Seðlabankinn: Rússabann breytir ekki útflutningshorfum

Seðla­banki Íslands gerir ráð fyrir að vöru­út­flutn­ingur hald­ist nær óbreyttur frá því sem bank­inn hefur áður spáð, þrátt fyrir mögu­legra áhrifa inn­flutn­ings­banns sem rúss­nesk stjórn­völd til­kynntu um í síð­ustu viku. Í nýrri efna­hags­spá sem Seðla­bank­inn birti í dag í Pen­inga­málum, árs­fjórð­ungs­legu riti bank­ans, segir að útlit sé fyrir svip­aðan vöxt útflutn­ings sjáv­ar­af­urða og álaf­urða á þessu ári og næstu tveimur árum. Lík­leg­ast hefðu áhrif banns­ins verið meiri ef það hefði komið til í fyrra, vegna erf­ið­ara efna­hags­á­stands í Rúss­landi í ár.

„Horfur um vöru­út­flutn­ing eru nær óbreyttar fyrir þetta og næstu tvö ár þar sem útlit er fyrir svip­aðan vöxt útflutn­ings sjáv­ar­af­urða og álaf­urða. Tekið er til­lit til mögu­legra áhrifa inn­flutn­ings­banns sem rúss­nesk stjórn­völd til­kynntu fyrir skömmu. Gert er ráð fyrir að frystur upp­sjáv­ar­fiskur sem seldur var til Rúss­lands á síð­asta ári fari í bræðslu en við það lækkar útflutn­ings­verð­mætið um 8-10 ma.kr. Á móti kemur að fram­leiðslu- og útgerð­ar­kostn­aður mjöls og lýsis er lægri en vegna fryst­ingar. Líklegt er að áhrif við­skipta­banns­ins verði minni en þau hefðu verið ef við­skipta­bannið hefði verið sett á í fyrra vegna erf­ið­ara efna­hags­á­stands í Rúss­landi í ár og hefur útflutn­ingur til Rúss­lands það sem af er ári verið tölu­vert minni en á síð­asta ári. Einnig er óvíst hvernig til tekst við að afla nýrra mark­aða fyrir frystar afurðir upp­sjáv­ar­fiska,“ segir um vöru­út­flutn­ing í Pen­inga­málum.

Því er spáð að útflutn­ingur auk­ist um tæp­lega sjö pró­sent í ár frá fyrra ári og að hann verði bor­inn uppi af þjón­ustu­út­flutn­ingi, í krafti mik­illar fjölg­unar ferða­manna. Engu að síður verði frma­lag utan­rík­is­við­skipta til hag­vaxtar nei­kvætt í ár.

„Þrátt fyrir mik­inn vöxt útflutn­ings í ár eru horfur á að fram­lag utan­rík­is­við­skipta til hag­vaxtar verði nei­kvætt. Gert er ráð fyrir að inn­flutn­ingur vöru og þjón­ustu muni vaxa um 12½% í ár sem er 1½ pró­sentu meira en áætlað var í maí­spánni. Áfram er gert ráð fyrir að inn­flutn­ingur verði drif­inn af flutn­inga­tækjum (skipum, flug­vélum og fólks­bílum) og neyslu­vörum í takt við kröft­ugan vöxt inn­lendrar eft­ir­spurnar og áfram­hald­andi fjölgun ferða­manna til lands­ins. Þótt talið sé að heldur hægi á vexti inn­flutn­ings á næstu tveimur árum, verður hann enn tölu­verður. Það ásamt minni vexti útflutn­ings leiðir til þess að nú er búist við að fram­lag utan­rík­i­s­við- skipta til hag­vaxtar verði heldur nei­kvæð­ara en spáð var í maí,“ segir í spánni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár