Keyptu í Símanum fyrir 1,3 milljarða - Fyrrum forstjóri Vodafone á meðal kaupenda

Nokkrir stjórn­endur Símans og hópur ann­arra fjár­festa, meðal ann­ars erlendra, keyptu í dag fimm pró­sent hlut í félag­inu á 1.330 millj­ónir króna. Miðað við það verð er mark­aðsvirði Símans 26,6 millj­arðar króna. Hópinn leiðir hol­lenski fjár­festir­inn Bertrand Kan, sem er fyrrum yfir­maður hjá Morgan Stanley. Kan þekkir vel til Símans, en hann stýrði meðal ann­ars sölu­ferli hans árið 2005, þegar Síminn var einka­væddur, fyrir hönd Morgan Stanley.

Á meðal ann­arra sem keyptu er Orri Hauksson, for­stjóri Símans, sem keypti sam­tals 0,4 pró­sent hlut fyrir um 106 millj­ónir króna.

Þá vekur athygli að fyrrum for­stjóri eins helsta sam­keppn­is­að­ila Símans, Vodafone á Íslandi, er á meðal þeirra fjár­festa sem til­heyra hópnum. Sá heitir Ómar Svav­ars­son og stýrði Vodafone á Íslandi í fimm ár, eða þar til í maí 2014 þegar honum var sagt upp störfum. Ómar hafði þá starfað hjá Vodafone frá árinu 2005.

Eftir söl­una á Arion banki enn 33 pró­sent hlut í Símanum, sem stærsta fjar­skipta­fyr­ir­tæki lands­ins. Stefnt er að því að skrá hluta­bréf Símans í Kauphöll Íslands í haust og í aðdrag­anda þess áformar Arion banki að minnka enn frekar hlut sinn. Aðrir stórir eig­endur Símans eru íslenskir líf­eyr­is­sjóðir, þeirra stærstur er Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna 13,23 pró­sent hlut.

Menn sem störfuðu hjá Morgan Stanley og Goldman Sachs


Fjár­festa­hóp­ur­inn sam­anstendur af fjár­festum frá fimm löndum ásamt nokkrum af stjórn­endum Síma­sam­stæð­unnar. Á meðal þeirra er Orri Hauksson, for­stjóri Símans. Aðrir úr stjórn­enda­hópnum sem kaupa eru þeir sem sitja fram­kvæmda­stjórn­ar­fundi Símans (fram­kvæmda­stjórar Símans eru Birna Ósk Ein­ars­dóttir, Magnús Ragn­ars­son, Eric Figueras og Óskar Hauksson), fram­kvæmda­stjóri Mílu (Jón Ríkharð Krist­jáns­son) og fram­kvæmda­stjóri Sensa (Val­gerður Hrund Skúla­dóttir).

Til við­bótar eru fimm erlendir ein­stak­lingar í fjár­fest­inga­hópnum. Þeir eru, auk Kan, þeir Joe Ravitch, Adam Samu­els­son, Troels Askerud og Kaj Juul-Pedersen. Hópurinn kemur úr ýmsum áttum en Ravitch var til að mynda í stjórn­enda­hópi Goldman Sachs í á annan ára­tug og Juul-Pedersen er fyrrum fram­kvæmda­stjóri hjá Ericsson.

Þá eru þrír íslenskir einka­fjár­festir líka með í hópnum. Á meðal þeirra er Sig­ur­björn Þor­kels­son, sem starf­aði lengi sem yfir­maður hjá Lehman Brothers, var einn eig­andi Haga og stofn­aði fyrr á þessu ári verð­bréfa­miðl­un­ina Fossa mark­aði með nokkrum fyrrum lyk­il­starfs­mönnum úr Straumi. Hinir íslensku fjár­fest­arnir eru Stefán Ákason, fyrrum for­stöðu­maður skulda­bréfa­miðl­unar Kaup­þings, og Ómar Svav­ars­son, fyrrum for­stjóri Vodafone á Íslandi.

[caption id="attachment_37140" align="alignnone" width="1000"] Ómar Svav­ars­son var for­stjóri Vodafone þegar það félag var skráð í Kauphöll Íslands. Nú er hann hlut­hafi í Símanum.[/caption]

Markaðsvirði Símans 26,6 milljarðar


Kaup­verðið fyrir fimm pró­sent hlut­inn var 1.330 millj­ónir króna , eða um 2,5 krónur á hlut. Síminn birtir ekki hálfs­árs­upp­gjör sitt fyrr en 27. ágúst en félagið hagn­að­ist um 3,3 millj­arða króna á árinu 2014. Hagnaður þess fyrir fjár­magns­kostnað, afskriftir og skatta var 8,3 millj­arðar króna, velta þess um 30 millj­arðar króna og eigið fé félags­ins 29,9 millj­arðar króna.

Miðað við kaup­verðið sem stjórn­endur Símans og alþjóð­legir við­skipta­fé­lagar þeirra greiddu fyrir fimm pró­sent hlut í félag­inu þá er mark­aðsvirði Símans 26,6 millj­arðar króna, eða nokkru lægra en eigið fé hans um síð­ustu ára­mót.

[caption id="attachment_12433" align="align­right" width="160"] Orri Hauksson, for­stjóri Símans.[/caption]

Orri Hauksson er sá stjórn­andi Símans sem keypti stærstan hlut þeirra sem festu sér fimm pró­sent í Símanum í dag. Hann fer nú með 0,4 pró­sent hlut og miðað við upp­gefið kaup­verð hefur hann greitt um 106 millj­ónir króna fyrir þann hlut. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Símanum er algeng­asta upp­hæð sem keypt var fyrir á meðal ann­arra stjórn­enda átta til tíu millj­ónir króna.

Í dag var einnig til­kynnt um að stjórn Símans leggi til að fast­ráðnir starfs­menn fyr­ir­tæk­is­ins fái allir tæki­færi til að eign­ast hlutafé í félag­inu þegar það verður skráð á markað í haust. Starfs­menn munu geta á fimm árum tryggt sér hluta­bréf fyrir allt að sex hund­ruð þús­und krónur árlega. Sama verð mun standa starfs­mönn­unum til boða í val­rétt­ar­á­ætl­un­inni og fjár­fest­arnir sem keyptu í dag fengu bréf sín á, eða 2,5 krónur á hlut.

Skráð á markað í haust


Orri til­kynnti það á Kaup­hall­ar­dögum Arion banka 8. apríl síð­ast­lið­inn að Síminn yrði skráður á hluta­bréfa­markað í haust. Arion banki og Arctica Finance hafa unnið að und­ir­bún­ingi hluta­fjár­út­boðs vegna skrán­ing­ar­innar. Ljóst hefur verið um nokk­urt skeið að Arion banki ætl­aði að selja hluta af eign sinni í Símanum í aðdrag­anda skrán­ing­ar­innar en ekki hefur legið fyrir hversu stór sá hluti yrði.

Rúmlega viku síðar var til­kynnt um sam­ein­ingu Símans og Skjásins, sem rekur meðal ann­ars Skjáeinn, Skjábíó, Skjákrakka, Skjáheim, Skjá­sport og útvarps­stöð­ina K100,5, í morgun. Í raun hefði þetta skref verið stigið fyrir mörgum árum síðan ef eft­ir­lits­yf­ir­völd hefðu heim­ilað það, enda Skjárinn verið syst­ur­fé­lag Símans í ára­tug.

Þess í stað hafði Skjárinn verið að kaupa þjón­ustu af Símanum árum saman sem gerði það að verkum að skuld upp á meira en millj­arð króna hafði mynd­ast á efna­hags­reikn­ingi Skjásins. Þeirri skuld var að mestu breytt í hlutafé í lok árs 2013. Síminn hefur á móti, vegna skil­yrða sem sett voru af Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu árið 2005, ekki mátt nýta efni Skjásins við sölu á vörum sínum innan fjar­skipta­hluta félags­ins.

Þetta breytt­ist allt með því að Sam­keppn­is­eft­ir­litið lyfti hömlum á sam­starfi milli félag­anna í vor.

Nú er þetta allt breytt. Og ljóst að íslenskir neyt­endur munu finna vel fyrir þeirri eðl­is­breyt­ingu sem er að eiga sér stað á fjöl­miðla- og fjar­skipta­mark­aði á næstu miss­erum.

Mikið tap eftir hrun


Skipti, móð­ur­fé­lag Símans, var sam­einað dótt­ur­fé­lag­inu Símanum á síð­asta ári og er sam­stæðan nú öll rekin undir nafni Símans. Mikill við­snún­ingur hefur orðið á rekstri hennar á und­an­förnum árum. Á tíma­bil­inu 2008 og til loka árs 2013 tap­aði félagið sam­tals 50 millj­örðum króna. Í fyrra hagn­að­ist félagið hins vegar í fyrsta sinn frá hruni, um 3,3 millj­arða króna.

Hið mikla tap sem var á rekstri Skipta á árunum eftir hrun var að stóru leyti til­komin vegna þess að við­skipta­vild félags­ins var skrúfuð niður um 33 millj­arða króna frá árs­lokum 2008. Á árinu 2013, sama ári og fjár­hags­legri end­ur­skipu­lagn­ingu Skipta lauk, bók­færði félagið til að mynda 17 millj­arða króna tap þrátt fyrir að hagn­aður fyrir fjár­magnsliði, afskriftir og skatta hefði verið 8,3 millj­arðar króna.

Síminn hefur áður verið á markaði


Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Símann fer á markað. Þegar Exista, og við­skipta­legir með­reið­ar­sveinar þess áður stór­tæka fjár­fest­ing­ar­fé­lags, keyptu Símann af íslenska rík­inu undir hatti félags sem fékk nafnið Skipti á upp­hæð sem í dag myndi vera um 140 millj­arðar króna, árið 2005 fylgdu því ákveðin skil­yrði. Eitt slíkt var ákvæði í kaup­samn­ingi um að almenn­ingi og öðrum fjár­festum yrði boðið að kaupa 30 pró­sent hlut í félag­inu í gegnum hluta­fjár­út­boð og skrán­ingu á markað.

Þegar kom að skrán­ing­unni í mars 2008 voru óveð­urs­skýin farin að hrann­ast upp yfir íslensku við­skipta­lífi og hluta­bréfa­verð hafði hríð­fallið mán­uð­ina á undan. Skipti voru skráð á markað en fljót­lega eftir að fyrstu við­skipti voru hringd inn á skrán­ing­ar­deg­inum gerði Exista yfir­tökutil­boð í félagið. Skipti voru síðan afskráð nokkrum mán­uðum síðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár