Grikkir og kröfuhafar ná saman

Sam­komu­lag milli grískra stjórn­valda og kröfu­hafa Grikk­lands um veit­ingu neyð­ar­láns náð­ist í nótt eftir langa fund­ar­setu. Eftir 23 klukku­stunda samn­inga­við­ræður lágu skil­málar láns­ins fyrir. Euclid Tsaka­lotos, fjár­mála­ráð­herra Grikk­lands, sagði við fjöl­miðla eftir fund­inn að aðeins ætti eftir að ganga frá tveimur til þremur atriðum. Að öðru leyti liggi samn­ingur um þriðja neyð­ar­lánið til Grikk­lands fyrir. Samkvæmt umfjöllun The Guardian er búist við að Grikk­land fái nýtt 86 millj­arða evra lán, en það hefur ekki verið stað­fest end­an­lega.

Lántakan, og þau ströngu skil­yrði sem henni fylgja, verða tekin fyrir á gríska þing­inu á morgun og fimmtu­dag, sam­kvæmt áætlun. Á föstu­dag munu fjár­mála­ráð­herrar evru­ríkj­anna síðan yfir­fara end­an­leg samn­ings­drög.


Mik­il­vægt er að Grikkjum sé veitt lánið fyrir 20. ágúst. Þá fellur 3,2 millj­arða evra lána­greiðsla frá Seðla­banka Evrópu á gjald­daga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár