Bankasýslan undirbýr sölu Landsbankans á sama tíma og ráðherra vill leggja hana niður

For­stjóri og stjórn­ar­for­maður Banka­sýslu ríks­ins hafa sent fjár­mála­ráð­herra bréf þess efnis að stofn­unin skili af sér til­lögu til ráð­herra, um sölu­með­ferð á 30 pró­sent eign­ar­hlut rík­is­ins í Lands­bank­anum, fyrir 31. jan­úar 2016. Bréfið er sent ráð­herra þrátt fyrir að í fjár­laga­frum­varpi fyrir 2016 sé ekki gert ráð fyrir fjár­veit­ingu til Banka­sýsl­unnar. Því er alls óvíst hvort stofn­unin hafi nokk­urt hlut­verk í sölu­ferl­inu en Bjarni Bene­dikts­son lagði á síð­asta þingi fram frum­varp sem ætlað var að leggja niður stofn­un­ina og færa hlut­verk hennar beint til ráð­herra.

Í bréfi þeirra Jóns G. Jóns­sonar, for­stjóra Banka­sýsl­unnar, og Lárusar L. Blöndal, stjórn­ar­for­manns hennar, segir að Banka­sýslan hafi kynnt sér áform um sölu á allt að 30 pró­sent eign­ar­hlut í Lands­bank­anum í fjár­laga­frum­varp­inu fyrir árið 2016. Stofn­unin hafi nú þegar hafið nauð­syn­lega und­ir­bún­ings­vinnu og áætlar að skila form­legri til­lögu til ráð­herra, í sam­ræmi við lög um sölu­með­ferð eign­ar­hluta ríks­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum, fyrir 31. jan­úar næst­kom­andi.

Ætlaði að leggja niður stofnunina

Samkvæmt fjár­laga­frum­varp­inu verður Banka­stofn­un­inni ekki lagt til fé til starfs­rækslu á næsta ári. Í frum­varp­inu er gengið út frá að Banka­sýslan verði lögð niður, í sam­ræmi við það sem Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra boð­aði á síð­asta þingi. Þá lagði Bjarni fram frum­varp til laga um með­ferð og sölu eign­ar­hluta rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum. Í því var lagt til að eign­ar­hlutir ríks­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum fær­ist beint undir fjár­mála­ráð­herra. Nær hund­rað pró­sent eign ríks­ins í Lands­bank­anum er langstærsta eign ríks­ins sem nú er í umsjón Banka­sýsl­unnar.


Frumvarp ráð­herra var til umræðu í þing­sal í maí og fór til fjár­mála­nefndar eftir fyrstu umræðu. Þaðan var það afgreitt úr nefnd um miðjan júní en varð ekki að lögum fyrir þing­lok.

Fyrirkomulagið til skoðunar

Samkvæmt fjár­laga­frum­varp­inu fyrir 2016 þá hafa áætl­anir um að leggja niður Banka­sýsl­una ekki breyst. „Í fjár­laga­frum­varp­inu er tekið mið af frum­varpi til laga um með­ferð og sölu eign­ar­hluta rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum sem var til umfjöll­unar á sl. vor­þingi en það gerir m.a. ráð fyrir því að Banka­sýsla rík­is­ins verði lögð niður og er því ekki gert ráð fyrir fjár­heim­ild vegna stofn­un­ar­innar í frum­varp­inu,“ segir í fjár­laga­frum­varp­inu fyrir 2016.


„Breyt­ingin er til þess fallin að styrkja eig­enda­hlut­verk ráðu­neyt­is­ins gagn­vart fjár­mála­fyr­ir­tækjum og öðrum hluta­fé­lögum sem og félögum utan rík­is­ins. Fram­tíð­ar­fyr­ir­komu­lag á stjórn­sýslu á þessu sviði verður áfram til skoð­unar í haust og gert er ráð fyrir að nið­ur­staða þeirrar skoð­unar muni liggja fyrir við loka­af­greiðslu frum­varps­ins,“ segir enn­fremur.


Árið 2014 fékk Banka­sýslan 74,5 millj­ónir króna í rekstr­arfé og árið 2015 fékk hún 33,6 millj­ónir. Stofn­unin var sett á lagg­irnar árið 2009 og heyrir stjórn hennar undir fjár­mála­ráð­herra. Hlutverk hennar er að fara með eign­ar­hluti rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum.

Boðar „framúrskarandi samstarf“

Í bréfi Banka­sýsl­unnar til fjár­mála­ráð­herra, dag­sett þann 9. sept­em­ber síð­ast­lið­inn, segir að stofn­unin muni fram að 31. jan­úar nk. ræða mögu­lega útfærslu á sölu við Lands­bank­ann, stærstu stofn­ana­fjár­festa inn­an­lands eins og líf­eyr­is­sjóði og fjár­fest­inga­sjóði, og alþjóð­lega fjárfeestingarbanka, sem stofn­unin kann svo að kalla til ráð­gjafar við form­legt sölu­ferli. Að því gefnu að stöð­ug­leiki ríki á fjár­mála­mörk­uðum og að rekstr­ar­af­koma Lands­bank­ans verði í takt við áætl­anir þá ætti fyrstu sölu á eign­ar­hlut rík­is­ins í bank­anum að vera lokið á seinni hluta árs 2016.


„Banka­sýsla rík­is­ins mun leggja ríka áherslu á að upp­lýsa fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið með reglu­bundnum hætti um fram­vindu máls­ins og að eiga fram­úr­skar­andi gott sam­starf við alla hags­muna­að­ila, sem munu þurfa að koma að ferl­inu,“ segir í lok bréfs­ins.

Óvíst um hluverk stofnunarinnar

Þrátt fyrir bréf æðstu manna Banka­sýsl­unnar til ráð­herra þá er alls óvíst um hlut­verk stofn­un­ar­innar í boð­uðu sölu­ferli á 30 pró­sent hlut rík­is­ins í Lands­bank­anum. Samkvæmt frum­varp­inu sem fjár­mála­ráð­herra lagði fram á síð­asta þingi, og vísað er til í fjár­lögum fyrir næsta ár, þá hyggst ráð­herra eins og fyrr greinir leggja niður Banka­sýsl­una. Eign­ar­hlutir í bönk­unum verða í kjöl­farið færðir undir ráð­herra, sem sam­tímis skipar þriggja manna ráð­gjafa­nefnd til að veita honum ráð­gjöf um með­ferð eign­ar­hluta í fjár­mála­fyr­ir­tækjum og und­ir­búa sölu og sölu­með­ferð­ina. Rík­is­kaup eiga að ann­ast sölu­með­ferð­ina og skila ráð­herr­anum rök­studdu mati á því hvaða til­boð sé best.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár