Rússar undirbúa innflutningsbann - Sjötta stærsta viðskiptaland Íslands

Um fimm pró­sent útflutn­ings­verð­mæta Íslands á síð­asta ári komu til vegna útflutn­ings til Rúss­lands. Landið hefur lengi verið eitt af helstu við­skipta­löndum Íslands. Á árinu 2014 voru aðeins fimm lönd sem keyptu meira af útflutn­ings­af­urðum Íslands, en alls nam verð­mæti útflutn­ings til Rúss­lands um 29 millj­örðum króna á síð­asta ári af sam­tals um 590 millj­arða króna útflutn­ings­verð­mætum.

Tölu­verður sam­dráttur hefur orðið á útflutn­ingi til Rúss­lands í ár. Fluttar hafa verið út vörur til lands­ins fyrir um sjö millj­arða króna, sam­kvæmt tölum Hag­stof­unnar um vöru­skipti á fyrstu sex mán­uðum árs­ins 2015. Á sama tíma í fyrra höfðu verið fluttar út afurðir fyrir 11,4 millj­arða króna til Rúss­lands. Á fyrstu sex mán­uðum árs­ins 2015 nemur útflutn­ingur til Rúss­lands rúm­lega tveimur pró­sentum af heild­ar­út­flutn­ingi.

Stjórn­völd í Rúss­landi hyggj­ast víkka inn­flutn­ings­bann á mat­vælum gagn­vart Evr­ópu­sam­bands­löndum og láta það einnig ná til sjö ríkja utan ESB. Löndin sjö stutt við­skipta­þving­anir sam­bands­ins, Banda­ríkj­anna og Kanada gegn Rúss­landi vegna hern­að­ar­að­gerða Rússa í Úkraínu. Ísland er í hópi ríkj­anna ásamt Albaníu, Svart­fjalla­landi, Noregi, Liechtenstein, Úkraínu og Georgíu. Frétta­mið­ill­inn Russia Today fjallar um málið um dag. Það hefur New York Times einnig gert.

Fjallað var um fyr­ir­hug­aðar aðgerðir Rússa í Morg­un­blað­inu í dag og haft eftir Gunnari Braga Sveins­syni að vissu­lega valdi þetta áhyggjum. Verið sé að reyna að frek­ari upp­lýs­inga um hversu mikil alvara sé í mál­inu hjá Rússum. Samkvæmt frétt Russian Today í dag þá stendur und­ir­bún­ingur yfir að gerð frum­varps um víkkað við­skipta­bann í land­bún­að­ar­ráðu­neyti Rússa.

Miklir hags­munir eru í húfi fyrir íslensk sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki en útflutn­ingur til Rúss­lands er helst á sjáv­ar­fangi, einkum frosnum loðnu­af­urðum, mak­ríl og síld. Grafið hér að neðan sýnir verð­mæti útflutn­ings til Rúss­lands á árunum 2010 til 2014. Nærri helm­ingur af mak­ríl var seldur til Rúss­lands árið 2013.

utan­rík­is­verslun við Rússland

|

Create infographics

Aðeins fimm ríki keyptu meira af útflutn­ings­af­urðum Íslands en Rússland á árinu 2014. Löndin fimm eru Holland, Bretland, Spánn, Þýska­land og Frakk­land.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár