Aftur hrun á hlutabréfamörkuðum í Kína - 6,4 prósent fall við opnun

SCI (Shanghai Composite Index) vísi­tala hluta­bréfa­mark­að­ar­ins í Kína lækk­aði um 6,4 pró­sent þegar við­skipti hófust nú fyrir skömmu. Þetta kemur í kjöl­far mik­illa lækk­ana á mark­aðnum; ríf­lega fimm pró­sent á föstu­dag og 8,5 pró­sent í gær, 24. ágúst. Auk þess lækk­uðu flestar vísi­tölur hluta­bréfa­mark­aða í heim­inum, Dow Jones vísi­talan banda­ríska um 3,57 pró­sent og FTSE vísi­talan breska um 4,7 pró­sent, svo dæmi séu tekin.

Öll ávöxtun hluta­bréfa­mark­að­ar­ins í Kína á árinu er nú horfin, og gott betur, þrátt fyrir að mark­að­ur­inn hafi nærri þre­fald­ast á ein­ungis þriggja mán­aða tíma­bili, frá mars til júní.

Fjár­festar virð­ast ótt­ast efna­hags­erf­ið­leika í Kína, sem veldur því að þeir selja hluta­bréf og færa í aðra eigna­flokka.


Breaking: China shares open down 6.4% as global markets brace for another bru­is­ing day http://t.co/5xQPDPcm8q


— Wall Street Journal (@WSJ) August 25, 2015

Alþjóða­mark­aðir hafa ein­kennst af miklum lækk­unum að und­an­förnu og virð­ist ótt­inn um að kín­verska hag­kefið sé að fara í gegnum mikla nið­ur­sveiflu, vera rótin að van­traustinu.

Eins og fram kom í frétta­skýr­ingu Kjarnans í gær, 24. ágúst, var titr­ingur tölu­verður á mörk­uðum og var þar meðal ann­ars haft eftir Michelle Fleury, blaða­konu BBC í New York, að margir ótt­uð­ust að glund­roði (panic) væri ekki svo langt undan á mörk­uðum, með til­heyr­andi ójafn­vægi og gengd­ar­lausu tapi margra fjár­festa.

En eins og jafnan þegar hluta­bréfa­mark­aðir eru ann­ars vegar, þá er erfitt að sjá fyrir hvernig fram­vinda mála verður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár