Skrautleg saga forsetakosninga

Kristinn Haukur Guðnason sagn­fræð­ingur horfði yfir far­inn vega í sögu for­seta­kosn­inga hér á landi.

For­seta­kosn­ingar hafa verið fátíðar á lýð­veld­is­tím­anum vegna þeirrar hefð­ar­reglu að eng­inn taki slag­inn gegn sitj­andi for­seta. Þetta hefur þó verið að breyt­ast á sein­ustu árum sam­fara breyttu almenn­ings­á­liti á stöðu for­set­ans. Í sumar verða haldnar fyrstu for­seta­kosn­ing­arnar í 20 ár þar sem sitj­andi for­seti er ekki í fram­boði.

1944 – Klaufalegt upphaf

Fyrstu for­seta­kosn­ing­arnar voru haldnar þann 17. Júní árið 1944 á Þing­völlum, á sjálfum lýð­veld­is­deg­inum. Forseti var þó ekki kos­inn af þjóð­inni heldur af alþing­is­mönnum og ólíkt þjóð­ar­at­kvæða­greiðslunni um stjórn­ar­skránna og sam­bands­slit­unum við Dani þá var kosn­ingin um for­set­ann alls ekki ein­róma.

Ákveðið var að for­seta­kjörið skyldi fara fram á sama hátt og kosn­ing for­seta sam­ein­aðs alþingis. Sveinn Björns­son hafði verið rík­is­stjóri Íslands síðan 1941 og þótti lang­lík­leg­astur til að vera kjör­inn for­seti en hann átti þó marga óvild­ar­menn á þingi. Á þessum tíma hafði utan­þings­stjórn sem Sveinn skip­aði setið við völd í u.þ.b. 18 mán­uði vegna þess að leið­togar íslensku stjórn­mála­flokk­anna gátu ekki myndað starf­hæfa rík­is­stjórn. Framboð hans var þó stutt af þing­mönnum Fram­sókn­ar­flokks og Alþýðu­flokks og var hann kjör­inn með 30 atkvæðum af 52.

Sjálf­stæð­is­menn og Sós­í­alistar höfðu aftur á móti engan fram­bjóð­anda sem þeir gátu komið sér saman um og því gengu þeir volgir til atkvæða­greiðsl­unnar. Jón Sig­urðs­son skrif­stofu­stjóri alþingis til 40 ára (1921-1956) fékk 5 atkvæði til for­seta Íslands. Hann var fyrst og fremst þekktur sem fræði­maður í íslenskum fræðum og þýð­andi og hafði m.a. þýtt verk norska rit­höf­und­ar­ins Knut Hamsun af stakri snilld. 15 þing­menn ákváðu aftur á móti að skila auðu í fyrstu for­seta­kosn­ingum Íslands­sög­unnar og 2 voru fjar­ver­andi vegna veik­inda. Því var Sveinn Björns­son kos­inn for­seti Íslands með sléttum 60% atkvæða á meðan ný stjórn­ar­skrá og afnám sam­bands­lag­anna voru sam­þykkt með um 99% atkvæða. Þótti þetta viss hneisa. Sveinn fór aftur í fram­boð til for­seta Íslands ári seinna og svo árið 1949 og var þá sjálf­kjör­inn án mót­fram­boðs. Þar má segja að skap­ast hafi visst for­dæmi í íslenskri stjórn­mála­sögu, eins konar hefð­ar­regla um að sitj­andi for­seti fengi ekki mót­fram­boð.

1952 – Forsetakosning í skotgröfunum

Sveinn Björns­son lést í emb­ætti snemma árs árið 1952 og þar sem Íslend­ingar hafa ekki vara­for­seta var blásið til for­seta­kosn­inga þá um sum­arið. Mörg fyr­ir­menni voru strax orðuð við emb­ættið, bæði póli­tísk og ópóli­tísk. Má þar helst nefna Halldór Kiljan Laxness, Jónas frá Hriflu, Thor Thors, Stein­grím Stein­þórs­son, Jón Pálmason og Sigurð Nordal. Flest var þetta þó úr lausu lofti gripið. Í fram­boði voru loks Ásgeir Ásgeirs­son, séra Bjarni Jónsson og Gísli Sveins­son. Ásgeir og Gísli áttu báðir langan þing­feril að baki. Ásgeir hafði setið sem for­sætis og fjár­mála­ráð­herra á fjórða ára­tugnum fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn en hafði síðan um langt skeið verið þing­maður Alþýðu­flokks­ins í Vestur-Ísa­fjarð­ar­sýslu.

Gísli hafði setið fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn í Vestur-Skafta­fells­sýslu og m.a. verið for­seti sam­ein­aðs alþingis um stund. Séra Bjarni var upp­al­inn Reyk­vík­ingur sem hafði t.a.m. verið dóm­kirkju­prestur og síðar vígslu­biskup í Skál­holti frá árinu 1937. Ásgeir var tölu­vert yngri en Gísli og séra Bjarni sem báðir voru komnir á átt­ræð­is­aldur. Kosn­ing­arnar árið 1952 eru alræmdar fyrir það hversu harð­vít­ugar og flokkspóli­tískar þær voru og blöðin hrein­lega log­uðu í áróðri. Menn voru vændir um lygar, lág­kúru og stjórn­mála­legt pot. Jafnvel var talað um að rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­manna og Fram­sókn­ar­manna segði af sér ef þeirra fram­bjóð­andi yrði undir í kosn­ing­unni. Vinstri­menn og þá sér­stak­lega Alþýðu­flokks­menn fylktu sér bak­við Ásgeir en Sjálf­stæð­is­menn og Fram­sókn­ar­menn studdu séra Bjarna.

Það fór svo að Ásgeir vann sigur með 48,3% atkvæða en séra Bjarni hlaut 45,5%. Ásgeir hafði mest fylgi á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og svo Vest­fjörðum en Bjarni hafði meira fylgi á lands­byggð­inni. Gísli fékk ein­ungis 6,2% og þar af lang­mest úr Skafta­fells­sýslum. Það verður þó að telj­ast lík­legt að Gísli hafi “eyði­laggt” kosn­ing­arnar fyrir flokks­fé­lögum sínum og að þorri kjós­enda hans hefði að öðrum kosti kosið séra Bjarna og þar með tryggt honum sig­ur­inn. Mögulega hefur honum þó þótt það mátu­legt á þá fyrir að styðja sig ekki. Í mál­gagni Sjálf­stæð­is­manna, Morg­un­blað­inu stóð m.a. „Allir þjóð­hollir Íslend­ingar kjósa séra Bjarna Jónsson.” En þó að mik­ill styr hafi staðið um kjör Ásgeirs Ásgeirs­sonar í þessum fyrstu lýð­ræð­is­legu for­seta­kosn­ingum Íslands þá var hefð­inni haldið áfram og hann end­ur­kjör­inn án mót­fram­boðs í þrí­gang, árin 1956, 1960 og 1964. Hann gaf ekki kost á sér árið 1968 og lést svo fjórum árum síðar.

1968 – Heiðursmannakosning

Kosn­ing­arnar árið 1968 voru að miklu leyti algjör and­staða við kosn­ing­arnar 16 árum áður. Fram­bjóð­end­urnir voru ein­ungis tveir. Annars vegar Gunnar Thorodd­sen sem átti langan feril í stjórn­málum fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Hann hafði verið borg­ar­stjóri, fjár­mála­ráð­herra og loks sendi­herra í Danmörku. Hann hafði einnig sér­stök tengsl við for­seta­emb­ættið þar sem Ásgeir Ásgeirs­son frá­far­andi for­seti var tengda­faðir hans. Hins vegar Kristján Eldjárn, forn­leifa­fræð­ingur og þjóð­minja­vörður, sem engin afskipti hafði haft af stjórn­málum en var vin­sæll vegna fræði­þátta sem hann stýrði í Rík­is­sjón­varp­inu. Kosn­inga­bar­áttan var lág­stemmd og virðu­leg og reynt að halda henni utan hins póli­tíska þras. Dag­blöðin tóku ekki ein­arða afstöðu með eða á móti fram­bjóð­end­unum eins og 1952. Engu að síður virt­ust flokkspóli­tískar deilur krauma undir niðri og reynt var að spyrða Krist­jáni við vinstri flokk­ana.

Nú var almenn­ings­á­litið á þá veru að for­seta­emb­ættið ætti að vera hafið yfir stjórn­mál. Forseti ætti að vera lands­faðir (eða móðir) sem tæki á engan hátt þátt í stjórn­málum og væri í raun for­svari allra lands­manna. Ekki tókst að klína neinu á Kristján í kosn­inga­bar­átt­unni og hann vann yfir­burða­sigur með tæpum 66% atkvæða en Gunnar hlaut rúm 34%. Þessi yfir­burða­sigur kom fólki tölu­vert á óvart því að þótt Gunnar ætti langan feril í póli­tík að baki þá þótti hann lands­föð­urs­legur og átti stuðn­ings­menn úr röðum ann­arra flokka. Gunnar fékk mestan stuðn­ing í Reykja­vík þar sem hann var fæddur og upp­al­inn og hafði verið borg­ar­stjóri í 13 ár. Kristján, sem ætt­aður var úr Svarf­að­ar­dalnum, fékk aftur á móti mestan stuðn­ing á lands­byggð­inni þó hvergi færi fylgi hans undir 60%, ekki einu sinni í Reykja­vík. Líkt og for­verar sínir var Kristján end­ur­kjör­inn án mót­fram­boðs árin 1972 og 1976.

1980 – Kosningar í heimsfréttunum

Kristján Eldjárn gaf ekki kost á sér árið 1980 og því ljóst að for­seta­kosn­ingar yrðu haldnar það árið. Senni­lega hefði það þó alltaf verið óum­flýj­an­legt því að Albert Guð­munds­son var byrj­aður að skipu­leggja fram­boð áður en Kristján til­kynnti ákvörðun sína. Albert var á þessum tíma bæði alþing­is­maður og borg­ar­full­trúi fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn og hafði áður verið atvinnu­maður í knatt­spyrnu víða um Evrópu. Hann átti þó stuðn­ings­menn úr öllum flokkum, m.a. vegna starfs síns innan íþrótta­hreyf­ing­ar­innar, í við­skipta­líf­inu og í borg­ar­stjórn­ar­mál­unum. Þrír aðrir fram­bjóð­endur gáfu kost á sér. Guð­laugur Þor­valds­son þáver­andi rík­is­sátta­semj­ari og áður rektor Háskóla Íslands.

Pétur J. Thor­steins­son lög­fræð­ingur sem hafði lengst af starfað í utan­rík­is­þjón­ust­unni um víða ver­öld og verið sendi­herra. Loks Vigdís Finn­boga­dóttir leik­hús­stjóri Leik­fé­lags Reykja­víkur og frönsku­fræð­ingur. Vigdís fékk mestu athygl­ina, ekki ein­ungis vegna þess að hún var fyrsti kven­for­seta­fram­bjóð­and­inn á Íslandi. Heldur einnig vegna þess að hún gat orðið fyrsti þjóð­kjörni kven­for­seti heims­ins. Kosn­inga­bar­áttan var ekki öll á ljúfu nót­unum og beindust spjótin einna helst að Vigdísi. Það var t.d. gagn­rýnt að hún væri ein­hleyp og að hún hefði tekið þátt í mót­mælum gegn varn­ar­lið­inu á Kefla­vík­ur­flug­velli.

Hægri­mönnum, mörgum hverjum, þótti hún helst til mikið til vinstri þó að hún hefði ekki tekið virkan þátt í stjórn­mála­starfi á ferli sínum heldur ein­göngu sinnt menn­ingu, listum og kennslu. Kosn­ing­arnar sjálfar urðu mjög spenn­andi og mjótt var á mun­unum milli Vigdísar og Guðlaugs. Vigdís var kjörin með ein­ungis þriðj­ungs­fylgi (tæp 34%) en Guð­laugur hlaut rúm 32%. Albert fékk ekki nema tæp­lega 20% og Pétur rúm 14%. Þrátt fyrir allt voru ekki nema tæp­lega 20% munur milli efsta og neðsta fram­bjóð­anda. Vigdís hafði mest fylgi á lands­byggð­inni, þá sér­stak­lega Aust­ur­landi. Guð­laugur hafði aftur á móti mest fylgi allra á Reykja­nesi og Norð­ur­landi eystra. Vigdís var end­ur­kjörin án mót­fram­boðs í tvígang, árið 1984 og 1992. En árið 1988 er merki­legt fyrir þær sakir að í fyrsta skipti kom fram mót­fram­boð gegn sitj­andi for­seta.

Sigrún Þor­steins­dóttir hús­móðir úr Vest­manna­eyjum bauð sig fram til þess að „virkja for­seta­emb­ættið”, þ.e. nýta valds­heim­ildir stjórn­ar­skrár­innar enn fremur. Það er skemmst frá því að segja að fram­boðið sjálft var alger­lega mis­heppnað. Kosn­inga­þátt­taka var lítil og Sigrún fékk ein­ungis um 5% fylgi. Fólk var almennt hneykslað á „ósvífni” Sigrúnar og kostn­að­inum sem fylgdi þess­ari von­lausu bar­áttu hennar. Engu að síður voru þetta tíma­mót, hefð­ar­reglan hafði verið brotin.

1996-2012 – Breyttir tímar Ólafs

Árið 1996 var ljóst að Vigdís Finn­boga­dóttir myndi ekki gefa áfram kost á sér og því voru haldnar kosn­ingar. Fimm fram­bjóð­endur stigu fram á völl­inn en einn af þeim, Guðrún Pét­urs­dóttir dós­ent við Háskóla Íslands dró fram­boð sitt til baka skömmu fyrir kosn­ingar. Fyr­ir­ferða­mesta nafnið á kjör­seðl­inum var Ólafur Ragnar Grímsson. Hann hafði komið víða við í póli­tík á tæp­lega 30 ára ferli sínum í ýmsum flokkum og meðal ann­ars setið sem fjár­mála­ráð­herra fyrir Alþýðu­banda­lagið um skeið. Hann hafði því breitt póli­tískt fylgi. Hann var þó ekki sá eini sem kom úr heimi stjórn­mál­anna því að Guðrún Agn­ars­dóttir hafði setið sem alþing­is­maður fyrir Kvenna­list­ann.

Fulltrúi hægri­manna var Pétur Kr. Hafstein, hæsta­rétt­ar­dóm­ari og fyrrum sýslu­maður, en hafði þó haft lítil bein afskipti af stjórn­málum. Þessir þrír fram­bjóð­endur háðu jafna og nokkuð spenn­andi bar­áttu sem lauk með því að Ólafur fékk rúm­lega 41% fylgi, Pétur tæp 30% og Guðrún rúm 26%.

Boð­flennan í partí­inu var svo Ástþór Magn­ús­son sem fékk undir þrjú pró­sent fylgi en fram­boð hans fékk þó þeim mun meiri athygli. Ástþór, sem kom úr við­skipta­líf­inu, hafði komið á fót mann­úð­ar­sam­tök­unum Friði 2000 og hugð­ist nota for­seta­emb­ættið til að vekja athygli á þeim mál­stað. Ólafur var sjálf­krafa end­ur­kjör­inn árið 2000 eftir að Ástþóri mistókst að tryggja sér nægi­legan fjölda með­mæl­enda.

Eftir 8 ára setu virt­ist því fer­ill Ólafs ætla að fara í sama far og for­vera hans, þ.e. að halda for­seta­emb­ætt­inu utan stjórn­mál­anna. En árið 2004 kastaði hann sprengju með synjun fjöl­miðla­lag­anna svoköll­uðu. Það var alger­lega óheyrt að for­seti beitti stjórn­ar­skrár­legum heim­ildildum sínum á þennan hátt og þetta kom einmitt upp á kosn­inga­ári. Ólafur hafði skyndi­lega eign­ast mik­inn fjölda óvina innan rík­is­stjórn­ar­flokk­anna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks.

En þeir gátu þó ekki komið sér saman um fram­bjóð­anda gegn Ólafi. Þó steig hinn til­tölu­lega óþekkti Baldur Ágústs­son fram til­kynnti að hann ætl­aði að “end­ur­heimta virð­ingu for­seta­emb­ætt­is­ins” Ólafur var end­ur­kjör­inn með tveimur þriðju greiddra atkvæða en Baldur hlaut þó tæp­lega 10%. And­stæð­ingar Ólafs kusu frekar að láta óánægju sína í ljós með því að skila auðu, rúm­lega 20% tals­ins. Ástþór var aftur með en nú náði hann ekki tvö pró­sent mark­inu. Ólafur var end­ur­kjör­inn án mót­fram­boðs árið 2008.

Eftir að Ólafur hafði synjað fleiri lögum stað­fest­ingar í tíð vinstri stjórn­ar­innar á árunum eftir hrun var ljóst að for­seta­emb­ættið var orðið gjör­breytt og rammpóli­tískt. Nú hafði hann þó skipt um aðdá­enda­hóp og vinstri­menn þeir sem höfðu mest horn í síðu hans. Í for­seta­kosn­ing­unum árið 2012 kom því lang­harð­asta atlaga að sitj­andi for­seta frá upp­hafi. Í skoð­ana­könn­unum fyrir kosn­ing­arnar hafði Þóra Arn­órs­dóttir, fjöl­miðla­kona, tölu­vert for­skot á for­set­ann. En það fylgi dal­aði er nær dró og Ólafur vann end­ur­kjörið með tæpum 53% greiddra atkvæða en Þóra hlaut rúm­lega 33%. Kosn­inga­þát­taka var þó dræm eins og í mörgum öðrum kosn­ingum á síð­ast­liðnum árum. Fjórir aðrir fram­bjóð­endur stigu fram árið 2012 og af þeim náði Ari Trausti Guð­munds­son jarð­fræð­ingur lang­mestu fylgi eða tæp­lega 9%. Herdís Þor­geirs­dóttir lög­fræð­ingur, Andrea J. Ólafs­dóttir áður for­maður Hags­muna­sam­taka heim­il­anna og Hannes Bjarna­son land­fræð­ingur náðu sam­an­lagt um 5 pró­sent. Framboð Ástþórs var dæmt ógilt vegna form­legra van­kanta.

2016?

For­seta­kosn­ingar á Íslandi eru sjald­gæfur hlutur. Einungis sjö sinnum hefur þjóðin fengið að velja sér for­seta og ein­ungis í fimm skipti hefur kosn­ingin verið spenn­andi. Það sem hefur ein­kennt íslenska for­seta­emb­ættið eru hinar löngu setur.

Sveinn Björns­son sat skemmst á for­seta­stóli en samt í u.þ.b. tvö kjör­tíma­bil. Kristján sat í þrjú kjör­tíma­bil, Ásgeir og Vigdís í fjögur og Ólafur í fimm. Vegna þess hversu langt er á milli kosn­ing­anna, hversu ein­stak­lings­bundnar þær eru og að þær liggja ekki í hinum hefð­bundnu flokkslínum þá verða þær allar mjög sér­stakar. Hið klaufa­lega kjör Sveins Björns­sonar, hin ill­víga og rætna kosn­ing Ásgeirs Ásgeirs­sonar, hin virðu­lega kosn­ing Krist­jáns Eldjárns, hin heims­fræga kosn­ing Vigdísar Finn­boga­dóttur og svo hinar bitru kosn­ingar Ólafs Ragnars Gríms­sonar. Allt eru þetta merki­legir kaflar í sögu lýð­veld­is­ins Íslands og sýna það að emb­ættið er ennþá í þróun. Það er þó ljóst að reglur og vald­svið for­set­ans eru ekk­ert sér­stak­lega vel hönnuð eða að minnsta kosti ekki fyrir 21. öld­ina.

Virðing almenn­ings fyrir stofn­unum og emb­ættum er minni en hún var fyrir 70 árum síðan og fólk er farið að líta á for­seta­emb­ættið sem verk­færi frekar en virð­ing­ar­stöðu. Fjöl­margir hafa lýst yfir áhuga á fram­boði til for­seta 2016 og sumir þegar til­kynnt fram­boð. Hvernig þeir hyggj­ast nota valdið sem þeim yrði falið verður því aðal­spurn­ing kosn­inga­bar­átt­unnar og við verðum að treysta fram­bjóð­endum til að standa við þau lof­orð. Áttundu for­seta­kosn­ing­arnar verða von­andi skemmti­legar og spenn­andi. Við getum búist við met­fjölda fram­bjóð­enda þetta árið. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár