Sautján prósent af tekjum HB Granda komu frá Rússlandi í fyrra

Árið 2014 stöf­uðu um sautján pró­sent tekna HB Granda frá við­skiptum við rúss­neska aðila. Gróflega áætlað mun inn­flutn­ings­bann Rúss­lands á mat­vöru frá Íslandi lækka tekjur félags­ins um um það bil tíu til fimmtán millj­ónir evra á árs­grund­velli. Félagið á nú um 6 millj­ónir evra í útistand­andi kröfum í Rúss­landi.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá HB Granda til Kaup­hall­ar­innar. Tekið er fram að erfitt sé að meta fjár­hags­leg áhrif banns­ins á HB Granda. Tíu til fimmtán millj­ónir evra eru jafn­virði um 1.470 til 2.200 millj­óna króna.

Dmitry Medvedev, for­sæt­is­ráð­herra Rúss­lands, til­kynnti í morgun að Ísland hafi verið bætt við á lista yfir lönd þaðan sem bannað er að flytja inn mat­vörur frá. Íslandi hefur þar með verið bætt á lista með Evr­ópu­sam­bands­löndum, Banda­ríkj­unum og Ástralíu en þessi lönd standa saman að við­skipta­þving­unum gagn­vart Rúss­landi vegna átak­anna í Úkraínu.

„Mik­il­vægi Rúss­lands­mark­aðar í rekstri HB Granda hefur auk­ist veru­lega á und­an­förnum árum. Árið 2014 stöf­uðu til að mynda um 17% tekna félags­ins frá við­skiptum við rúss­neska aðila. Stað­geng­is­mark­aðir fyrir helstu afurðir sem seldar eru til Rúss­lands eru ekki til staðar. Það blasir því við að muni inn­flutn­ings­bann Rúss­lands ná til inn­fluttra sjáv­ar­af­urða frá Íslandi mun tölu­verður hluti þess afla félags­ins sem unn­inn er í frystar afurðir á Rúss­lands­markað verða unnin í mjöl og lýsi. Við það mun vinna við afl­ann minnka og störfum við vinnsl­una fækka svo um munar auk þess sem verð­mæti afl­ans mun lækka tölu­vert,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár