Svört skýrsla um RÚV: Reksturinn ósjálfbær, afleitir samningar um dreifikerfi og óljóst þjónustuhlutverk

RÚV er rekið á ósjálf­bæran hátt þar sem gert er ráð fyrir tekjum sem ekki eru í hendi. Hægt hefði verið að ljós­leið­ara­væða landið fyrir Voda­fo­nesamn­ing­inn.

Rekstur RÚV hefur ekki verið sjálf­bær frá því að fyr­ir­tækið var gert að opin­beru hluta­fé­lagi árið 2007. Alls nemur tap umfram hagnað 813 millj­ónum króna á því tíma­bili, og er þar gert ráð fyrir þeim tekjum sem RÚV hefur af útvarps­gjaldi sem lands­mönnum er skylt að greiða. Samt sem áður gera áætl­anir RÚV, sem fyr­ir­tækið vinnur eftir, ráð fyrir því að það fái hærra útvarps­gjald en gert er ráð fyrir í fjár­laga­frum­varpi árs­ins, að lán vegna líf­eyr­is­skuld­bind­inga hverfi úr efna­hag RÚV og að sala á bygg­inga­rétti á lóð fyr­ir­tæk­is­ins gangi eftir. Gangi allar þessar for­sendur ekki eftir er rekstur RÚV eins og fyr­ir­tækið er rekið í dag ósjálf­bær.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í skýrslu nefndar sem Illugi Gunn­ars­son, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra skip­aði 7. maí síð­ast­lið­inn til að greina þróun á starf­semi RÚV ohf. frá stofnun, þann 1. apríl 2007, og fram til dags­ins í dag. Tilefnið var að afla þar með skýr­inga á þeirri þungu rekstr­ar­stöðu sem RÚV er í ídag. Í nefnd­inni sitja Eyþór Arnalds, sem er for­maður hennar, Guðrún Ögmunds­dóttir sér­fræð­ingur í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyti og Svan­björn Thorodd­sen hjá KPMG.

Skýrslan var gerð opin­ber í dag. Þar eru einnig sett fram nokkur stór álita­mál, meðal ann­ars hvort RÚV eigi að vera á aug­lýs­inga­mark­aði og hvort RÚV sé best til þess fallið að ná fram mark­miðum rík­is­ins sem snúa að íslenskri menn­ingu, tungu og lýð­ræð­isum­ræðu.

RÚV hefur gert athuga­semd við ýmis atriði í skýrsl­unni og hefur birt frétta­til­kynn­ingu á heima­síðu sinni þar sem þau atriði eru talin upp. Á meðal þess sem þar kemur fram er sá tölu­legi sam­an­burður "sem nefndin gerir á milli RÚV og 365. Margoft hefur komið fram að slíkur sam­an­burður er ill­mögu­legur vegna ólíks eðlis almanna­þjón­ustu­miðla og einka­miðla. Þá er í skýrsl­unni stuðst við óop­in­berar og óstað­festar tölur úr rekstri einka­fyr­ir­tækis í sam­keppn­is­rekstri. Ef styðj­ast ætti við upp­lýs­ingar úr rekstri 365, gefnar upp af stjórn­endum þess fyr­ir­tækis, þá þyrfti að vera hægt sann­reyna þær tölur með gegn­sæjum hætti".

Endurskoða verður þjónustuhlutverkið

Nefndin gerir umfangs­miklar athuga­semdir við rekstur RÚV frá því að fyr­ir­tæk­inu var breytt í opin­bert hluta­fé­lag árið 2007. Helstu nið­ur­stöður nefnd­ar­innar eru að rekstur RÚV frá stofnun hefur ekki verið sjálf­bær og sé það raunar ekki enn. Gjöld hafa verið meiri en tekjur á tíma­bil­inu í heild og hefur halla­rekstur verið fjár­magn­aður með auknu rík­is­fram­lagi, lán­tökum og frestun afborg­ana lána. Tap­rekstur hefur verið á helm­ingi þeirra ára sem liðin eru frá stofnun RÚV og tap umfram hagnað er sam­tals 813 millj­ónir króna.

Nefndin telur mik­il­vægt að end­ur­skoða þjón­ustu­hlut­verk RÚV í ljósi þeirra miklu breyt­inga sem orðið hafa á neyt­enda­hegðun, sem koma meðal ann­ars fram í miklum sam­drætti í áhorfi á hefð­bundna sjón­varps­dag­skrá, sér­stak­lega hjá ungu fólki. Í skýrsl­unni er birt skýr­ing­ar­mynd þar sem kemur fram að heild­ar­á­horf fólks á Íslandi á aldr­inum 18-49 ára á sjón­varp dróst saman á árunum 2009-2015 um tæp 36 pró­sent í heild og var sam­drátt­ur­inn í áhorfi á línu­lega dag­skrá 47 pró­sent. Alls hefur áhorf á sjón­varp minnkað um 28 pró­sent frá árinu 2009 og hjá RÚV hefur sam­drátt­ur­inn verið tæp 18 pró­sent. Sam­dráttur í áhorfi á fréttir 2009 – 2015 var tæp 17 pró­sent og enn meiri í ald­urs­hópnum 18-49 ára, eða 32 pró­sent.

Þá telur nefndin mik­il­vægt að gerður verði nýr þjón­ustu­samn­ingur milli rík­is­ins og RÚV þar sem sú þjón­usta sem RÚV ber að sinna er skil­greind og til­tekið hvaða fjár­munir eigi að koma fyrir þá þjón­ustu út samn­ings­tím­ann.

Hvorki best né ódýrasta lausnin

Í skýrslu nefnd­ar­innar er einnig sett fram hörð gagn­rýni á samn­ing upp á fjóra millj­arða króna sem RÚV gerði við Vodafone um upp­bygg­ingu staf­ræns dreifi­kerfis árið 2013, og er til 15 ára. Ákvörð­unin um dreifi­samn­ing­inn er sögð hafa verið „dýr­keypt“. Það dreifi­kerfi þykir vera með veru­lega tak­mark­aða mögu­leika, enda býður tæknin ekki upp á gagn­virkni, ekki inter­net og er „hvorki besta né ódýrasta lausnin“. Í skýrsl­unni segir að hægt hefði verið að ljúka ljós­leið­ara­væð­ingu alls Íslands fyrir sömu fjár­hæð og RÚV greiddi til Vodafone fyrir upp­bygg­ingu staf­ræna dreifi­kerf­is­ins.

Vodafone sendi síð­degis frá sér til­kynn­ingu vegna umfjöll­unar um samn­ing­inn í skýrsl­unni. Þar segir að Vodafone hafi fengið stað­fest hjá Kauphöll Íslands að upp­lýs­inga­gjöf félags­ins er hvorki til skoð­unar né rann­sóknar þar. Þar segir einnig að nauð­syn­legt sé að taka fram "að fyrr­nefndur samn­ingur kveður á um tölu­vert fleira en ein­ungis upp­bygg­ingu og rekstur staf­ræns dreifi­kerfis sjón­varps. Vodafone sér enn­fremur um rekstur lang­bylgjurása RÚV og rekur tæp­lega 200 FM senda um allt land.

Í til­efni af umræðu um meinta úrelta tækni skal tekið fram að DVB-T/T2 tæknin er útbreiddasta og mest nýtta sjón­varps­dreifi­leið á landi í heim­inum í dag, sér í lagi hjá fjöl­miðlum í almanna­eigu enda gerir hún ekki kröfu til við­bótar kostn­aðar hjá not­endum. DVB-T2 stað­all­inn var upp­haf­lega útfærður árið 2008. Fyrsta DVB-T2 kerfið fór í loftið í Bret­landi árið 2010 og fjölgar enn stöðugt þeim löndum sem nýta sér DVB-T2 tækn­ina. Útboð RÚV árið 2012 setti skil­yrði um 99,8 pró­sent dreif­ingu með DVB tækni og allir þátt­tak­endur útboðs­ins buðu miðað við þær for­sendur".

Reksturinn ósjálfbær

Nefndin veltir einnig upp nokkrum mik­il­vægum álita­málum í skýrsl­unni. Á meðal þeirra er sú spurn­ing hvort ohf. rekstr­ar­formið sé heppi­legt fyrir starf­semi RÚV þar sem reynslan sýnir að félagið er ekki rekið með tak­mark­aðri ábyrgð þegar ávallt er gert ráð fyrir að rík­is­sjóður rétti af fjár­hag félags­ins.

Annað stórt álita­mál sé hvort hvort RÚV sé best til þess fallið að ná fram mark­miðum rík­is­ins sem snúa að íslenskri menn­ingu, tungu og lýð­ræð­isum­ræðu, séstak­lega þar sem innan við 60 pró­sent af fjár­magni sem RÚV eyðir fari í dag­skrár­gerð.

Í skýrsl­unni segir berum orðum að þær áætl­anir sem RÚV vinni nú eftir geri ráð fyrir ýmsu sem sé ekki orðið að veru­leika. Þ.e. hærra útvarps­gjaldi en er í fjár­laga­frum­varpi, að millj­arða króna líf­eyr­is­sjóðs­skuld­bind­ing hverfi úr efna­hag og sölu bygg­inga­réttar. Gangi þessar for­sendur ekki allar eftir er rekstur RÚV ósjálf­bær.

Nefndin var saman rekstur útvarps og sjón­varps hjá RÚV ann­ars vegar og 365 miðlum, stærsta einka­rekna fjöl­miðla­fyr­ir­tækis lands­ins, hins vegar. Þar kemur fram að tekjur 365 miðla vegna áskrifta og aug­lýs­inga­sölu hafi verið 3,9 millj­arðar króna í fyrra. Á sama tíma var RÚV með 5,4 millj­arða króna í tekjur vegna rík­is­fram­lags og aug­lýs­inga­tekna. Rekstr­ar­gjöld RÚV voru um 1,9 millj­örðum krónum hærri en gjöld 365 og þegar ein­ungis var horft til dag­skrár- og fram­leiðslu­kostn­aðar er mun­ur­inn slá­andi.

Hjá 365 miðlum fara tveir millj­arðar króna á ári í dag­skrár- og fram­leiðslu­kostnað en hjá RÚV er sá kostn­aður 3,9 millj­arðar króna. Munurinn er 1,9 millj­arðar króna. Samt sem áður sendu 365 miðlar út 1.681 klukku­stundir. af inn­lendu efni árið 2014 á meðan að RÚV sendi út 1.948 klukku­stundir. 365 miðlar senda því út 14 pró­sent minna af inn­lendu efni á ári fyrir helm­ing þess kostn­aðar sem fer í dag­skrár- og fram­leiðslu­kostnað hjá RÚV.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár