Sigmundur Davíð og Medvedev ræddu saman - Málið í „algjörum forgangi“

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­sæt­is­ráð­herra, átti í dag síma­fund með Dmitry Medvedev, for­sæt­is­ráð­herra Rúss­lands. Ráð­herr­arnir ræddu þá alvar­legu stöðu sem upp er komin í sam­skiptum ríkj­anna, að því er segir í til­kynn­ingu frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu.

Eins og kunn­ugt er útvíkk­uðu Rússar inn­flutn­ings­bann sitt og nær það nú til Íslands. Þetta bitnar á við­skiptum land­anna en Rúss­lands­mark­aður er einn helsti mark­aður íslenskra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja þegar kemur að upp­sjáv­ar­teg­undum, þar á meðal mak­ríl.

„For­sæt­is­ráð­herra Íslands gerði for­sæt­is­ráð­herra Rúss­lands grein fyrir því að áhrif við­skipta­þving­ana hér á landi væru hlut­falls­lega meiri en hjá flestum öðrum ríkjum sem undir þær falla og virð­ast bitna mest á útflutn­ingi á sjáv­ar­af­urðum,“ segir í til­kynn­ing­unni.

,,Við áttum gott sam­tal þar sem við ræddum aðdrag­anda þeirrar stöðu sem komin er upp og urðum sam­mála um að æski­legt væri að emb­ætt­is­menn land­anna héldu áfram sam­skiptum. Það eru gríð­ar­legir hags­munir undir og rík­is­stjórnin setur þetta mál í algeran for­gang“, sagði Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­sæt­is­ráð­herra, að afloknum fund­inum.

Samtalið við for­sæt­is­ráð­herra Rúss­lands átti sér stað í kjöl­far þess að rík­is­stjórnin fór yfir mögu­leg áhrif við­skipta­þving­ana á fundi sínum fyrr í dag. „Ísland og Rússland eiga langa og jákvæða við­skipta­sögu að baki og það hefur verið vilji hér á landi til að byggja áfram á því sterka við­skipta­sam­bandi. Íslensk stjórn­völd hafa und­an­farnar vikur átt mikil sam­skipti við rúss­nesk stjórn­völd eftir ýmsum leiðum til að reyna að koma í veg fyrir að mót­að­gerðir Rússa bitn­uðu óeðli­lega mikið á Íslandi. Stjórn­völd munu halda þeim sam­skiptum áfram með það að mark­miði að draga úr nei­kvæðum áhrifum á mik­il­væg störf í sjáv­ar­út­vegi og grein­ina í heild,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár