Sendingum á leið til Rússlands snúið við

Þremur send­ingum með vörum frá Íslandi á leið til Rúss­lands var snúið við í dag eftir að Rússar til­kynntu um inn­flutn­ings­bann á mat­vöru frá Íslandi. Frétta­stofa RÚV greinir frá þessu og vísar í frétta­vef­inn Undercurrent News sem sér­hæfir sig í fréttum af sjáv­ar­út­vegi.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frétta­stofu RÚV verða send­ing­arnar látnar bíða í öðrum höfnum þar til í ljós kemur hvers eðlis við­skipta­bann Rússa er og hvert fram­haldið verður.

Íslensk stjórn­völd hafa ekki stað­fest umfang inn­flutn­ings­banns­ins sem Rússar settu í dag á Ísland og fjórar aðrar Evr­ópu­þjóðir, til við­bótar við Evr­ópu­sam­bands­lönd, Banda­ríkin og Ástralíu. Um hádegi í dag sagði Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra að upp­lýs­ingar hefðu ekki feng­ist um umfang þess. Búast má við að nán­ari upp­lýs­ingar verði opin­ber­aðar þegar þær liggja fyrir.

Kjarninn greindi frá því í dag að flest bendi til þess að bannið taki gildi strax og sé án und­an­tekn­inga. Því sé óvíst hvort vörur sem voru á leið til Rúss­lands fái tolla­af­greiðslu.

Rússland er stærsti upp­sjáv­ar­fisk­mark­aður íslenskra sjáv­ar­út­flutn­ings­fyr­ir­tækja og áætla Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS) að við eðli­legar aðstæður hefði virði útflutn­ings á sjáv­ar­af­urðum til Rúss­lands numið um 37 millj­örðum króna á þessu ári. Mestu munar um útflutn­ing til Rúss­lands á loðnu og mak­ríl. Áætlað virði útflutn­ings á þessum tveimur fisk­teg­undum er um 23,3 millj­arðar króna árið 2015, miðað við eðli­legar aðstæður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár