Kaupréttaráætlun starfsmanna Símans var samþykkt

Kaup­rétt­ar­á­ætlun fyrir starfs­fólk Símans var sam­þykkt á hlut­hafa­fundi félags­ins í gær. Fram kemur í til­kynn­ingu til Kaup­hallar að áætl­unin er til næstu þriggja ára, eins og áður hafði verið greint frá. Upp­haf­lega lagði stjórn til að hún gilti til næstu fimm ára en því var breytt eftir mót­mæli nokk­urra líf­eyr­is­sjóða í eig­enda­hópi Símans.

Á hlut­hafa­fundi í gær var stjórn félags­ins veitt heim­ild til þess að gefa út nýtt hlutafé að fjár­hæð 510 millj­ónir til fimm ára vegna skuld­bind­inga í tengslum við kaup­rétt­ar­á­ætlun.

Stefnt er að skrán­ingu Símans á markað nú í haust. Stærsti eig­andi félags­ins er Arion banki. Í síð­asta mán­uði keyptu lyk­il­stjórn­endur og fjár­festar fimm pró­senta hlut í félag­inu á um 1,3 millj­arða króna eða 2,5 krónur á hlut. Í kjöl­farið var greint frá áformum stjórnar um að starfs­fólk gæti keypt hluta­bréf fyrir sex hund­ruð þús­und krónur á ári á sama gengi. Því mót­mæltu nokkrir líf­eyr­is­sjóðir í eig­enda­hóp­inum. Þeir töldu að með því að fast­setja verð í fimm ár fram í tím­ann þá gæti það leitt til þess að starfs­menn fái afhent hluta­bréf undir mark­aðs­verði og sam­hliða muni hlutir ann­arra hlut­hafa skerð­ast. Nið­ur­staðan var sú að kaup­rétt­ar­á­ætlun var stytt úr fimm árum í þrjú.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár