Starfsfólk Símans fær að kaupa í félaginu

Stjórn Símans leggur til að starfs­menn fyr­ir­tæk­is­ins fái tæki­færi til að eign­ast hlutafé í Símanum þegar félagið verður skráð á markað, eins og stefnt er að í haust. Frá þessu er greint í dag í til­kynn­ingu frá félag­inu, en eins og Kjarninn greindi frá hefur hópur erlendra fjár­festa og stjórn­enda Símans keypt fimm pró­sent hlut í félag­inu.

Val­rétt­ar­á­ætl­unin mun ná til allra fast­ráð­inna starfs­manna Símans hf. og dótt­ur­fé­laga ann­arra en Mílu. Starfs­menn munu geta á fimm árum tryggt sér hluta­bréf fyrir allt að sex hund­ruð þús­und krónur árlega.

Tilkynning frá Símanum í heild:


„Stjórn Símans leggur til á næsta hlut­hafa­fundi að starfs­menn Símans fái tæki­færi til þess að eign­ast hlut í Símanum eftir að hann fer á markað. Verði til­lagan sam­þykkt munu starfs­menn Símans geta fest sér hluta­bréf og kosið að inn­leysa þau að ári eða fram­lengja kaup­rétt­inn til allt að fimm ára.


„Mark­miðið með val­rétt­ar­á­ætl­un­inni er að sam­þætta hags­muni starfs­manna sam­stæð­unnar við lang­tíma­mark­mið Símans, auka tryggð starfs­fólks og lang­tíma­hugsun. Gangi félag­inu fjár­hags­lega vel má vænta þess að verð hluta­bréfa hækki og munu starfs­menn­irnir þá njóta þess,“ segir Orri Hauksson for­stjóri Símans um til­lögu stjórn­ar­innar: „Með fimm ára fyr­ir­komu­lag­inu er girt fyrir áhættu­sækni til skamms tíma. Val­rétt­ur­inn á að auka virði fyr­ir­tæk­is­ins til lengri tíma litið og gera það að eft­ir­sótt­ari fjár­fest­ingu og fram­úr­skar­andi vinnu­stað.“


Val­rétt­ar­á­ætl­unin mun ná til allra fast­ráð­inna starfs­manna Símans hf. og dótt­ur­fé­laga ann­arra en Mílu. Starfs­menn geta á þessum fimm árum tryggt sér bréf fyrir allt að sex hund­ruð þús­und krónur árlega, í sam­ræmi við heim­ild í skatta­lögum. Starfs­menn Mílu eru und­an­skildir þar sem sam­komu­lag við Sam­keppn­is­eft­ir­litið tryggir rekstr­ar­legt sjálf­stæði Mílu ehf. á allan hátt.


Ragna Margrét Norðdahl, mannauðs­stjóri Símans, segir til­lögu stjórn­ar­innar spenn­andi fyrir starfs­fólk og áhuga­verða leið til þess að efla það í störfum sínum fyrir Símann. „Val­rétt­ar­á­ætl­unin veitir mögu­leika á kjara­bótum umfram launa­hækk­anir þegar vel gengur og er því mikil hvatn­ing til þess að sjá árangur af eigin starfi. Starfs­fólk stýrir því sjálft hvernig það nýtir sér þau tæki­færi sem í áætl­un­inni fel­ast. Vilji fólk ekki taka neina áhættu getur það engu að síður notið ávöxt­unar.“


Arion banki á stærstan hlut í Símanum og til­kynnti fyrr í dag að hann hefði selt um 5% hlut til hóps erlendra og inn­lendra fjár­festa og þar á meðal nokk­urra stjórn­enda Síma­sam­stæð­unnar. Hópurinn er leiddur er af hol­lenska fjár­fest­inum Bertrand Kan en það var Orri Hauksson, for­stjóri Símans sem hafði frum­kvæði að því að setja hóp­inn saman. Eftir söl­una á Arion banki 33% hlut í Símanum. Orri fer með um 0,4% hlut í Símanum eftir við­skiptin.


Stefnt er að því að Síma­sam­stæðan, sem auk Símans sjálfs sam­anstendur af Mílu, Staka Automation, Rad­íó­miðun, Talenta, On-Waves og Sensa, fari á markað nú í haust.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár