Síldarvinnslan vill ekki að Ísland beiti Rússa viðskiptaþvingunum

Gunnþór Ingvason, fram­kvæmda­stjóri Síld­ar­vinnsl­unnar í Nes­kaups­stað, telur þátt­töku Íslands í við­skipta­banni gegn Rússum vera van­hugs­aða. Með þátt­töku eru gríð­ar­legir hags­munir þjóð­ar­bús­ins lagðir að veði, segir Gunnþór í grein sem birt­ist á vef­síðu Síld­ar­vinnsl­unnar í dag. „Sé raun­veru­legur vilji til að aðstoða íslensk fyr­ir­tæki og gæta að hags­munum þjóð­ar­innar getur ráð­herra lýst yfir hlut­leysi stjórn­valda og reynt að vinda ofan af stuðn­ingi Íslands í aðgerðum gegn Rússum. Á þann hátt er sjálf­stæði Íslend­inga í utan­rík­is­málum und­ir­strikað,“ segir Gunnþór.

„Nú sitja stjórn­endur fyr­ir­tækja milli vonar og ótta um það hvort stjórn­völd í Rúss­landi láti okkur á list­ann yfir þjóðir sem beittar verða við­skipta­þving­unum. Mik­il­vægar ver­tíðir eru framundan. Kraftar utan­rík­is­ráð­herra og hans fólks eiga ekki að fara í það að selja sjáv­ar­af­urðir. Athygli þeirra á að bein­ast að því að halda góðu sam­bandi við við­skipta­þjóðir okkar svo við getum flutt út sjáv­ar­af­urðir og aflað þjóð­ar­bú­inu tekna,“ segir í grein­inni. Síld­ar­vinnslan hefur flutt út síld­ar­af­urðir til Rúss­lands í meira en hálfa öld og hefur skipt fyr­ir­tækið miklum máli. „Vonum við að svo verði áfram um ókomna tíð og að sam­skipti okkar og við­skipta­vina okkar í Rúss­landi haldi áfram að styrkj­ast.“


Greint var frá því í fjöl­miðlum í gær að stjórn­völd í Rúss­landi und­ir­búi nú útvíkkun á inn­flutn­ings­banni á mat­vörum sem er þegar í gildi gagn­vart Evr­ópu­sam­bands­löndum. Þetta hafa rúss­nesk stjórn­völd þó ekki stað­fest. Samkvæmt frétt fjöl­mið­ils­ins Russian Times hyggj­ast stjörn­völd láta inn­flutn­ings­bannið einnig ná til þeirra sjö Evr­ópu­ríkja sem styðja við­skipta­þving­anir ESB gagn­vart Rúss­landi vegna hern­að­ar­að­gerða þeirra í Úkraínu. Ísland er eitt þess­ara sjö ríkja.


Fram­kvæmda­stjóri Síld­ar­vinnsl­unnar segir enga efn­is­lega umræðu hafa farið fram um þátt­töku íslenskra stjórn­valda í að fram­lengja við­skipta­bann gegn Rússum, en það var gert í síð­ustu viku.

Telur hlutleysi réttast

Gunnþór segir það hlut­verk utan­rík­is­ráðu­neytis Íslands að fram­fylgja utan­rík­is­stefnu rík­is­stjórn­ar­innar eftir diplómat­ískum leiðum en ekki að beita þjóðir við­skipta­þving­unum án umræðu. „Und­ir­rit­aður átti fundi bæði með ráð­herra og for­manni utan­rík­is­mála­nefndar eftir að í ljós kom að Ísland studdi upp­haf­legar þving­un­ar­að­gerðir gegn Rússum þar sem þeim var fylli­lega gerð grein fyrir þeim afleið­ingum sem þetta gæti haft ef við­skipta­bann gegn Íslandi kæmi til fram­kvæmda. Samt sér Birgir Ármanns­son, for­maður utan­rík­is­mála­nefndar, enga ástæðu til að staldra við þótt gríð­ar­legir hags­munir séu í húfi fyrir íslenskt efna­hags­líf.


Hlutverk stjórn­valda er að skapa umgjörð um starfs­skil­yrði fyr­ir­tækja og styðja við þann far­veg sem alþjóð­leg við­skipti fara um. Sé raun­veru­legur vilji til að aðstoða íslensk fyr­ir­tæki og gæta að hags­munum þjóð­ar­innar getur ráð­herra lýst yfir hlut­leysi stjórn­valda og reynt að vinda ofan af stuðn­ingi Íslands í aðgerðum gegn Rússum. Á þann hátt er sjálf­stæði Íslend­inga í utan­rík­is­málum und­ir­strikað.


Við­skipta­þving­anir hafa tak­mörkuð áhrif og bitna helst á þeim sem síst skyldi, það er almennum borg­urum við­kom­andi ríkja. Hlutverk utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins er að fram­fylgja utan­rík­is­stefnu rík­is­stjórn­ar­innar eftir diplómat­ískum leiðum en ekki að beita þjóðir við­skipta­þving­unum án umræðu. Það á að rækta við­skiptin við Rússa á þessum erf­iðu tímum og er full ástæða að við­halda ára­tuga góðum við­skipta­sam­böndum við Rússa,“ segir hann.

Afleiðingarnar steypast yfir okkur

„Afleið­ingar af þess­ari þátt­töku Íslend­inga eru að öllum lík­indum að steyp­ast yfir okkur á næstu dögum í formi inn­flutn­ings­banns á einn af okkar mik­il­væg­ustu mörk­uðum fyrir frystan upp­sjáv­ar­fisk; loðnu-, síldar- og mak­ríl­af­urðir. Auk þess hefur mark­aður fyrir bol­fiskaf­urðir okkar verið vax­andi í Rúss­landi. Við­skipta­að­ilar okkar þar í landi hafa verið dug­legir að upp­lýsa okkur um frétta­flutn­ing af þessu máli sl. viku og hefur verið alveg skýrt í þeirra huga hvert málið stefnir. Samt virð­ast þessar fréttir koma utan­rík­is­ráð­herra á óvart í Morg­un­blað­inu og hann segir óljóst hvað Medvedev for­sæt­is­ráð­herra sé að segja. Hér eru miklir hags­munir í húfi og ráð­herra lætur málið koma sér í opna skjöldu!


Við Íslend­ingar höfum síð­ustu ára­tug­ina átt í far­sælum og góðum við­skiptum við Rússland og stóðu þau við­skipti af sér kalda stríðið. Eins og sést í sam­an­tekt hér að neðan, sem byggð er á gögnum frá Hagstofu Íslands, hafa við­skipti við Rússland með sjáv­ar­af­urðir vaxið ár frá ári.“


Gunnþór segir enn­fremur að við­skipti með síld­ar­af­urðir eigi sér margra ára­tuga sögu. Markaður fyrir frosna loðnu hafi vaxið síðusut ára­tug­ina og mark­aður fyrir loðnu­hrogn sé stækk­anid. „Með til­komu mak­ríls­ins nýtt­ust við­skipta­sam­böndin strax til að byggja upp góða mark­aði fyrir mak­ríl­af­urðir okkar. Hags­mun­ir­þjóð­ar­innar eru hér miklir.“

Stórt viðskiptaland

Kjarninn fjall­aði um við­skipta­bannið í gær og rýndi meðal ann­ars í utan­rík­is­við­skipti Íslands og Rúss­lands á síð­ustu árum. Í fyrra var Rússland 6. stærsta við­skipta­land Íslands. Alls voru fluttar út vörur, mest sjáv­ar­af­urðir, fyrir 29 millj­arða króna. Það er um fimm pró­sent af heild­ar­út­flutn­ingi Íslands árið 2014.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár