Þrjátíu þúsund ára gömul veira vaknar til lífsins

Frönsku vís­inda­menn­irnir og hjónin Chantal Abergel og Jean-Michel Claverie starfa hjá Aix-Marseille háskól­anum í Provence. Þau hafa nýlega fundið nýja teg­und af veiru í sífrer­anum í Austur-Síberíu. Veiran sem þau hafa nefnt Moll­i­virus Sibericum (Mjúka veiran frá Síberíu) er af hinni svoköll­uðu risa­veiru­ætt sem er til­ölu­lega nýupp­götvuð og hafa þessar nýju risa­veirur vakið upp nokkrar spurn­ingar, t.d. varð­andi lofts­lags­breyt­ingar, sjúk­dóma í mönnum og upp­runa lífs­ins.

Skrímsli að stærð


Fyrsta risa­veiran, Mimi­virus, fannst árið 1992 í Bradford í Englandi. Fyrst var talið að um bakt­eríu væri að ræða en árið 2003 var hún skil­greind sem risa­veira. Síðan hafa nokkrar aðrar týpur fund­ist, meðal ann­ars í Ástralíu og Chile og frönsku hjónin hafa átt þátt í að finna og rann­saka þær flestar. Til þess að átta sig á stærð þeirra er gott að miða við hefð­bundna inflú­ensu­veiru sem hefur um 11 gen og er um 100 nanó­metrar í þver­mál. Risa­veir­urnar geta haft um 2500 gen og verið um 1000 sinnum stærri. Sú stærsta sem fund­ist hefur, Pand­ora­virus, er stærri en sumar bakt­er­íur og heilkjarna frumur. Þetta eru því sann­ar­lega skrímsli miðað við aðrar veirur, en góðu frétt­irnar eru þær að skrímslin ráð­ast ekki á menn heldur amöbur. Amöbur eru ein­frum­ungs slím­dýr sem lifa bæði í vot­lendi og innan í dýrum, þar á meðal mönnum. Moll­i­virus er önnur risa­veiran sem Abergel og Claverie finna í sífrer­anum. Á sein­asta ári komust þau í heims­frétt­irnar þegar þau fundu veiruna Pit­hovirus Sibericum. Þau tóku sýni á 30 metra dýpi í sífrer­anum í Chukotka í Austur-Síberíu, þíddu það og settu lif­andi amöbur í sýnið sem drápust í kjöl­farið. Moll­i­virus fannst í þessu sama sýni.

Moll­i­virus sibericum - 30,000 years old frozen giant #virus that is still infectious. #defy­ingtime http://t.co/4ZE83Oi4ci


— Navneet Kaur (@npkaur1) Sept­em­ber 19, 2015


Ísaldarveirur


Sýnin eru tekin úr jarð­lagi frá svoköll­uðu pleistó­sen tíma­bili, sem í dag­legu tali er kallað ísöld. Má ætla að Pit­hovirus og Moll­i­virus séu um 30 þús­und ára gamlar veirur. Sífrer­inn við­heldur líf­verum á alveg ótrú­legan hátt. Mammútar hafa fund­ist þar svo heil­legir að kjötið af þeim er ætt og vís­inda­menn hafa gælt við þá hug­mynd að klóna þá. Árið 2012 fengu rúss­neskir vís­inda­menn þiðið blóma­fræ til að spíra sem var um 32 þús­und ára gam­alt en heims­metið fyrir þann tíma var um 2000 ár. Veirur eru ekki líf­verur í hef­bundnum skiln­ingi en engu að síður virð­ist nokkuð auð­velt að „lífga“ þær við með því að setja þær í lif­andi hýsla, sem í þessu til­felli eru amöbur. Það er ekki óal­gengt að gamlar veirur séu lífg­aðar við á þennan hátt á til­raun­stofum til þess að fræð­ast meira um þær og sjá hvernig þær hafa áhrif á hýsla. Til að mynda var spænska veikin svo­kall­aða (H1N1 inflú­ensa) end­ur­lífguð af amer­ískum vís­inda­mönnum árið 2004, 85 árum eftir að hún drap tug­millj­ónir jarð­ar­búa í einum mesta heims­far­aldri sög­unnar. Sú veira var ræktuð úr líki inúíta­konu sem fannst í sífrer­anum í Alaska. Abergel og Claverie lofa hins vegar að lífgun Moll­i­virus sé alger­lega skað­laust mann­fólki. Til­raun­irnar verði gerðar í öruggu umhverfi og veiran drepi ein­ungis amöbur.

[caption id="attachment_39934" align="alignnone" width="579"] Chantal Abergel og Jean-Michel Claverie. Þau fundu veiruna við rann­sóknir í Síberíu. Mynd: EPA.[/caption]

Furðuverur


Það hefur mikla vís­inda­lega þýð­ingu fyrir okkur að lífga þessar risa­veirur við og sjá hvernig þær starfa og hvernig erfða­mengi þeirra er upp­byggt. Abergel segir: „Við höldum að þessar risa­veirur hjálpi okkur að skilja hvernig lífið byrj­aði hér á jörð. Við höldum að það séu svo mörg gen sem eru sér­stök í þessum erfða­mengjum og það er margt sem hægt er að læra af þessum genum.“ Einungis um sjö pró­sent af genum risa­veir­anna eru áður þekkt. Abergel telur að veir­urnar hafi þró­ast úr frumum. Frumum sem hafi verið allt öðru­vísi en þær sem við þekkjum í dag í hinu þriggja léna kerfi (gerlar, forn­gerlar og heil­kjörn­ungar). Hún telur að sumar frumur hafi þró­ast út í þær sem við þekkjum í dag en aðrar hafi lifað á þeim og orðið að veirum. Risa­veir­urnar eru nýupp­götv­aðar og rann­sóknir ennþá á algjöru frum­stigi. Ætla má að margar nýjar teg­undir finn­ist á næstu árum og senni­lega verða Abergel og Claverie ekki langt undan.

Stafar hætta?


Þó að þær risa­veirur sem fund­ist hafa í sífrer­anum í Síberíu séu alger­lega skað­lausar mann­fólki kenna þær okkur að hafa var­ann á í fram­tíð­inni. Það er ekki víst að allar frosnar veirur séu mein­lausar. Óum­flýj­an­legt er að sífrer­inn þiðni að ein­hverju leyti sam­fara lofts­lags­breyt­ingum af manna­völdum. Þó veirur séu djúpt í jörð geta hlutir eins og jarð­rask, náma­gröftur, olíu og gasleit á þessum svæðum komið þeim af stað. Það þarf ekki nema einn hýsil og eitt smit. Claviere segir: „Ef við pössum okkur ekki, og við iðn­væðum þessi svæði án þess að gera örygg­is­ráð­staf­anir, eigum við það á hættu að vakna upp einn dag með veirur á borð við bólu­sótt sem við héldum að væri búið að upp­ræta.“ Fundur Abergel og Claviere getur svo sann­ar­lega komið ímynd­un­ar­afl­inu af stað. Einnn orð­hepp­inn sagði að það væri nákvæm­lega svona sem allar lélegar hryll­ings­myndir hæfust. Fram­leið­endur tölvu­leiks­ins Plague Inc. voru ekki lengi að nýta sér fund­inn og bættu Pit­hovirus Sibericum inn í leik­inn. Þar spilar maður sem veiran og tak­markið er að leggja undir sig allt mann­kyn. Allar heimsenda­spár eru senni­lega úr lausu lofti gripnar en engu að síður er nauð­syn­legt að sýna aðgát og gera frek­ari rann­sóknir á þessum svæðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár