Bankasýsla ríkisins verður lögð niður og ráðherra veitt vald til að einkavæða banka

Banka­sýsla rík­is­ins verður lögð niður og eign­ar­hlutir rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum færðir undir fjár­mála- og efna­hags­mála­ráð­herra. Hann á að setja sér­staka eig­anda­stefnu rík­is­ins sem tekur til þeirra fjár­mála­fyr­ir­tækja sem ríkið á eign­ar­hluti í, skipa þriggja manna ráð­gjaf­ar­nefnd, án til­nefn­inga, til að veita honum ráð­gjöf um með­ferð eign­ar­hluta í fjár­mála­fyr­ir­tækjum og und­ir­búa sölu og sölu­með­ferð þeirra eign­ar­hluta. Þetta kemur fram í frum­varpi til laga um með­ferð og sölu eign­ar­hluta rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum sem útbýtt á vef þings­ins mið­degis í dag.

Ríkið ætlar að selja 30 prósent í Landsbanka á næstu tveimur árum

Íslenska ríkið er umsvifa­mik­ill eig­andi í bönkum lands­ins. Eftir banka­hrunið voru eignir og skuldir föllnu bank­anna færðar yfir í þá nýju með handafli rík­is­ins, þótt ríkið sjálft hafi aldrei átt þær eignir. Til við­bótar lagði ríkið til eig­in­fjár­fram­lag í nýju bank­ana sem tryggði því á end­anum 98 pró­sent hlut í Lands­bank­anum, 13 pró­sent hlut í Arion banka og fimm pró­sent hlut í Íslands­banka.

Í rík­is­fjár­mála­á­ætlun fram til árs­ins 2019, sem var einnig birt í dag, er gert ráð fyrir að ríkið selji 30 pró­sent af hlut í Lands­bank­anum á árunum 2015 og 2016. Sölu­and­virðið á að nota til að borga upp skulda­bréf sem gefin voru út til að fjár­magna fallnar fjár­mála­stofn­anir árið 2008, og námu í lok síð­asta árs 213 millj­örðum króna. Þetta á að lækka vaxta­kostnað rík­is­ins um 3-4 millj­arða króna á ári næstu árin.

Auk þess á íslenska ríkið hluti í nokkrum spari­sjóðum.

Einkavæðing banka, taka tvö

Síðasta rík­is­stjórn setti á fót sér­staka rík­is­stofnun, Banka­sýslu rík­is­ins, til að halda á hlutum í fjár­mála­fyr­ir­tækjum. Í nýja frum­varp­inu er lagt til að sú stofnun verði lögð niður og vald hennar fært beint undir fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra.

Til­gang­ur­inn er aug­ljós­lega sá að hefja und­ir­bún­ing að sölu og sölu­með­ferð eign­ar­hluta í fjár­mála­fyr­ir­tækjum. Nýtt einka­væð­ing­ar­ferli er i bígerð. Síðast þegar ríkið réðst í slíka einka­væð­ing­ar­að­gerð, á árunum 2002 og 2003, gekk það ekki betur en svo að bank­arnir sem það seldi uxu á örfáum árum upp í að verða marg­falt stærri en þjóð­ar­fram­leiðsla Íslend­inga og hrundu svo eins og spila­borg haustið 2008. Sú einka­væð­ing hefur verið harð­lega gagn­rýnd fyrir spill­ingu, ógegn­sæi og ófag­leg­heit, enda reynsla þeirra sem fengu að kaupa bank­ana af fjár­mála­starf­semi lítil sem engin.

Ráðherra tekur einn ákvörðun um sölu

Samkvæmt nýja frum­varp­inu hefur Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­mála­ráð­herra, heim­ild til að selja eign­ar­hluti rík­is­ins í Arion banka, Íslands­banka, spari­sjóðum og 30 pró­sent hlut í Lands­bank­anum. Hann getur að eigin frum­kvæði, eða að feng­inni til­lögu ráð­gjafa­nefndar sem hann einn skipar, hafið nýtt banka­einka­væð­ing­ar­ferli. Þegar slíkt ákvörðun liggur fyrir skal lögð áhersla á „opið sölu­ferli, gagn­sæi, hlut­lægni og hag­kvæmni. Með hag­kvæmni er átt við að leitað sé hæsta verðs eða mark­aðs­verðs fyrir eign­ar­hluti. Þess skal gætt að skil­yrði þau sem til­boðs­gjöfum eru sett séu sann­gjörn og að þeir njóti jafn­ræðis. Við sölu skal kapp­kosta að efla virka og eðli­lega sam­keppni á fjár­mála­mark­aði.“.

Rík­is­kaup eiga að ann­ast sölu­með­ferð­ina og skila ráð­herr­anum rök­studdu mati á því hvaða til­boð sé best. Ráðherra tekur hins vegar einn ákvörðun um hvort að taka eigi til­boði í við­kom­andi eign­ar­hlut í banka eða ekki.

Lögin, verði þau sam­þykkt, taka gildi í byrjun næsta árs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár