Hryðjuverkin í París og hið mjúka vald

Hryðju­verkin í París á föstu­dags­kvöld, þar sem hryðju­verka­menn Íslamska rík­is­ins myrtu að minnsta kosti 129 sak­lausa borg­ara og særðu mik­inn fjölda, hafa kallað fram sterk við­brögð út um allan heim. Áberandi eru hóf­stillt við­brögð þar sem lögð er áhersla á að láta ekki þessa atburði verða vatn á myllu hat­urs og tor­tryggni. Slíkt leiði til enn meira ofbeldis, lok­aðra sam­fé­lags og megi í reynd túlka sem sigur ódæð­is­mann­anna.

Hitt heyr­ist líka, að nú verði að herða tökin gegn óværunni Íslam, beita meiri hörku ef takast eigi að kveða hana niður. François Hollande Frakk­lands­for­seti lýsti yfir „mis­kunn­ar­lausum“ aðgerðum gagn­vart Íslamska rík­inu á fundi með yfir­stjórn franska hers­ins morg­un­inn eftir ódæðin.

Hér stendur ekki bara Frakk­land heldur heim­ur­inn frammi fyrir erf­iðri grund­vall­ar­spurn­ingu þar sem miklu skiptir í hvora átt­ina vötn muni falla. Það er skilj­an­legt að þjóð­ar­leið­togar sýni hörð við­brögð og grípi til sterkra orða á ögur­stundu, því ekki vilja menn vera vændir um lin­kind í þessum efnum. Hætta er þó á því að ef of hratt er fram gengið, gætum við horft upp á stig­mögnun stríðs­á­taka og þá er verr af stað farið en heima setið.

Hvers vegna hryðjuverk, hvers vegna Frakkland?

Á því er engin ein skýr­ing, nefnt hefur verið að mik­ill fjöldi inn­flytj­enda í Frakk­landi hefur átt erfitt með aðlögun að sam­fé­lagi sem er mis- og stétt­skipt þar sem mikil ólga ríkir undir niðri. Jafn­framt hafa Frakkar haft sig einna mest í frammi meðal Evr­ópu­ríkja í hern­að­ar­í­hlut­unum í Mið-Aust­ur­löndum og Afríku. Þeir hafa tekið þátt í hern­aði gegn öfgasinn­uðum íslömskum hópum í Írak en jafn­framt gengið til liðs við þau ríki sem berj­ast gegn Íslamska rík­inu í Sýrlandi. M.a. gerði franski her­inn loft­árásir á olíu­hreins­un­ar­stöð undir stjórn Íslamska rík­is­ins í síð­asta mán­uði.

Harðar yfir­lýs­ingar Hollande Frakk­lands­for­seta eru því tæp­lega alveg nýjar eða óvæntar fréttir fyrir Íslamska ríkið, sem hefur fyrir all­nokkru lýst yfir heilögu stríði við Vest­ur­lönd. Dráp á sak­lausu fólki eru í raun heldur ekki nýjar fréttir því sam­kvæmt árs­gömlum tölum höfðu Banda­ríkja­menn gert 47 dróna­árásir á und­an­förnum árum sem beint var að til­teknum leið­togum Talíbana í Pakistan og Jemen. Af þessum 47 mönnum eru nokkrir enn á lífi en árás­irnar hafa kostað meira en 1100 manns lífið, sak­lausa borg­ara – í einni slíkri árás lét­ust 128 manns, þar af 14 börn.

Frakkar hafa reyndar ekki verið atkvæða­miklir sjálfir í dróna­árásum og hér er ekki alls ekki reynt að rétt­læta hin hræði­legu voða­verk sem framin voru á föstu­dags­kvöldið, þótt mik­il­vægt sé að skoða hvað geti búið þarna að baki.

Hvernig er hægt að bregðast við?

Það er eng­inn skortur á stríðsæs­inga­mönnum og m.a. hefur einn fram­bjóð­enda í for­vali Repúblík­ana til for­seta­fram­boðs í Banda­ríkj­unum kallað eftir auk­inni hörku gagn­vart hryðju­verka­mönnum, eins og loft­árásum þar sem aflétt er kröfum um að forð­ast mann­fall almennra borg­ara.

Kröfur um aðgerðir geta verið háværar og það er hæg­ara sagt en gert fyrir þjóð­ar­leið­toga að freist­ast ekki til blása í her­lúðra, því her­farir í nafni frelsis og lýð­ræðis eru prýði­legt elds­neyti á bál póli­tískra vin­sælda. Þó er ljóst að sporin hljóta að hræða því slíkar her­farir hafa sjaldn­ast gengið vel né getið af sér frið, hvað þá kveðið ofbeld­is­öflin niður til lengdar. Það hefur nefni­lega komið á dag­inn að fíla­byssan virkar ekki eins vel og margir vilja meina á mýflugnagerið.

Orð Hollande um stríð og mis­kunn­ar­lausar aðgerðir minna óþægi­lega á orð George W. Bush Banda­ríkja­for­seta í kjöl­far hryðju­verk­anna á Banda­ríkin 11. sept­em­ber árið 2001, þegar lýst var yfir stríði á hendur hryðju­verkum, „War on Terror“. Sú her­för hefur almennt þótt mikið feigð­ar­flan og sýnt hefur verið fram á að þær aðgerðir og inn­rásin í Írak séu í raun orsök og það sem knúið hefur fram­gang Íslamska rík­is­ins.

Árás­irnar voru not­aðar til að rétt­læta stríðið gegn hryðju­verkum. Þá fór­ust tæp­lega 3000 manns og tjón var hátt í 180 millj­arðar banda­ríkja­dala. Þær tölur blikna þó í sam­an­burði við van­hugs­aða inn­rás í Írak þar sem um 4500 banda­ríkja­menn lét­ust og yfir 32 þús­und særð­ust. Í því til­gangs­lausa stríði féllu einnig hund­ruð þús­unda Íraka auk þeirra sem eiga um sárt að binda — í stríði sem kost­aði þrjár billjónir doll­ara, sem er 17 falt tjónið af árás­unum 11. sept­em­ber 2001.

Hið mjúka vald

Ljóst er því að hern­að­ar­máttur mun ekki duga einn og sér gegn þeirri ógn sem steðjar frá Íslamska rík­inu, því þrátt fyrir að henni sé nú lýst sem þeirri mestu sem heims­byggðin stendur frammi fyrir, er hern­að­ar­máttur sam­tak­anna minni en tveggja her­deilda í Banda­ríska hernum. Vert er að skoða hið mjúka vald og hvernig nýta má kenn­ingar um það í þess­ari bar­áttu. Nú kunna ein­hverjir að hrista haus­inn í van­trú — eins og það þýði eitt­hvað að bjóða svona öfga­mönnum hinn vang­ann.

Joseph S. Nye, virtur fræði­maður í alþjóða­sam­skiptum við Harvard háskóla, sá sem mest hefur mótað umræð­una um hið mjúka vald, segir vald vera get­una til að láta hegðun ann­arra lúta vilja sínum. Hann segir í grunn­inn vera þrjár leiðir til þess: þvingun með beinu valdi, með umbun og loks með aðlöðun – hinu mjúka valdi – þar sem til­vist og hegðun til­tek­ins ein­stak­lings, hóps eða leið­toga laðar að fólk, þjóðir eða ríki, sem vilja fylgja for­dæmi hans.

Hið mjúka vald er þá í raun and­stæða hins hefð­bundna valds sem byggir á hern­að­ar­mætti. Nærtækt er að taka dæmi af Banda­ríkj­unum, því um leið og þau búa yfir gríð­ar­legum hern­að­ar­mætti þá eiga þau mikið af hinu svo­kall­aða mjúka valdi. Banda­ríkin hafa dregið fólk að frá öllum kimum heims­ins og getið af sér eitt öfl­ug­asta mennta- og menn­ing­ar­sam­fé­lag ver­aldar.

Þegar sagan er skoðuð krist­all­ast einmitt sá sann­leikur sem smám saman hefur verið að renna upp fyrir fólki, að hern­að­ar­máttur er ekki endi­lega best til þess fall­inn að leysa deilu­mál og binda enda á átök. Þær mis­heppn­uðu her­farir sem Banda­ríkja­menn hafa lagt í á und­an­förnum ára­tugum hafa frekar veikt stöðu þeirra sem heims­veldis en hitt, því þær hafa grafið undan því mjúka valdi sem Banda­ríkin búa yfir.

Hvernig verður hið mjúka vald til?

Hið mjúka vald á sér m.a. upp­sprettu í menn­ingu ríkis eða þjóðar og þá í þeim hluta hennar sem verkar aðlað­andi í augum ann­arra. Um getur verið að ræða menn­ingu í víðum skiln­ingi en einnig hefð­bund­inn skiln­ing á menn­ingu og listum — og ekki síst dæg­ur­menn­ingu. Frakk­land og París eru til að mynda gríð­ar­lega eft­ir­sókn­ar­verðir staðir í augum umheims­ins og ástæða þess er að ein­hverju leyti dæg­ur­menn­ingin eða ímynd hennar, eðalvín, sæl­kera­matur, húsin og feg­urð mann­lífs­ins í heild.

Jafn­framt byggir hið mjúka vald á þeim póli­tísku gildum sem ástunduð eru heima og heiman. Frakkar geta sem dæmi stært sig af því að þar sé vagga lýð­ræð­is­ins en þó má spyrja hvort mis­skipt­ing í sam­fé­lagi þeirra, sér í lagi borgum sé að koma þeim í koll nú. Þeir hafa jafn­framt ætíð lagt áherslu á að vera fram­ar­lega á hern­að­ar­svið­inu, m.a. með upp­bygg­ingu kjarn­orku­vopna, að miklu leyti til að auka vægi og virð­ingu lands­ins á alþjóða­vísu.

Í þeirri við­leitni hafa Frakkar sann­ar­lega ekki komið fram sem boð­berar frelsis, jafn­réttis og bræðra­lags – en þó má ekki gleyma því að Frakkar voru mjög and­vígir inn­rás Banda­ríkja­manna í Írak og hlutu virð­ingu fyrir þá afstöðu sína þegar upp var staðið.

Á meðan Banda­ríkja­menn hafa lagt áherslu á hern­að­ar­lega upp­bygg­ingu og vopna­vald má segja að Evrópa í heild sé á ákveð­inn hátt ímynd hins mjúka valds í heim­inum. Þar hafa fram­lög til hern­að­ar­upp­bygg­ingar farið minnk­andi með árunum og hefur fólk lagt sig fram um að þróa frið­sam­legar lýð­ræð­is­hug­myndir öðrum til fyr­ir­myndar. Norð­ur­löndin eru þar fram­ar­lega í flokki og má m.a. vísa í við­brögð norskra yfir­valda í kjöl­far ódæð­is­verk­anna í Útey og Osló árið 2011.

Enn­fremur getur hið mjúka vald verið sprottið úr utan­rík­is­stefn­unni, þegar hún er álitin lög­mæt og talin hafa ein­hvers­konar móralskt yfir­vald. Smáríki geta þannig skapað sér vægi (og vald) í alþjóða­sam­skiptum með skýrri stefnu þar sem orð fylgja athöfnum, því eins og komið hefur fram þá er grunn­stefið í mjúku valdi það að hinir vilji gera og vera eins og þú. Rann­sóknir hafa einmitt sýnt að meira að segja Banda­ríkin geta lagað utan­rík­is­stefnu sína að þeim gildum sem höfð eru í heiðri hjá nánum sam­starfs­ríkjum. Barack Obama lýsti því nýlega yfir að líta megi á Norð­ur­löndin sem fyr­ir­mynd og ef fleiri ríki færu að ráði þeirra, væru vanda­mál heims­ins færri.

Gagnrýni

Kenn­ingar um hið mjúka vald hafa m.a. verið gagn­rýndar fyrir að vera of teygj­an­legar til að vera not­hæfar og Niall Ferguson svo gott sem afskrifar hið mjúka vald á þeim for­sendum að það sé mjúkt. Á sama hátt segja sumir erfitt að meta mik­il­vægi hins mjúka valds fyrir ríki vegna þess hversu erfitt sé að mæla vægi þess — öfugt við t.d. hern­að­ar­mátt sem mæla má í fjölda orr­ustu­þota eða kjarna­odda.

Nye telur þetta mis­skiln­ing því það leiði menn í ógöngur að halda að aðeins það sem hægt sé að missa á tærnar á sér (eða varpa á borgir) hafi ein­hverja vigt. Það sé vel mögu­legt að mæla hið mjúka vald, það megi auð­veld­lega mæla menn­ing­ar­leg og diplómat­ísk áhrif, m.a. með skoð­ana­könn­unum. Jafn­framt sé ekki jafn auð­velt að mæla vægi vopna­valds eins og haldið hafi verið fram. Í því sam­hengi má benda á að Banda­ríkja­menn töp­uðu fyrir N-Víetnam þrátt fyrir að hafa gríð­ar­lega hern­að­ar­lega yfir­burði.

Hugsjónir verða ekki brotnar á bak aftur með vopnavaldi

Vestrænt sam­fé­lag og hugs­un­ar­háttur er síður en svo full­komið og eitt­hvað sem allir jarð­ar­búar eiga að laga sig að, en þó er mik­il­vægt að verja óum­deild gildi sam­fé­lags­ins sem m.a. snú­ast um mann­rétt­indi. Svo virð­ist að hversu mikið sem menn víg­bú­ast þá verða hug­sjónir seint brotnar á bak aftur með vopna­valdi. Raunar má nefna Íslamska ríkið sem dæmi um einmitt þetta. Þótt veikja megi starf­semi sam­tak­anna með beit­ingu vopna tíma­bundið, munu vopn seint eyða hug­mynda­fræð­inni sem að baki liggur eða leiða til sig­urs. Ef hugsað er til lengri tíma virð­ist leiðin til að kveða niður öfga­öfl frekar vera sú að laða „hina“ til að vilja verða eins og „við“ – það er merg­ur­inn máls­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár