Róbert Wessman segir Björgólfi Thor að skammast sín

Róbert Wessman, for­stjóri Alvogen, segir að Björgólfur Thor Björg­ólfs­son fjár­festir ættir að „skamm­ast sín“ vegna hans þáttar í efna­hags­hruni lands­ins. Þá sé það „hjá­kát­legt og bein­línis vand­ræða­legt“ þegar hann heldur því fram að aðrir hafi ekki borgað skuldir sínar til baka, í ljósi þess að hann hefur aðeins borgað „lítið brot“ sinna skulda til baka sjálfur. Þetta kemur fram í harð­orðri yfir­lýs­ingu frá Róberti.

Eins og greint var frá á vef Kjarnans fyrr í dag, þá hélt Björgólfur Thor því fram að Róbert noti sjóði sína til að klekkja á honum í dóm­sölum. „Róbert hefur í digra sjóði að sækja, enda gætti hann þess vand­lega að koma auð sínum undan kröfu­höfum, í stað þess að gera upp millj­arða skuldir sínar við íslensku bank­ana eftir hrun. Auðvitað gera þeir sér engar vonir um bætur úr minni hendi, enda eina mark­miðið að sverta mann­orð mitt.“ Þetta kemur fram í blogg­færslu á vefnum btb.is.

Kjarninn greindi frá því á mið­viku­dag að félag í eigu Árna Harð­ar­sonar, stjórn­ar­manns og lög­manns lyfja­fyr­ir­tæk­is­ins Alvogen, ætti um 60 pró­sent þeirra hluta­bréfa sem eru að baki hóp­mál­sókn sem nú er rekin gegn Björgólfi. Árni á hluta­bréfin, sem hann hefur keypt af islenskum líf­eyr­is­sjóðum nýverið, í gegnum félag sem heitir Urriða­hæð ehf. Samtals hefur Árni greitt á milli 25 til 30 millj­ónir króna fyrir hluta­bréfin, sem eru verð­laus nema að til tak­ist að fá við­ur­kennt fyrir dóm­stólum að Björgólfur Thor eigi að greiða fyrrum hlut­höfum Lands­bank­ans skaða­bætur. Til við­bótar þarf Urriðhæð að greiða sinn hluta máls­kostn­aðar. Hann gæti hlaupið á tugum millj­óna króna.

Róbert segir í yfir­lýs­ingu sinni að hann hafi hætt að vinna með Björgólfi Thor vegna þess að hann kærði sig ekki um að vera við­loð­andi við­skiptasið­ferði hans og félaga hans lengur.

Róbert og Björgólfur Thor hafa deild opin­ber­lega um hin ýmsu mál, alveg frá því að leiðir skildu í við­skipta­sam­bandi þeirra. Hafa málin ratað oftar en einu sinni fyrir dóm­stóla, og sér ekki fyrir end­ann á þeim deilum.

Yfir­lýs­ingin fer hér að neðan í heild sinni:

„Vegna ummæla sem Björgólfur Thor Björg­ólfs­son við­hefur á vef­síðu sinni í dag um starfs­lok mín hjá Actavis, er mér bæði ljúft og skylt að koma eft­ir­far­andi á fram­færi:

Ástæður þess að ég hafði ekki lengur áhuga að starfa með Björgólfi Thor og hans við­skipta­fé­lögum var aug­ljós. Við­skiptasið­ferði þeirra er með þeim hætti að ég kærði mig ekki um að vera við­loð­andi það lengur. Ein­hverjar aðrar eft­irá­skýr­ingar hans hafa enga merk­ingu.

Allir vita að Björgólfur Thor átti eign­ar­hlut í fjölda fyr­ir­tækja hér á landi sem fóru í þrot. Hann átti sem við­skipta­maður og einn stærsti eig­andi Lands­bank­ans sinn þátt í hruni krón­unnar, með afleið­ingum fyrir land og þjóð sem við erum enn öll að að vinna okkur út úr.

Öllum má jafn­framt vera ljóst, að þrátt fyrir ítrek­aðar til­raunir til að halda öðrum fram, hefur Björgólfur Thor ekki gert upp nema örlítið brot af skuldum sínum og sinna fyr­ir­tækja. Það er því hjá­kát­legt og bein­línis vand­ræða­legt þegar því er haldið fram af hans hálfu að aðrir hafa ekki staðið skil á skuldum sínum.

Að mínu mati ætti Björgólfur Thor að hafa vit á að skamm­ast sín fyrir sinn þátt í að koma Íslend­ingum í þann fjár­hags­legan vanda sem raunin varð, og hætta að reyna að end­ur­skrifa sög­una sér í hag. Það sjá allir í gegnum það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár