Þrjár konur hafa leitað til neyðarmóttökunnar vegna kynferðisbrota á Þjóðhátíð

Þrjár konur hafa leitað til neyð­ar­mót­töku kyn­ferð­is­brota á Land­spít­al­anum í Fossvogi eftir versl­un­ar­manna­helg­ina. Brotin voru öll framin á Þjóð­há­tíð í Vest­manna­eyjum. Frétta­stofa RÚV greindi frá í hádeg­is­fréttum í dag. Það var Eyrún Björg Jóns­dóttir, verk­efn­is­stjóri neyð­ar­mót­tök­unnar, sem stað­festi að þrjár konu hafi leitað til mótök­unnar. Páley Borg­þórs­dóttir, lög­reglu­stjóri í Vest­manna­eyjum, vildi ekki stað­festa hvort til­kynnt hafi verið um kyn­ferð­is­brot um eða eftir helg­ina. Hún sagði við frétta­stofu RÚV að upp­lýs­ingar um störf lög­regl­unnar á Þjóð­há­tíð og tölur um afbrot verði birtar í dag eða á morgun.

Páley sendi fyrir helg­ina út bréf til allra við­bragðs­að­ila sem tengd­ust Þjóð­há­tíð í Eyjum og brýndi fyrir þeim að upp­lýsa fjöl­miðla ekki um kyn­ferð­is­brot á hátíð­inni. Ákvörð­unin hefur verið harð­lega gagn­rýnd, meðal ann­ars af félögum blaða- og frétta­manna sem sögðu stefnu lög­regl­unnar í Vest­manna­eyjum vera til­raun til þögg­unar. Margir fleiri hafa gagn­rýnt stefnu lög­reglu­yf­ir­valda á sam­fé­lags­miðlum.

Í gær birti lög­reglan í Vest­manna­eyjum frétt á heima­síðu sinni þar sem hún fór yfir þau mál sem upp komu um helg­ina, að kyn­ferð­is­brota­málum und­an­skildum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár