Landsbankinn frestar hönnunarsamkeppni vegna gagnrýni

Bankaráð Lands­bank­ans hefur ákveðið að fresta hönn­un­ar­sam­keppni um fyr­ir­hug­aða nýbygg­ingu bank­ans við Aust­ur­höfn. Sam­keppnin átti að hefj­ast síðar í ágúst. Frá þessu er greint á vef­síðu bank­ans, þar sem kemur fram að þetta sé gert til að fara yfir þau sjón­ar­mið sem fram hafi komið á síð­ustu vikum.

Lands­bank­inn til­kynnti í fyrri hluta júlí að nýjar 14.500 fer­metra höf­uð­stöðvar bank­ans rísi við hlið Hörpu í Aust­ur­höfn í Reykja­vík. Bygg­ing­ar­á­formin mættu harðri gagn­rýni, meðal ann­ars frá stjórn­ar­þing­mönnum og Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni, for­sæt­is­ráð­herra. Hann sagði það und­ar­legt að banki í almann­eigu ætli að fara gegn vilja eig­and­ans í mál­inu. Lands­bank­inn er að nær öllu leyti í eigu rík­is­ins.


Kristján Krist­jáns­son, upp­lýs­inga­full­trúi Lands­bank­ans, segir í sam­tali við Kjarnann að hug­mynda­sam­keppn­inni sé frestað til þess að hægt sé að fara yfir þau sjón­ar­mið sem hafa verið sett fram á síð­ustu vikum. Spurður hvort sterk við­brögð hafi komið á óvart svarar hann því bæði ját­andi og neit­andi. „Við vissum að ákveð­inn hópur fólks yrði á móti og myndi finna áformunum öllu til for­áttu. En gagn­rýnin var meiri og víð­tæk­ari en menn reikn­uðum með. Við töldum liggja fyrir góð rök með fram­kvæmd­unum, meðal ann­ars fjár­hags­leg rök sem fengu litla sem enga athygli. Við vissum að þetta yrði umdeilt,“ seigr hann.


Lands­bank­inn hefur sagt að með núvirtur ávinn­ingur af því að flytja bank­ann í nýtt hús­næði við Aust­ur­bakka sé met­inn á um 4,3 millj­arða króna, en starf­semi bank­ans er nú rekin í mörgum bygg­ingum. Þá hafa for­svars­menn bank­ans sagt lóða­verðið hag­stætt og stærð lóð­ar­innar hent­ugt miðað við þarfir bank­ans.


Ekki liggur fyrir um hvenær næstu skref verða tekin í mál­inu né hver þau verða. End­an­legt ákvörð­un­ar­vald um bygg­ingu nýrra höf­uð­stöðva liggur hjá banka­ráði Lands­bank­ans.

[caption id="attachment_33654" align="aligncenter" width="1015"] Fyr­ir­hug­aðar höf­uð­stöðvar Lands­bank­ans við Aust­ur­höfn. Myndin sýnir bygg­ing­ar­magn, afstöðu og hæð­ar­tak­mark­anir en ekki útlit nýbygg­ing­ar­innar.[/caption]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár