Gjaldeyrisforðinn minnkar en „hreinn“ forði stækkar

Gjald­eyr­is­forði Seðla­bank­ans um síð­ustu mán­að­ar­mót var 604,5 millj­arðar króna að stærð og lækk­aði um 15,5 millj­arða í mán­uð­inum. Enu að síður jókst hreinn gjald­eyr­is­forði, þ.e. erlendar eignir að frá­dregnum erlendum skuldum. Hreinn forði nam 447,6 millj­örðum króna í lok ágúst sam­an­borið við 407,9 millj­arða króna í lok júlí.

Frá þessu greinir á vef Seðla­bank­ans. Nettó útgreiðslur gjald­eyr­is­eigna Seðla­bank­ans og rík­is­sjóðs fyrir næstu tólf mán­uði eru áætl­aðar um 156,9 millj­arðar króna.


Seðla­bank­inn hefur verið afar virkur á gjald­eyr­is­mark­aði und­an­farna mán­uði og hefur keypt stóran hluta þess gjald­eyris sem streymt hefur til lands­ins, ekki síst með komu ferða­manna. Met hafa verið slegin í gjald­eyr­is­kaupum og áætl­aði grein­ing Íslands­banka í júlí síð­ast­liðnum að hreinn gjald­eyr­is­forði verði þrisvar sinnum stærri í árs­lok en hann var í árs­byrjun.


Í nýlegri grein­ingu hag­fræði­deildar Lands­bank­ans kom fram að kaup Seðla­bank­ans á gjald­eyri í ágúst hafi nuið 319 millj­ónum evra. Hrein gjald­eyr­is­kaup hans það sem af er ári er þannig orðin um 1,1 millj­arður evra.


Ástæða fyrir lækkun vergs gjald­eyr­is­forða má rekja til end­ur­greiðslu erlendra skulda rík­is­sjóðs í byrjun ágúst, en þá keypti rík­is­sjóður eigin skulda­bréf að nafn­virði 400 millj­ónir Banda­ríkja­doll­ara. Rík­is­sjóður not­aði til þess inn­stæður sínar í erlendum gjald­eyri hjá Seðla­bank­anum og lækkar forð­inn því sem þeim nemur.


Með miklum kaupum á gjald­eyri í því skyni að stækka óskuld­settan gjald­eyr­is­forða þá und­ir­býr Seðla­bank­inn sig fyrir aflandskrón­u­út­boð sem halda á í haust, og er einn stórra þátta í áætlun stjórn­valda um losun fjár­magns­hafta.


Athuga­semd rit­stjórnar: Upp­haf­legri frétt hefur verið breytt en þar var „hreinn gjald­eyr­is­forði“, eins og hann er skil­greindur af Seðla­bank­anum sem erlendar eignir umfram erlendar skuldir, kall­aður „óskuld­settur forði“. Því hefur verið breytt í kjöl­far athuga­semda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár