SFS funduðu með sendiherra Rússlands

Kolbeinn Árnason, fram­kvæmda­stjóri Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi, fund­aði í gær með sendi­herra Rúss­lands á Íslandi, Anton V. Vasiliev, í sendi­ráðs­bú­staði Rússa í Reykja­vík. Þetta stað­festir Kolbeinn í sam­tali við Kjarnann. Hann segir að í sam­tali við Rússa hafi verið leitað útskýr­inga á þeirra hlið máls­ins, enda sé það einn til­gangur sendi­herra hér­lendis. Rætt hafi verið hvort ein­hver mögu­leiki sé á að Rússar opni fyrir inn­flutn­ing frá Íslandi, þrátt fyrir þátt­töku Íslands í við­skipta­þving­unum gegn Rússum.

Tólf dagar eru liðnir frá því að Íslandi var bætt á inn­flutn­ings­bann­lista Rússa. Bannið hefur í för með sér að stærsti mark­aður með upp­sjáv­ar­fisk lok­ast fyrir íslenskum sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum. Rússar hafa á síð­ustu árum meðal ann­ars verið stærsti kaup­andi íslensks mak­ríls. Útflutn­ings­verð­mæti sjáv­ar­af­urða til Rúss­lands á síð­asta ári nam um 24 millj­örðum króna sam­kvæmt Hag­stof­unni. Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi áætla að undir eðli­legum kring­um­stæðum myndi verð­mæti sjáv­ar­af­urða í ár til Rúss­lands nema um 37 millj­örðum króna.

Spurður um hvort ein­hver fram­vinda hafi orðið á málum segir Kolbeinn að fátt nýtt sé að frétta. Unnið sé með stjórn­ar­ráð­inu við að lág­marka skað­ann sem hlýst af bann­inu, til að mynda með útgáfu nýrra reglu­gerða, auk þess sem rætt er við Evr­ópu­sam­bandið um stöðu mála. Lítið nýtt hafi borist frá Rúss­landi og Evr­ópu­sam­band­inu frá því að bannið var útvíkkað til Íslands og fleiri landa.

Ráðamenn á Íslandi hafa frá setn­ingu inn­flutn­ings­banns­ins átt í sam­skiptum við rúss­nesk yfir­völd. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra ræddi við Dmitry Medvedev, for­sæt­is­ráð­herra Rúss­lands, sím­leiðis dag­inn eftir að bannið tók gildi og þá hitti Sigurður Ingi Jóhanns­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, sendi­herra Rússa á Íslandi, sama dag og bannið tók gildi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár