Mikill titringur í skólakerfinu - Niðurskurður í borginni gæti bitnað beint á faglegu starfi

Nið­ur­skurð­ar­krafan í skóla- og frí­stund­ar­starfi Reykja­vík­ur­borgar hefur leitt til mik­ils titr­ings innan skóla­kerfis borg­ar­innar. Sér­kennsla gæti skorist veru­lega niður, skóla­starf orðið ein­hæf­ara.

Áform Reykja­vík­ur­borgar, um að ná fram 670 millj­óna hag­ræð­ingu í skóla- og frí­stund­ar­starfi, hefur leitt til mik­ils titr­ings og óánægju inn í skóla­kerfi borg­ar­innar, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans. Skóla­stjórn­endur ótt­ast að þessi mikla hag­ræð­ing­ar­krafa muni höggva beint í fag­legt starf, og bitna þannig á börnum í skólum beint. Sér­stak­lega ótt­ast skóla­stjórn­endur að sér­kennsla geti skorist veru­lega niður.

Ber hratt að

Fjár­hags­á­ætl­anir skól­anna, sem þar sem skóla­starf­inu eru settar fjár­hags­legar skorður, hafa ekki verið upp­færðar í sam­ræmi við hraða hækkun launa kenn­ara en á næstu þremur árum munu þau hækka um á bil­inu 20 til 30 pró­sent, sé miðað við samn­inga sem und­ir­rit­aðir voru í fyrra og á þessu ári. Í ljósi þess að launa­kostn­aður er lang­sam­lega stærsti kostn­að­ar­lið­ur­inn í rekstri skóla­starfs­ins, þá kemur hækk­unin hratt inn í grunn­rekstur, sem setur fjár­hags­á­ætl­anir úr skorðum, nema að gripið verði til nið­ur­skurðar. Þar koma helst til greina upp­sagnir á starfs­fólki, og fjölgun nem­enda í bekki, en slíkt vilja skóla­stjórn­endur forð­ast enda víða full­skipað í skóla, sé mið tekið af almennum við­miðum um fjölda á hvern kenn­arra.

Krafa um 1,8 milljarða hagræðingu

Stefnt er á að afgreiða fjár­hags­á­ætlun fyrir næsta ár í dag, en fram hefur komið í máli Dags B. Egg­erts­sonar borg­ar­stjóra að gerð sé krafa um 1,8 millj­arða hag­ræð­ingu í rekstri, til þess að ná endum saman í grunn­rekstr­inum. Miklar launa­hækk­anir hjá starfs­fólki borg­ar­innar, sem samið hefur verið um, munu hafa mikil áhrif á grunn­rekstur borg­ar­innar, og fyr­ir­séð að verð­skrár borg­ar­innar, þegar kemur að ýmissi þjón­ustu, munu vafa­lítið end­ur­skoð­ast upp á við.

8,7 milljarða skekkja

Samkvæmt rekstr­ar­nið­ur­stöðu Reykja­vík­ur­borgar á fyrstu níu mán­uðum árs­ins þá var 2,4 millj­arða króna tap af rekstr­inum, en í áætl­unum hafði verið gert ráð fyrir jákvæðri nið­ur­stöðu upp á 6,3 millj­arða króna.

Rekstr­arnið­ur­staða A-hluta starf­sem­innar, þar sem grunn­rekst­ur­inn er, var nei­kvæð um 8,5 millj­arða króna en áætl­un gerði ráð fyr­ir að hún yrði já­kvæð um 287 millj­ón­ir á tíma­bil­inu. Lak­ari af­koma skýrist að lang­stærst­um hluta af gjald­færslu líf­eyr­is­skuld­bind­inga upp á tíu millj­arða króna, eða um 8,3 millj­örðum króna um­fram áætl­um.

Grunnreksturinn samt þungur

Rekstr­arnið­ur­staða án gjald­færslu líf­eyr­is­skuld­bind­ing­ar var já­kvæð um 1,5 millj­arða, sem er 503 millj­ón­um króna lak­ari nið­ur­staða en áætl­un gerði ráð fyr­ir. Launa­hækk­anir, sem nú hefur verið samið um, munu síðan stöð­una enn erf­ið­ari, og þrýsta á um hag­ræð­ingu í rekstri.

Gjald­færsla líf­eyr­is­skuld­bind­ing­ar bygg­ist á upp­færðu mati á gjald­færslu fyr­ir árið 2015. Þar er lagt mat á áhrif launa-, verð­lags- og vaxta­þátta og að auki er gert ráð fyr­ir að við upp­gjör líf­eyr­is­sjóða fyr­ir árið 2015 verði not­aðar breytt­ar for­send­ur um lífs­lík­ur sem leiða til hækk­un­ar gjald­færslu.

Fram hefur komið í máli Dags B. Egg­erts­sonar, að hann von­ist eftir því að það tak­ist að koma rekstr­inum á réttan kjöl, en ljóst sé að það sé krefj­andi verk­efni, meðal ann­ars vegna þess að stórir liðir í kostn­aði, eins og laun, séu að hækka skarpt á skömmum tíma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Skólamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár