Árni Harðarson á 60 prósent hlutabréfa sem eru að baki hópmálsókn gegn Björgólfi Thor

Er einn nán­asti sam­starfs­maður Róberts Wessman. Björgólfur Thor stefndi þeim í fyrra vegna meints fjár­dráttar.

Félag í eigu Árna Harð­ar­sonar, stjórn­ar­manns og lög­manns lyfja­fyr­ir­tæk­is­ins Alvogen, á um 60 pró­sent þeirra hluta­bréfa sem eru að baki hóp­mál­sókn gegn Björgólfi Thor Björg­ólfs­syni. Árni á hluta­bréfin, sem hann hefur keypt af islenskum líf­eyr­is­sjóðum á lið­inni viku, í gegnum félag sem heitir Urriða­hæð ehf. Samtals hefur Árni greitt á milli 25 til 30 millj­ónir króna fyrir hluta­bréfin, sem eru verð­laus nema að til tak­ist að fá við­ur­kennt fyrir dóm­stólum að Björgólfur Thor eigi að greiða fyrrum hlut­höfum Lands­bank­ans skaða­bætur. Til við­bótar þarf Urriðhæð að greiða sinn hluta máls­kostn­aðar. Hann gæti hlaupið á tugum millj­óna króna.

Árni er nán­asti sam­starfs­maður Róberts Wessmans. Þeir störf­uðu áður báðir hjá Actavis, á meðan að Björgólfur Thor var aðal­eig­andi þess fyr­ir­tækis. Síðan að Árni og Róbert hættu störfum hjá Actavis árið 2008 hefur andað veru­lega köldu milli þeirra og Björg­ólfs Thors. Hann hefur meðal ann­ars stefnt þeim til greiðslu skaða­bóta fyrir mein­tan fjár­drátt auk þess sem báðir aðilar hafa ítrekað atyrt hinn á opin­berum vett­vangi á und­an­förnum árum.

Árna og Róberti er, væg­ast sagt, ekki vel við Björgólf Thor. Og honum er ekki vel við þá.

50 blaðsíðna stefna

Hóp­mál­sókn gegn Björgólfi Thor var þing­fest í gær­morgun. Máls­höfð­unin er sú fyrsta sinnar teg­undar á Íslandi er lýtur að dóms­málum sem tengj­ast banka­hrun­inu. Aldrei áður hafa fyrrum hlut­hafar í íslenskum banka tekið sig saman og stefnt fyrrum aðal­eig­anda hans fyrir að hafa blekkt sig með sak­næmum hætti til að eiga í bank­anum. Og krefj­ast skaða­bóta fyrir. Björgólfur Thor hefur ávallt neitað sök og sagt máls­höfð­un­ina vera gróðra­brall lög­manna sem að henni starfa.

Kjarninn hefur stefn­una í mál­inu, sem er 50 blað­síður að lengd, undir höndum. Hana má lesa hér.

Alls taka 235 aðilar þátt í mál­sókn­inni. Þeir eiga sam­tals 5,67 pró­sent af heild­ar­hlutafé í Lands­bank­ans, sem féll haustið 2008.

Mál­sókn­ar­fé­lagið krefst þess að skaða­bóta­skylda Björg­ólfs Thors á því tjóni sem aðilar að félag­inu urðu fyrir þegar hluta­bréf í Lands­bank­anum urðu verð­laus við fall hans 7. októ­ber 2008. Í stefn­unni kemur fram að félags­menn byggi mál­sókn­ina á því „að þeir hefðu ekki verið hlut­hafar í Lands­banka Íslands hf. og þar með ekki orðið fyrir tjóni, ef ekki hafði komið til hinnar sak­næmu og ólög­mætu hátt­semi stefnda [Björg­ólfs Thors]“.

Það sem mál­sókn­ar­fé­lagið telur að Björgólfur Thor hafi gert, og hafi ollið þeim skaða, er þrennt. Í fyrsta lagi hafi ekki verið veittar upp­lýs­ingar um lán­veit­ingar Lands­banka Íslands til Björg­ólfs Thors og tengdra aðila í árs­reikn­ingum bank­ans fyrir rekstr­ar­árið 2005 og í öllum upp­gjörum eftir það fram að hruni.

Í öðru lagi hafi Björgólfur Thor van­rækt á tíma­bil­inu 30. júní 2006 til 7. októ­ber 2008, að „upp­lýsa opin­ber­lega um að Samson eign­ar­halds­fé­lag ehf. [Í aðal­eigu Björg­ólfs Thors og föður hans] færi með yfir­ráð yfir Lands­banka Íslands hf., og teld­ist því móð­ur­fé­lag bank­ans“.

Í þriðja lagi telur félagið að Björgólfur Thor hafi van­rækt að „sjá til þess að Samson eign­ar­halds­fé­lag ehf. gerði öðrum hlut­höfum Lands­banka Íslands hf. yfir­tökutil­boð hinn 30. júní 2006, eða síðar, í sam­ræmi við ákvæði laga um verð­bréfa­við­skipti“.

Hófu uppkaup á hlutabréfum fyrir viku

Urriða­hæð hóf fyrir um viku síðan að gera til­boð í hluta­bréf fyrrum hlut­hafa í Lands­banka Íslands í bank­anum. Kjarninn hefur skjal þar sem til­boð til hlut­haf­anna er útskýrt undir höndum. Í skjal­inu Íslands segir meðal ann­ars að þeir hlut­hafar sem ekki taki þátt í mála­rekstri mál­sókn­ar­fé­lags­ins muni „nær örugg­lega missa bóta­rétt sinn vegna fyrn­ingar.“

Þar sem ein­hverjir hlut­haf­anna hafi sett félags­gjald mál­sókn­ar­fé­lags­ins fyrir sig og telji áhættu á því að tapa frek­ari fjár­munum með þátt­töku býðst þeim að ger­ast aðili að mál­sókn­inni. Í því felst að ónafn­greindir fjár­festar greiði félags­gjald þeirra að fullu, og ábyrgj­ast greiðslu á frek­ari kostn­aði, gegn því að þeir fái 50 pró­sent allra inn­heimtra skaða­bóta. Tapist málið fellur því eng­inn kostn­aður á hlut­hafann, en vinn­ist það fær hann hann helm­ing þeirra skaða­bóta sem hann á rétt á.

Ef hlut­hafar hafa ekki áhuga á þess­ari leið þá býðst þeim að selja hlutafé sitt og fram­selur sam­hliða skaða­bóta­kröf­una til fjár­festa fyrir fimm pró­sent af nafn­virði hluta­fjár sem hann á. Samkvæmt til­boð­inu fær hlut­haf­inn samt sem áður 25 pró­sent af skaða­bótum eftir upp­gjör á kostn­aði, án þess að leggja út neinn kostnað. „Ef málið tap­ast hefur hlut­hafi fengið greitt fyrir verð­lausa eign,“ segir í til­boðs­skjal­inu.

Sá sem skrifar undir skjalið er Jóhann Ómarsson, fram­kvæmda­stjóri Urriða­hæðar.

Áralangar deilur

Eigandi Urriða­hæðar ehf. er Árni Harðason. Hann er yfir­maður lög­fræðis­viðs lyfja­fyr­ir­tæk­is­ins Alvogen, sem Róbert Wessman stýrir. Árni og Róbert hafa verið nánir sam­starfs­menn árum saman. Í sam­tali við Kjarnann segir Árni að hann sé eini eig­andi félags­ins og stjórn­ar­for­maður þess. Jóhann Ómarsson sé fram­kvæmda­stjóri.

Árni segir að stutt sé síðan að Urriða­hæð hóf upp­kaup á hluta­bréfum í Lands­bank­anum. Þau upp­kaup hafi átti sér stað á um viku. Samtals hafi hann greitt um 25-30 millj­ónir króna fyrir þau hluta­bréf sem Urriða­hæð hefur þegar keypt.

Róbert Wessman og Árni hafa átt í miklum og opin­berum úti­stöðum við Björgólf Thor á und­an­förnum árum. Bæði Róbert og Árni störf­uðu áður sem stjórn­endur hjá Actavis, á sama tíma og Björgólfur Thor var aðal­eig­andi félags­ins. Í ágúst 2008 lét Róbert af störfum hjá lyfja­fyr­ir­tæk­inu, en hann hafði þá verið for­stjóri þess í níu ár. Björgólfur Thor segir að Róbert hafi verið rek­inn en Róbert segir það vera rangt. Hann hafi ein­fald­lega viljað hætta.

Síðan að þetta átti sér stað hafa verið hnúta­köst á milli mann­anna í fjöl­miðlum og fyrir dóm­stólum. Björgólfur Thor stefndi bæði Róberti og Árna fyrir að hafa á ólög­mætan hátt dregið að sér fjórar millj­ónir evra frá sér og nýtt í eigin þágu. Hann vill að þeir greiði sér skaða­bætur vegna þessa. Róbert og Árni hafa ítrekað hafnað þessum mála­til­bún­aði, sagt stefn­una til­efn­is­lausa og að hún eigi sér enga stoð í raun­veru­leik­anum. Málið var þing­fest í sumar.

235 taka þátt í málsókninni

Kjarninn er einnig með lista yfir þá sem taka þátt í mál­sókn­inni undir höndum. Alls eru skráðir félagar í mál­sókn­ar­fé­lagið 235 sam­kvæmt honum. Listann má sjá hér.

Um 60 pró­sent þeirra hluta­bréfa þáttak­enda í hóp­mál­sókn­inni eru í eigu eða umsjá Urriða­hæðar. Félagið hefur keypt bréf af öllum stærstu líf­eyr­is­sjóðum lands­ins utan líf­eyr­is­sjóðs Versl­un­ar­manna, sem hefur ekki viljað selja. Urriðhæð heldur því á bréfum vegna líf­eyr­i­s­jóð­anna, Festu, Gildis, Stafa, LSR og Líf­eyr­is­sjóðs Vest­manna­eyja og er langstærsti ein­staki aðil­inni sem þátt tekur í mál­sókn­inni. Á meðal ann­arra stórra eig­enda að hluta­bréfum sem taka þátt í mál­sókn­inni eru Karen Millen, sem átti einu sinni tísku­vöru­keðju sem bar nafn hennar, en varð síðar umsvifa­mik­ill fjár­festir í íslenskum fjár­mála­fyr­ir­tækjum.

Björgólfur Thor hefur farið fram á að mál­inu verði vísað frá. Í færslu á blogg­síðu sinni, btb.is, í gær sagði hann að að störfum hlaðið dóms­kerfi Íslands þurfi nú að bæta á sig duttl­ungum Vil­hjálms Bjarna­sonar. "Málefni mín og bank­ans hafa verið rann­sökuð í þaula af þar til bærum yfir­völdum og ekki talin ástæða til aðgerða í nokkru þeirra. Þar að auki hef ég gert upp allar mínar skuldir við bank­ann og hann því skað­laus af við­skiptum við mig. Slita­stjórn bank­ans hefur stað­fest að hann eigi engar kröfur á mig. Mis­færslum í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar hef ég svarað ítar­lega enda hef ég ekk­ert sak­næmt unnið.

Þrá­hyggja Vil­hjálms Bjarna­sonar á sér hins vegar lítil tak­mörk. Með hana að vopni sér hann rang­færslur og svik þar sem sér­fróðir rann­sak­endur sjá ekk­ert aðfinnslu­vert. Það er illt að dóms­kerfið þurfi að eyða tíma sínum í slíkan mála­til­búnað."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár