Hópur leiddur af hollenskum fjárfesti kaupir fimm prósent í Símanum

Hópur undir for­ystu hol­lenska fjár­fest­is­ins Bertrand Kan hefur keypt fimm pró­sent hlut í Símanum af Arion banka. Eftir söl­una á Arion banki enn 33 pró­sent hlut í Símanum, stærsta fjar­skipta­fyr­ir­tæki lands­ins. Stefnt er að því að skrá hluta­bréf Símans í Kauphöll Íslands í haust og í aðdrag­anda þess áformar Arion banki að minnka enn frekar hlut sinn.

Fjár­festa­hóp­ur­inn sam­anstendur af fjár­festum frá fimm löndum ásamt nokkrum af stjórn­endum Síma­sam­stæð­unnar. Á meðal þeirra er Orri Hauksson, for­stjóri Símans.

Í til­kynn­ingu vegna þessa segir að Kan hafi ára­tug­a­reynslu af fjár­fest­inga­starf­semi á sviði fjar­skipta og að Orri hafi átt frum­kvæði að því að hóp­ur­inn var mynd­aður.

Þar er haft eftir Bertrand Kan að það sé mjög spenn­andi að fá að taka þátt í að skrifa næsta kafla í sögu Símans. "Ég kynnt­ist félag­inu og íslenskum fjar­skipta­mark­aði fyrst fyrir um ára­tug þegar ég hafði með höndum það verk­efni að leiða sölu­ferli Símans fyrir hönd Morgan Stanley. Heim­ur­inn hefur tekið miklum breyt­ingum síðan þá, en ég vona að alþjóð­leg reynsla mín og ann­arra fjár­festa í þessum hópi geti komið fyr­ir­tæk­inu að notum í fram­tíð­inni.“

Orri Hauksson segir það stórt skref fyrir stjórn­enda­hóp Símans að taka þátt í eign­ar­haldi félags­ins. "Við höfum trú á fjár­fest­ing­unni til lengri tíma, teljum að hægt sé að auka verð­mæti félags­ins og erum sér­stak­lega ánægð með að fá til liðs við okkur nýja fjár­festa sem í for­tíð og nútíð hafa náð að skapa ríku­lega ávöxtun úr fjar­skipta­verk­efnum víðs vegar um heim.“

Hösk­uldur H. Ólafsson, banka­stjóri Arion banka, segir það gleði­legt að sjá áhuga fjár­festa á Símanum í aðdrag­anda skrán­ingu félags­ins í kaup­höll. "Okkur þykir jákvætt að sjá bæði erlenda og inn­lenda fjár­festa í þeim hópi sem nú kaupir hlut í Símanum og jafn­framt að stjórn­endur sam­stæð­unnar séu orðnir hlut­hafar, en það sýnir trú þeirra á félag­inu og fram­tíð þess.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár