Landsbankinn ætlar að byggja nýjar höfuðstöðvar við Austurhöfn

Lands­bank­inn ætlar að byggja nýjar höf­uð­stöðvar sínar við Aust­ur­höfn í Reykja­víkur. Bygg­ingin mun hýsa alla mið­læga starf­semi bank­ans og kostn­aður við bygg­ingu húss­ins með lóð­ar­kaupum á að kosta átta millj­arða króna. Nýbygg­ingin verður 14.500 fer­metrar að stærð auk þess sem það verður um tvö þús­und fer­metra kjall­ari fyrir tækni­rými og fleira. Þá verður bíla­kjall­ari undir hús­inu sem nýt­ist öllu svæð­inu við Aust­ur­höfn. Lands­bank­inn er að nán­ast öllu leyti í eigu íslenska rík­is­ins.

[caption id="attachment_33654" align="alignnone" width="1015"] Fyr­ir­hug­aðar höf­uð­stöðvar Lands­bank­ans við Aust­ur­höfn. Myndin sýnir bygg­ing­ar­magn, afstöðu og hæð­ar­tak­mark­anir en ekki útlit nýbygg­ing­ar­innar.[/caption]

Í til­kynn­ingu frá bank­anum segir: "Lands­bank­inn hefur með aðstoð sér­fræð­inga skoðað margar lóðir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á síð­ustu árum og reynd­ist lóðin í Aust­ur­höfn besti og hag­kvæm­asti kost­ur­inn að mati bank­ans. Stærð lóð­ar­innar er hentug miðað við þarfir bank­ans og verð hennar í útboði var hag­stætt, meðal ann­ars þar sem jarð­vinnu er að mestu lokið og að gatna­gerða­gjöld voru inni­falin. Að auki má nefna góðar teng­ingar við almenn­ings­sam­göngur og mögu­leika á samnýt­ingu bíla­stæða á svæð­inu sem sparar umtals­verðar fjár­hæðir í bygg­ing­ar­kostn­aði. Með því að byggja á þessum stað verður Lands­bank­inn áfram með starf­semi í mið­borg Reykja­víkur og styður við öfl­uga og fjöl­breytta atvinnu­starf­semi í mið­bænum."

Þar segir einnig að kostn­að­ur­inn við nýbygg­ing­una sé áætl­aður um átta millj­arðar króna og að áætlað sé að fjár­fest­ingin borgi sig upp á tíu árum. "Ef bank­inn yrði áfram á sama stað þyrfti að leggja í umtals­verða fjár­fest­ingu við núver­andi hús­næði. Við flutn­ing starf­sem­innar mun bank­inn að auki selja fast­eignir fyrir vel yfir einn millj­arð króna. Sem fyrr segir er gert ráð fyrir að rekstr­ar­kostn­aður hús­næðis lækki um 700 millj­ónir króna á ári. Núvirtur ávinn­ingur af flutn­ingi bank­ans í nýtt hús­næði við Aust­ur­bakka er met­inn 4,3 millj­arðar króna og innri raun­á­vöxtun 8,3% (IRR) sem er tölu­vert yfir vegnum fjár­magns­kostn­aði bank­ans. "

Forsætisráðherra útilokaði bygginguna fyrir tveimur árum


For­svars­menn Lands­bank­ans til­kynntu sum­arið 2013 að uppi væru stór­huga áform um að reisa nýjar höf­uð­stöðvar bank­ans á hafn­ar­bakk­anum í Reykja­vík við hlið Hörpu­nnar. Þá sagði Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra í sam­tali við Eyjuna, aðspurður um áformin,: " „Mér virð­ist úti­lokað að rík­is­bank­inn muni byggja nýjar höf­uð­stöðvar á næst­unni. Það eru mörg mál sem þarf að leysa fyrst[...] Það er full ástæða til að end­ur­skoða áform sem uppi voru fyrir efna­hags­hrunið um bygg­ingu stórra skrif­stofu­bygg­inga milli Hörpu og Kvosar­innar[...]Það væri afleitt ef mið­bær­inn yrði alveg lok­aður frá haf­inu og útsýn­inu að Esjunni með stór­bygg­ingum sem væru alveg úr takt við gamla mið­bæ­inn og myndu gnæfa yfir hann. Það ætti frekar að líta til þess hvernig byggðin var áður en hún vék fyrir áformum um stór­bygg­ingar og bíla­stæðum”.

Frosti Sig­ur­jóns­son, for­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar, tók undir með flokks­bróður sínum í pistli sem birt­ist skömmu síðar.

Í maí 2014 sagði Sig­mundur Davíð á Alþingi, í óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum þar sem nýjar höf­uð­stöðvar Lands­bank­ans voru til umræðu: "Ég skal al­veg viður­kenna að mér þykir óneit­an­lega mjög sér­kenni­legt ef menn eru farn­ir að velta því fyr­ir sér ein­ung­is fimm árum eft­ir að bank­inn komst í þrot og skrapp í fram­haldi af því mikið sam­an að fara að byggja nýj­ar höf­uð­stöðvar, ég tala nú ekki um ef það yrði risa­stór gler­höll á dýr­asta stað borg­ar­inn­ar og þar með lands­ins. Það er reynd­ar önn­ur saga".

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár