Sigmundur: Undarlegt ef Landsbankinn ætlar að byggja höfuðstöðvar við Hörpu gegn vilja eigenda

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra er mót­fall­inn því að Lands­bank­inn reisi nýjar höf­uð­stöðvar á lóð sem bank­inn á við Hörpu. Sig­mundur segir að rík­is­bank­inn ætti að vera leið­andi í því að bæta kjör við­skipta­vina sinna. Þetta kom fram í við­tali við Sigmund í kvöld­fréttum RÚV.

Sig­mundur sagði í fyrsta lagi að hann gerði athuga­semd við skipu­lags­málin, gert sé ráð fyrir allt of miklu bygg­ing­ar­magni á milli Hörpu og gamla bæj­ar­ins.

Þá gagn­rýnir hann for­gangs­röðun rík­is­bank­ans sem hann telur að ætti að vera leið­andi í því að bæta kjör við­skipta­vina. „Og í þriðja lagi þá finnst mér það und­ar­legt ef banki sem er í almanna­eigu, ætlar að fara gegn því sem virð­ist vera aug­ljós vilji eig­end­anna - almenn­ings og full­trúa hans.“

Hann segir marga aðra staði eða jafn­vel til­búin hús geta gegnt hlut­verki höf­uð­stöðva bank­ans. „Menn hafa til að mynda nefnt toll­húsið sem ég held að gæti nýst bank­anum mjög vel.“

Sig­mundur tekur þannig undir fleiri gagn­rýn­is­raddir, en meðal þeirra sem hafa gagn­rýnt áform Lands­bank­ans eru sam­flokks­menn Sig­mundar, þau Vigdís Hauks­dóttir og Frosti Sig­ur­jóns­son, og Elín Hirst og Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Þá hefur bæj­ar­ráð Vest­manna­eyja kallað eftir hlut­hafa­fundi til að ræða málið og bæj­ar­stjór­inn í Kópavogi hefur boðið fram hús­næði í bænum. Stjórn­endur bank­ans segja hins vegar að bank­inn sé mið­borg­ar­fyr­ir­tæki og að með nýjum höf­uð­stöðvum geti bank­inn sparað 700 millj­ónir á ári og borgað upp fram­kvæmd­ina á tíu árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár