Topp 10 - Heimsóknir þjóðhöfðingja

Íslend­ingar alltaf tekið á móti erlendum þjóð­höfð­ingjum með stakri prýði. Kristinn Haukur Guðnason fer yfir tíu eft­ir­minni­leg­ustu opin­beru heim­sókn­irnar á Íslandi.

Þegar frægir útlend­ingar koma hingað grípur oft um sig ákveðið fár og þá sér­stak­lega þegar erlendir þjóð­höfð­ingjar mæta. Við höfum þó alltaf tekið á móti þeim með stakri prýði, sama hver á í hlut. Hér er farið yfir 10 eft­ir­minni­leg­ustu opin­beru heim­sókn­irnar á Íslandi.

10. David Ben Gurion – 1962

Hinn aldni for­sæt­is­ráð­herra og lands­faðir Ísra­els­ríkis heim­sótti Ísland ásamt konu sinni Paulu og fylgd­ar­liði í sept­em­ber 1962. For­sæt­is­ráð­herr­ann Ólafur Thors tók á móti þeim á Reykja­vík­ur­flug­velli og upp­hófst þá ein und­ar­leg­asta ást­ar­saga íslenskra utan­rík­is­mála. Ólafur og Ben Gurion urðu miklir mátar og gátu vart slitið sig frá hvorum öðrum. Þeir jusu stans­laust lofi hver á annan og grín­uð­ust mikið, báðir með hár­greiðslu sem minnti helst á brjál­aða vís­inda­menn úr bíó­myndum. Þeir gerðu mikið gys að and­stæð­ingum sínum. Ólafur sagði að stjórn­ar­and­staðan hér á landi væri verri en Arabar, Ben Gurion sagð­ist þó glaður vilja skipta. Ben Gurion hjónin fóru víða. Þau heim­sóttu m.a. Háskóla Íslands, Þjóð­minja­safnið, Stjórn­ar­ráðið, Þing­velli og bor­holu í Hvera­gerði. Í sam­tölum við fjöl­miðla var mest rætt um trú­mál og til­urð Ísra­els­ríkis.

9. Nicolae Ceausescu – 1970

Þann 12. októ­ber árið 1970 komu leið­togi rúm­enska komm­ún­ista­flokks­ins, Elena kona hans og fylgd­ar­lið skipað mörgum ráða­mönnum og frétta­mönnum í tveggja tíma en þó opin­bera heim­sókn til lands­ins. Þau voru á leið til Banda­ríkj­anna til að sitja afmæl­is­fund Sam­ein­uðu Þjóðanna. Ceausescu hjónin heim­sóttu Bessa­staði í boði Krist­jáns Eldjárn og Nicolae hélt ræðu á rúm­ensku sem var sam­stundis þýdd á ensku. Á þessum tíma þótti Ceausescu meðal fram­sækn­ustu og sjálf­stæð­ustu leið­toga Austur-Evrópu og vest­rænir leið­togar bundu tölu­verðar vonir við hann. Á níunda ára­tugnum olli mis­heppnuð efna­hags­stjórn hans rúm­ensku þjóð­inni eig­in­legri hung­ursneyð. Ceausescu varð einn hatað­asti ein­ræð­is­herra ver­aldar. Þegar komm­ún­ism­inn í Evrópu hrundi árið 1989 voru rúm­ensku for­seta­hjónin leidd fyrir aftöku­sveit.

8. Richard Nixon og Georges Pompidou – 1973

Forsetar Banda­ríkj­anna og Frakk­lands hitt­ust á fundi í Reykja­vík sum­arið 1973 til þess að ræða sam­skipti ríkj­anna í Atl­ants­hafs­banda­lag­inu en þau höfðu verið stirð um nokkuð skeið, þá sér­stak­lega á valda­tíma Charles De Gaulle. For­set­arnir flugu báðir yfir Vest­manna­eyjar til að sjá gosið í Heimaey sem enn stóð yfir. Þegar þeir lentu spil­aði Lúðra­sveit Reykja­víkur þjóð­söngva Íslands, Frakk­lands og Banda­ríkj­anna áður en for­set­arnir gengu á fund for­seta Íslands og ann­arra ráða­manna í Ráð­herra­bú­staðnum við Tjarn­ar­götu. Leið­toga­fund­ur­inn var svo hald­inn í Kjar­vals­stöðum sem voru þá nýbyggðir. Her­stöðvaand­stæð­ingar gengu þús­undum saman í frið­sam­legri mót­mæla­göngu frá Alþing­is­hús­inu að Sjó­manna­skól­anum en gríð­ar­leg örygg­is­gæsla var á svæð­inu. For­set­arnir flugu svo heim strax eftir fund­inn.

7. Jóhannes Páll páfi II – 1989

Hinn pólski Jóhannes Páll II varð fyrsti páf­inn til þess að sækja Norð­ur­löndin heim. Það gerði hann í júní­mán­uði árið 1989. Þegar hann kom til Íslands hafði hann kynnt sér íslenska sögu, goða­fræði og sér­stak­lega kristni­tök­una árið 1000. Hann tók þátt í sam­kirkju­legri guðs­þjón­ustu á Þing­völlum en aðal­við­burð­ur­inn var messa við Landa­kots­kirkju. Pallur var reistur fyrir páfa framan við kirkj­una og þús­undir manna sóttu mess­una. Athöfnin var ákaf­lega íburð­ar­mikil. Kaþ­ólskir helgi­gripir voru fengnir að láni frá Þjóð­minja­safn­inu og nunn­urnar úr Karmel klaustr­inu í Hafn­ar­firði stráðu rósa­blöðum framan við fætur páfa þegar hann gekk að pall­inum. Páfi þótti þó hinn alþýð­leg­asti og rabb­aði við almenn­ing utan dag­skrár. Hann bless­aði stóran stál­kross sem stendur nú hjá sum­ar­búðum skáta við Úlf­ljóts­vatn.

6. Lýðveldishátíðin – 1994

Þann 17. júní árið 1994 var 50 ára afmæli lýð­veld­is­ins fagnað um allt land og sér­stök hátíð­ar­dag­skrá var skipu­lögð á Þing­völlum. Tug­þús­undir streymdu að og gríð­ar­mikil umferð­ar­teppa mynd­að­ist svo að margir misstu af allri hátíð­inni. Þeir sem komust á Þingvöll lentu í mik­illi rign­ingu en hátíð­ar­dag­skráin tókst þó ágæt­lega. Hápunktur hátíð­ar­innar voru ávörp Norrænu þjóð­höfð­ingj­anna sem allir voru sam­an­komnir. Vigdís Finn­boga­dóttir for­seti Íslands, Margrét Þór­hildur II Dana­drottn­ing, Haraldur V Nor­egs­kon­ungur, Karl XVI Gústaf Svía­kon­ungur, Artti Aht­isa­ari for­seti Finn­lands og makar þeirra. Haraldur átti trega­fyllstu ræð­una enda áttu Íslend­ingar og Norðmenn í fisk­veiði­deilu á þessum tíma. Karl Gústaf sló aftur á móti í gegn og þótti fynd­inn. Norrænir þjóð­höfð­ingjar hafa margoft komið hingað til lands áður en þetta var í fyrsta skiptið sem þeir heim­sækja landið allir í senn.

5. Willy Brandt – 1967

Brandt var utan­rík­is­ráð­herra Vestur-Þýska­lands þegar hann heim­sótti landið ásamt eig­in­konu sinni þann 24. júní 1967. Verðandi Nóbels­verð­launa­haf­inn Brandt hafði lengi verið borg­ar­stjóri Vestur-Berlínar og átti seinna eftir að verða kansl­ari. Hann var á ferð um Norð­ur­lönd til þess að ræða utan­ríkis-og efna­hags­mál. Emil Jónsson utan­rík­is­ráð­herra tók á móti honum á Reykja­vík­ur­flug­velli og Brandt fund­aði svo með nokkrum ráð­herrum og Ásgeiri Ásgeirs­syni for­seta. Brandt færði Íslend­ingum þá Berlín­ar­björn­inn, stytt­una sem nú stendur við Hellu­sund. Hann hélt svo merkan blaða­manna­fund þar sem hann ræddi m.a. um Evr­ópu­banda­lagið og utan­rík­is­stefn­una gagn­vart Sov­ét­ríkj­unum og Austur-Þýska­landi. Brandt sem var einn af merk­ustu stjórn­mála­mönnum 20. ald­ar­innar átti eftir að heim­sækja landið tví­vegis í við­bót áður en hann lést árið 1992.

4. Winston Churchill – 1941

Í miðjum hild­ar­leik seinni heim­styrj­ald­ar­innar var Ísland hernumið af Bretum. For­sæt­is­ráð­herr­ann goð­sagna­kenndi kom í stutta og jafn­framt fyr­ir­vara­lausa heim­sókn til lands­ins þann 16. ágúst eftir að hann hafði fundað með Banda­ríkja­for­set­anum Franklyn Roosevelt á her­skipi á Atl­ants­hafi. Churchill kom ásamt syni Roosevelts, Franklyn yngri og mörgum breskum her­for­ingjum. Þeir héldu að Alþing­is­hús­inu þar sem Churchill ávarp­aði fjölda manns sem var þá saman kom­inn. Veifaði hann sínu fræga V-merki sem stendur fyrir sigur (eða Victory). Churchill hélt svo að Suð­ur­lands­braut þar sem hann var við­staddur mikla her­sýn­ingu. Auk þess heim­sótti hann aðstöðu breska flug­hers­ins hér á landi og hvera­svæðin að Reykjum í Mos­fells­sveit. Churchill þótti hinn vina­leg­asti í allri heim­sókn­inni, alþýð­legur og ræð­inn. Hann hélt sama dag af landi brott á her­skipi sínu.

3. Kristján IX – 1874

Árið 1874 var 1000 ára afmæli Íslands­byggðar fagnað og þá kom Dana­kon­ungur í fyrsta sinn til lands­ins. Kristján IX kom ásamt yngsta syni sínum Valdi­mari og fylgd­ar­liði á tveimur skipum, Jótlandi og Heimdalli, þann 30. júlí að Reykja­vík­ur­höfn. Lands­höfð­ing­inn Hilmar Finsen tók á móti þeim og bær­inn skart­aði sínu feg­ursta, fólk var prúð­búið og flaggað var við flest hús. Konungur sótti messu í dóm­kirkj­unni og var svo við­staddur hátíð­ar­dag­skrá í Öskju­hlíð. Hleypt var úr fall­byssum til heið­urs kon­ungi en óhapp varð við skotin og tveir dátar misstu hönd. Svo var haldið upp á Geysi og loks Þing­velli þar sem fjöl­menn þjóð­há­tíð var haldin þann 6. ágúst. Á hátíð­inni var m.a. keppt í glímu, kórar sungu og drukkið fram á nótt. Konungur hélt svo vita­skuld ræðu. Hann hélt svo tvo dans­leiki í Reykja­vík áður en hann hélt aftur heim þann 10. ágúst.

2. Elísabet II – 1990

Komu Elísa­betar drottn­ingar og Fil­ippusar prins var beðið með mik­illi eft­ir­vænt­ingu á Íslandi. Heim­sóknin var í boði for­seta Íslands, Vigdísar Finn­boga­dóttur. Fjöldi fólks safn­að­ist saman í mið­borg Reykja­víkur og voru börn og ung­menni áber­andi mörg. Fólk flagg­aði bæði íslenska og breska fán­anum til heið­urs kon­ungs­hjón­unum og klapp­aði mikið fyrir þeim. Þau tóku því þó af miklu æðru­leysi, þóttu íburð­ar­lítil í klæðn­aði og alþýð­leg í fram­komu. Drottn­ingin gaf sig á tal við marga en á þessum tíma skildu ekki allir ensku. Þau heim­sóttu marga staði, m.a. Árna­stofnun, Lista­safn Íslands, Nesja­velli og Þing­velli þar sem drottn­ingin gróð­ur­setti tré. Haldið var síð­deg­is­boð í kon­ung­legu snekkj­unni Britt­anníu og svo kvöld­verð­ar­boð á Hótel Sögu. Við Reykja­vík­ur­höfn var svo hleypt af 21 fall­byssu­skoti til heið­urs kon­ungs­hjón­unum.

1. Leiðtogafundurinn í Höfða – 1986

Leið­toga­fundur Ronalds Reagan Banda­ríkja­for­seta og Mikhails Gorbachev aðal­rit­ara Sov­ét­ríkj­anna bar að með ein­ungis 10 daga fyr­ir­vara. Fund­ur­inn var liður í við­ræðum ríkj­anna um fækkun kjarn­orku­vopna í Evrópu. Gríð­ar­leg fjöl­miðla­at­hygli beind­ist strax að land­inu og örygg­is­gæsla hefur senni­lega aldrei verið meiri. Um 400 fylgd­ar­menn og um 1000 blaða­menn komu til lands­ins. Leið­tog­arnir fund­uðu í Höfða við Borg­ar­tún eins og frægt er orðið en engin form­leg nið­ur­staða náð­ist. Þó er talið að fund­ur­inn hafi skipt sköpum til lengri tíma séð því að ári seinna var mik­il­vægur afvopn­un­ar­samn­ingur und­ir­rit­aður milli ríkj­anna. For­seta­frúin Nancy Reagan var ekki með í för en Raisa Gorbachev kom með og stal sen­unni meðan leið­tog­arnir fund­uðu. Hún heim­sótti m.a. Laug­ar­dals­laug, Breið­holtið, Árbæj­ar­safn og Þing­velli og heill­aði land og þjóð upp úr skónum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár