Þegar Donald Trump fór í stríð við NFL

Hin fag­ur­hærði fast­eigna­mó­gúll og for­seta­fram­bjóð­andi Donald Trump hefur verið nokkuð áber­andi á sviði íþrótt­anna í gegnum tíð­ina. Hann á fjöl­marga golf­velli um heim allan, hefur skipu­lagt og haldið hnefa­leika­bar­daga og keppt (já keppt) í amer­ískri fjöl­bragða­glímu. Það hefur verið deilt um það hvort Trump sé inni­legur íþrótta­að­dá­andi eða hvort hann sé ein­ungis að koma sjálfum sér á fram­færi. Honum finnst nefni­lega ekki leið­in­legt að vera í sviðs­ljós­inu. Draumur Trump var lengi að eign­ast lið í amer­ísku ruðn­ings­deild­inni NFL. En sú ást var ekki end­ur­goldin því að NFL vildi ekk­ert með Trump hafa.

USFL byrjar


USFL var hug­ar­fóstur kaup­sýslu­manns­ins David Dixon. Hann hafði gengið með hug­mynd­ina í mag­anum í tæp­lega 20 ár áður en hún varð loks að veru­leika árið 1982. Leikir í USFL voru spil­aðir á vorin þegar NFL deildin lá niðri. NFL, sem er lang­vin­sælasta íþrótta­deild Banda­ríkj­anna, hefur lengsta fríið af öllum stóru atvinnu­manna­deild­unum og Dixon sá tóma­rúm sem hann ákvað að nýta sér. Hann hafði mjög skýra sýn á það hvernig deildin ætti að bera sig. Hann þurfti góða fjár­festa, aðgang að stórum völlum á svæðum sem þegar höfðu NFL lið og góða sjón­varps­samn­inga. Hann lagði líka áherslu á aðhald í rekstr­inum og að liðin færu ekki fram úr sér við það að skáka NFL. Deildin átti hægt og bít­andi að skipa sér ákveð­inn sess í íþróttaflóru Banda­ríkj­anna. Hún átti líka að vera öðru­vísi og fersk. Hún var „skemmti­lega deildin“ með alls kyns reglum sem voru hann­aðar til þess að auka sókn­ar­bolta. Hún var spenn­andi og óút­reikn­an­leg. USFL náðu samn­ingum við ABC og hina nýstofn­uðu ESPN um sýn­ing­ar­rétt. Mynda­takan á leikj­unum var öðru­vísi en áhorf­endur áttu að venj­ast, þ.e. mikið um snöggar klipp­ingar og end­ur­sýn­ingar og bún­ing­arnir og hjálm­arnir voru lit­ríkir og nýmóð­ins. Leikmenn deild­ar­innar urðu einnig þekktir fyrir að fagna snerti­mörkum á frum­legan hátt. Frægar stjörnur á borð við Burt Reynolds og Loni Anderson voru fengnar til að kynna deild­ina.

From player introductions. To the game-winning play. @Broncos vs. @Chiefs Live #TNF @Snapchat Story! #DENvsKC http://t.co/qy1y8h7Gwa


— NFL (@NFL) Sept­em­ber 18, 2015


Trump tekur völdin


Trump hafði verið í hópi upp­runa­legu fjár­fest­anna í deild­inni. Hann stofn­aði liðið New Jersey Generals sem spil­uðu í East Hanover, rétt sunnan við New York. En áður en fyrst leik­tíðin hófst seldi hann liðið til J. Walter Duncan, olíu­bar­óns frá Oklahoma. Ári seinna keypti Trump liðið aftur og fór þá ekki leynt með áætl­anir sínar. Hann skar upp herör gegn NFL til þess eins að þvinga sam­runa deild­anna. Hann sá fyrir sér að nokkur lið (þar með talið hans eigið) úr USFL myndu fá aðgang að NFL rétt eins og gerð­ist þegar körfu­bolta­deildin ABA logn­að­ist út af árið 1976. Þá gengu fjögur lið inn í NBA deild­ina. Trump hafði dýpstu vasana af eig­end­unum og stærsta munn­inn. Hann fékk því mestu athygl­ina og varð því nokk­urs konar rödd deild­ar­innar. Það var ekki bara út á við heldur hafði hann tögl og hagldir í eig­enda­hópnum líka. Hann keyrði upp eyðsl­una í deild­inni. Pen­ing­arnir flæddu og USFL liðin yfir­buðu NFL á leik­manna­mark­að­inum. Bestu leik­menn­irnir úr háskóla­bolt­anum og margir af eldri leik­mönnum úr NFL deild­inni streymdu í hina nýju, ríku og skemmti­legu deild. En það var ekki nóg að keppa við NFL um leik­menn, Trump vildi líka keppa um tíma. Hann vildi færa dag­skránna yfir á haustin og spila sam­hliða NFL. Hann sagði í við­tali að „Ef guð hefði viljað vor-fót­bolta.....hefði hann aldrei skapað hafna­bolta.“ Þetta gekk alger­lega gegn upp­runa­legu hugjón Dixons en smátt og smátt fékk hann eig­endur hinna lið­anna til þess að sam­þykkja að færa dag­skránna. 13 af 15 eig­endum kusu með því að fjórða tíma­bilið, árið 1986 yrði spilað að hausti til.

Deildin hrynur


Þó að deildin hafi byrjað með látum var ljóst að und­ir­stöð­urnar voru veikar. Aðsókn á leiki og sjón­varps­á­horf var langt á eftir NFL. Mikil offjár­fest­ing á mjög stuttum tíma kom í bakið á eig­end­unum. USFL og NFL voru í eig­in­legu launa­stríði til þess að tryggja sér bestu leik­menn­ina. Með­al­laun NFL leik­manna þre­föld­uð­ust á örfáum árum en mun­ur­inn á deild­unum tveimur var sá að eig­endur NFL lið­anna höfðu efni á því. USFL deildin stækk­aði líka alltof hratt. Liðunum fjölg­aði úr 12 í 18 eftir fyrsta tíma­bilið. Eigendur flestra lið­anna höfðu ekki nærri jafn djúpa vasa og Donald Trump og mörg liðin lentu strax í miklum fjár­hags­legum kröggum. Sum liðin gátu ekki greitt leik­mönn­unum laun. Deildin var ótrygg og nokkur lið voru flutt milli borga eða sam­ein­uð­ust öðrum. Samhliða þeirri ákvörðun að færa dag­skránna yfir á haustið var farið í skaða­bóta­mál gegn NFL sem Donald Trump leiddi. Kæran var sú að NFL hefði ein­ok­un­ar­stöðu á haust­mark­aðnum með sjón­varps­samn­ingum við allar þrjár stærstu sjón­varps­stöðv­arnar. Vonir margra USFL eig­enda héngu á þess­ari mál­sókn. Dómurinn féll og NFL deildin var fundin sek af öllum ákæru­liðum. En kvið­dóm­ur­inn leit svo á að Trump og félagar hans væru ekki í alvöru sam­keppni á haust­mark­aðnum og skaða­bæt­urnar voru því aðeins þrír doll­arar. Í kjöl­farið á dóms­upp­skurði gáfust eig­endur USFL lið­anna upp og deildin var sam­stundis lögð niður.

Eftirmálar


Kergjan og bit­urðin voru tölu­verð eftir að USFL hrundi. Ekkert af lið­unum var tekið inn í NFL heldur voru þau öll lögð niður en bestu leik­menn­irnir fóru vita­skuld yfir. Trump leit aldrei til baka, hann hefur yfir­leitt varist spurn­ingum um þennan tíma en telur sig þó hafa staðið sig prýði­lega sem leið­togi deild­ar­innar og að hún hafi í raun aldrei átt mögu­leika. Margir aðrir telja þó að upp­runa­lega hug­myndin hafi verið góð og deildin hafi átt prýð­is­góða mögu­leika á að vaxa og dafna á sínum eigin hraða. Þegar deildin hrundi höfðu bæði ABC og ESPN stöðv­arnar boðið umtals­vert betri samn­inga en það var eng­inn til að skrifa undir. Sagan af USFL er í raun smækkuð mynd af ferli og lífi Donalds Trump. Hann kemur inn, sprengir allt í loft upp, fær alla á sitt band og ef allt gengur ekki upp, skilur hann þá eftir í rúst­unum. Allt snýst um hans eigin per­sónu sem er stans­laust í fjöl­miðlum með sinn stóra munn og aldrei er hlustað á gagn­rýn­is­raddir. Það væri senni­lega betra fyrir alla að hann yrði áfram í raun­veru­leika­sjón­varp­inu og slúð­ur­dálk­unum en ekki í hvíta hús­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár