeim tíma í borg­ara­stríði við komm­ún­ista undir leið­sögn Mao Zedong. Þeir voru end­an­lega hraktir burt frá meg­in­land­inu árið 1949 til eyj­ar­innar Tævan, sem síðan þá hefur verið sjálf­stætt ríki, alloft fjand­sam­legt Alþýðu­lýð­veld­inu á meg­in­landi Kína. Alþýðu­lýð­veldið hafði í fyrstu lít­inn áhuga á Spratly en í kringum 1980 fóru þeir að sýna svæð­inu áhuga. Frá 2013 hafa umsvifin stór­auk­ist.

Stjórn­völd þjóð­ern­is­sinna í Tævan gera einnig til­kall til Spratly eyja. Tilkall þeirra byggir á sama sögu­lega grunni og til­kall Alþýðu­lýð­veld­is­ins, með þeim afleið­ingum að deilan er eitt af fáum málum þar sem ríkin tvö standa saman gagn­vart nágranna­ríkj­unum. Eftir upp­gjöf Japana og stríðsloka­yf­ir­lýs­ingar í Potsdam og Kaíró gáfu þeir frá sér réttin eyjum í Suður Kínahafi og víðar. Rétt­ur­inn átti að fær­ast til Lýð­veld­is­ins Kína sem er nú á Tævan en Spratly eyjar voru ekki nefndar sér­stak­lega. Við þetta bætt­ist að réttur Japana til eyj­anna varð til eftir inn­rás og her­setu en óljóst var með eig­in­leg við­ur­kennd yfir­ráð Spratly og ann­arra eyja­klasa eftir hern­að­ar­lega yfir­töku.

Hafréttarsáttmáli SÞ og Alþjóðadómstóllinn í Haag

Tilkall Fil­ipps­eyja til Spratly eyja byggir á land­fræði­legum rökum og „fyrstir koma fyrstir fá“ regl­unni eða Res Nullius á lat­ínu. Land­fræði­lega má leiða líkum að því að eyj­arnar séu hluti af land­grunni Fil­ips­eyja sem eru sjálfar eld­fjalla­eyja­klasi dreifður þar í kring. Ef horft er á kort af svæð­inu er nokkuð ljóst að eyja­klas­inn liggur á haf­svæð­inu næst Malasíu og Fil­ips­eyjum og þá sér­stak­lega Palawan eyju sem til­heyrir þeim sið­ar­nefndu.

Res nullius rökin byggja á því að eyj­arnar hafi verið einskis manns land eftir seinni heim­styrj­öld­ina. Í frið­ar­sátt­mála Japana við banda­menn var samið um að her­lið og her­seta þeirra legð­ist niður á hernumdum svæðum í Asíu, þ.á.m. Spratly. Umferð um eyj­arnar lá að mestu niðri allt þar til fil­ip­p­eyskur kaup­sýslu­maður að nafni Tomas Cloma nam þar land árið 1956 og stofn­aði Frels­is­landið. Hann var hand­tek­inn árið 1974 af fil­ip­p­eyskum stjórn­völdum og var neyddur til að selja eyj­arnar til þeirra á einn pesóa. Ferdin­and Marcos, for­seti Fil­ipps­eyja, lýsti því að þær væru hluti af Fil­ipps­eyjum og kall­aði þær Kalayaan á fil­ip­p­eysku.

Árið 2009 reyndi Kína að fá til­kall sitt byggt á 9 strika lín­una við­ur­kennt á vett­vangi Sam­ein­uðu þjóð­anna. Þeirri kröfu var að mestu hafnað þar sem strand­lengja Kína lægi ekki að svæð­inu eins Haf­rétt­ar­sátt­máli SÞ (UNCLOS) kveður á um. Í kjöl­far þess­arar kröfu, ásamt stór­auknum fram­kvæmdum Kínverja við land­fyll­ingar og hern­að­ar­upp­bygg­ingu, á svæð­inu fóru Fil­ippsey­ingar með málið fyrir Alþjóða­dóm­stól­inn í Haag árið 2013.

Kína neit­aði að við­ur­kenna lög­sögu dóm­stóls­ins. En sú afstaða dugði ekki til þar sem dóm­stóll­inn ákvað samt að taka málið fyrir vegna þess m.a. að bæði ríkin höfðu inn­leitt Haf­rétt­ar­sátt­mál­ann. Fyr­ir­spurnir Fil­ips­eyja í mál­inu end­ur­spegl­uðu ákveðna kænsku. T.d. spurðu þeir ekki hvort sand­rifin og land­fyll­ingar Kína gætu talist eyjur með búsetu heldur hvort sand­rifin mynd­uðu grund­völl 12 mílna efna­hags­lög­sögu.

Fjallað var um málið í nóv­em­ber 2015. Fyrsta álit dóm­stóls­ins var Fil­ipps­eyjum í vil. Þó svo hann hafi neitað að úrskurða um mál eins og her­væð­ingu og land­helg­is­gæslu Kínverja á svæð­inu var t.d. ályktað að land­fyll­ingar Kínverja brytu Haf­rétt­ar­sátt­mál­ann þar sem umhverf­is­mat í sam­ráði við nágranna­ríki voru ekki fram­kvæmd. Dóm­stóll­inn opn­aði einnig fyrir ákvarð­ana­töku um rétt til fisk­veiða en Kína hefur m.a. meinað fil­ip­p­eyskum sjó­mönnum að veiða í litlum flóa sem er aflok­aður af hinum skeifu­laga Scarborough grynn­ingum. Aðfar­irnar þar hafa um margt minnt á Þorska­stríðið, þar sem risa­vaxin her­skip sigla utan í illa búna fiski­báta.

Varnarsáttmáli við Bandaríkin

Aðkoma Banda­ríkj­anna að deil­unni er marg­þætt. Að ósk Fil­ips­eyj­inga fór bandríski her­inn þaðan í burt árið 1992 og sagði skilið við risa­stór hern­að­ar­mann­virki eins og flota­stöð­ina Subic Bay. Stærstu bæki­stöð flug­hers­ins, Clark Airfield, var lokað eftir eld­gos í Pinatubo fjalli árið áður. Subic Bay var stærsta her­stöð Banda­ríkja­hers í Kyrra­haf­inu á seinni hluta 20. aldar. Þar má nú aftur sjá her­skip Banda­ríkja­manna leggj­ast bryggju og við­ræður eru í gangi við Fil­ips­eyjar um að opna þar aftur her­stöð.

Árið 2011 til­kynnti rík­is­stjórn Obama um áherslu­breyt­ingu í varn­ar­stefnu Banda­ríkj­anna. Horfið var frá Evrópu- og Mið Aust­ur­landa-miðarðri utan­rík­is­stefnu í átt til Kyrra­hafs­ins (e. Strategic Pivot). Einn helsti hvat­inn að nýrri stefnu er hern­að­ar­upp­bygg­ing Kína á þessum slóðum. Kína flytur inn helm­ing af allri olíu­þörf sinni og talið er að 80% fari um Malacca sund á milli Malasíu, Singapúr og Indónesíu. Á meðan Kín­verjar reyna að tryggja sigl­inga­leiðir sínar eru Banda­ríkin að lappa upp á gömul vina­tengsl á svæð­inu. Herstöð Banda­ríkj­anna í Singapúr skammt frá Malacca er þrándur í augum Kínverja.

BRP Sierra Madre

Einn áhuga­verð­asti angi deil­unnar er vera átta fil­ip­p­eyskra her­manna á skips­flaki sem strand­aði á Ayungin grynn­ing­unum rétt fyrir utan Prakka­striks­skerið þar sem Kín­verjar eru búnir að byggja flug­braut og mynd­ar­lega byggð. Skipið heitir BRP Sierra Madre og not­uðu Banda­ríkja­menn það í seinni heim­styrj­öld­inni áður en fil­ip­p­eyski her­inn fékk það til afnota.

Nú er flakið að ryðga í sundur og búa her­menn­irnir við söng­inn í kinnungnum og drepa tím­ann með því að hlusta á lýs­ingar af körfu­bolta­leikjum og dorga með veiða­færum gerðum úr afgangs­málmum úr skip­inu. New York Times birti ítar­lega grein um líf mann­anna sem fá að tala við konur sínar og börn einu sinni í viku í gegnum gervi­hnatt­ar­síma. Mat­ar­send­ing kemur einu sinni í mán­uði og hver her­maður dvelur um hálft ár í flak­inu. Alþjóða­dóm­stóll­inn neit­aði að álykta um hvort Kína mætti stjórna sigl­ingum til og frá skip­inu.

Spratly eyjar með öll sín skraut­legu nöfn og ein­mana eyja­skeggja munu án efa verða ein mik­il­væg­asta milli­ríkja­deilan í Austur-Asíu á næstu árum. Meiri spenna ríkir milli ann­arra ríkja eins og Japan, Kína, Kóreu og Víetnam. En það sem er hættu­legt við Spratly deil­una er að fil­i­peyski her­inn er illa búinn, banda­ríski sjó- og flug­her­inn er eins og naut í flagi og Kín­verska lan­helg­is­gæslan er eins og strangur kenn­ari í vit­lausri skóla­stofu. Aðkoma Alþjóða­dóm­stóls­ins í Haag að mál­inu hefur hrundið af stað ferli sem leitt getur til lausnar á grund­velli Haf­rétt­ar­sátt­mála SÞ.

Þangað til mun B-52 vélar Banda­ríkj­ann halda áfram að sveima yfir svæðið. Hroll­vekj­andi er að vita af þeim og banda­rískum tund­ar­spillum í þröngum sundum og grynn­ingum innan um kín­verska sjó­her­inn. Eins gott að það sé eng­inn flækju­fótur í því þrá­tefli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár