Rússabann hefur lítil áhrif haft á gengi HB Granda í Kauphöllinni

Inn­flutn­ings­bann Rúss­lands á mat­væli frá Íslandi hefur lítil áhrif haft á gengi hluta­bréfa í HB Granda í Kaup­höll­inni. Félagið lækk­aði um 2,7 pró­sent í við­skiptum á fimmtu­dag í síð­ustu viku, sama dag og Rússar til­kynntu um þá ákvörðun að bæta Íslandi og fleiri löndum við inn­flutn­ings­bann­lista sinn. Þann sama dag sendi HB Grandi frá sér til­kynn­ingu til Kaup­hall­ar­innar og greindi frá því að sautján pró­sent af tekjum félags­ins 2014 hafi komið til vegna við­skipta við Rússland.

Á föstu­dag, dag­inn eftir að greint var frá inn­flutn­ings­bann­inu, hækk­aði gengi HB Granda um ríf­lega þrjú pró­sent í sam­tals nærri 400 millj­óna króna við­skiptum. Við lok við­skipta­dags stóð gengi bréf­anna í 39,9 krónum á hlut. Við lokun mark­aða í dag, mið­viku­dag, er gengi bréf­anna um 39,35 krónur á hlut en engin við­skipti voru gerð með bréf í félag­inu í dag.

Mark­aðsvirði HB Granda, eins stærsta sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækis á Íslandi og það eina sem skráð er á mark­aði, hefur þannig lítið breyst, þrátt fyrir inn­flutn­ings­bann Rússa og mögu­legra afleið­inga þess á tekjur félags­ins. HB Grandi áætlar að tekjur muni lækka um tíu til fimmtán millj­ónir evra á árs­grund­velli vegna banns­ins, en tekið er fram í til­kynn­ing­unni að erfitt sé að meta nákvæm­lega hver fjár­hags­leg áhrif verða.

Sala HB Granda á fyrsta árs­fjórð­ungi 2015 nam um 53,3 millj­ónum evra og jókst frá því að vera tæp­lega 42 millj­ónir evra á sama árs­fjórð­ungi 2014. Vergur hagn­aður ríf­lega tvö­fald­að­ist milli þess­ara tíma­bila, hann var 24,8 millj­ónir evra á fyrsta árs­fjórð­ungi 2015 en 11 millj­ónir evra á fyrsta árs­fjórð­ungi 2014. Eignir HB Granda í lok mars 2015 námu um 393 millj­ónum evra, jafn­virði um 57 millj­arða króna. Eigið fé félags­ins var 233 millj­ónir evra, jafn­virði um 34 millj­arða króna. Óhætt er að segja að rekstur og efna­hagur félags­ins standi vel.

Breyti ekki útflutningshorfum


Ljóst er að inn­flutn­ings­bann Rúss­lands hefur veru­leg áhrif á útflutn­ing sjáv­ar­af­urða, helst upp­sjáv­ar­fisks, og hafa Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi sagt að við venju­legar aðstæður yrði útflutn­ings­verð­mæti sjáv­ar­af­urða til Rúss­lands í ár um 37 millj­arðar króna. Samkvæmt tölum hag­stof­unnar nam útflutn­ingur til Rúss­lands um 29 millj­örðum króna á síð­asta ári, þar af var um 24 millj­arðar sjáv­ar­af­urðir, og hefur útflutn­ings­verð­mætið vaxið ört á síð­ustu árum.

Fisk­út­flytj­endur leita nú nýrra mark­aða fyrir afurðir sínar, helst mak­ríl, og búist er við að lægra verð fáist fyrir afurð­irnar en hefði feng­ist í Rúss­landi.

Seðla­bank­inn birti í dag upp­færða efna­hags­spá fyrir árin 2015 til 2017. Í nýjasta hefti Pen­inga­mála, árs­fjórð­ungs­legu riti Seðla­bank­ans, er gert ráð fyrir að vöru­út­flutn­ingur frá Íslandi hald­ist nær óbreyttur í ár frá því sem bank­inn spáði í maí síð­ast­liðnum, þrátt fyrir inn­flutn­ings­bann Rússa. Í spá bank­ans er gert ráð fyrir að frystur upp­sjáv­ar­fiskur sem hefði farið til Rúss­lands fari í bræðslu. Við það lækki útflutn­ings­verð­mæti hans um átta til tíu millj­arða króna. Á móti komi að fram­leiðslu- og útgerð­ar­kostn­aður mjöls og lýsis sé lægri en vegna fryst­ingar.

„Líklegt er að áhrif við­skipta­banns­ins verði minni en þau hefðu verið ef við­skipta­bannið hefði verið sett á í fyrra vegna erf­ið­ara efna­hags­á­stands í Rúss­landi í ár og hefur útflutn­ingur til Rúss­lands það sem af er ári verið tölu­vert minni en á síð­asta ári. Einnig er óvíst hvernig til tekst við að afla nýrra mark­aða fyrir frystar afurðir upp­sjáv­ar­fiska,“ segir í Pen­inga­málum sem kom út í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár