Blaða- og fréttamenn gagnrýna málflutning lögreglustjórans í Eyjum

Stjórnir Blaða­manna­fé­lags Íslands og Félags frétta­manna lýsa yfir furðu sinni á mál­flutn­ingi lög­reglu­stjór­ans í Vest­manna­eyjum og þeim sjón­ar­miðum sem liggja honum til grund­vallar varð­andi frétta­flutn­ing af kyn­ferð­is­brota­málum sem upp kunna að koma á Þjóð­há­tíð.

Þetta segir í ályktun sem stjórnir félag­anna sendu frá sér í dag. „Sú til­raun til þögg­un­ar sem þar er lögð til er al­ger­lega úr takt við þau meg­in­sjón­ar­mið um upp­lýsta og opna umræðu sem lýð­ræðis­sam­fé­lög hljóta að styðj­ast við vilji þau standa und­ir nafni,“ segir í álykt­un­inni. Hana má lesa í heild hér að neðan.

Greint var frá því í gær að Páley Borg­þórs­dóttir, lög­reglu­stjóri í Vest­manna­eyjum, sendi bréf til allra við­bragðs­að­ila sem tengj­ast þjóð­há­tíð í Eyjum og brýndi fyrir þeim að upp­lýsa ekki um kyn­ferð­is­brot sem upp koma á þjóð­há­tíð um helg­ina. „Ég legg því til að allir við­bragðs­að­ilar, allir gæslu­menn, starfs­menn neyð­ar­mót­töku, heil­brigð­is­starfs­menn, sjúkra­flutn­ings­menn og allir þeir sem koma að þessum brotum og fá upp­lýs­ingar starfa sinna vegna gefi engar upp­lýs­ingar um þessi mál. Með engum upp­lýs­ingum á ég við að hvorki verði gefið upp hvort að það hafi komið upp brot eða ekki. Besta svarið hvað ykkur varðar er „Við höfum enga heim­ild til að veita slíkar upp­lýs­ingar“,“ skrif­aði Páley.

Skylda fjölmiðla að segja frá ofbeldisglæpum


Í ályktun stjórn­anna tveggja segir að það sé skylda fjöl­miðla að segja frá ofbeld­is­glæpum og það þjóni hags­munum engra nema ofbeld­is­mann­anna að þegja um þá.

Ályktunin í heild:


„Stjórn­ir Blaða­manna­fé­lags Íslands og Fé­lags frétta­manna lýsa yfir furðu sinni á mál­flutn­ingi lög­reglu­stjór­ans í Vest­manna­eyj­um og þeim sjón­ar­miðum sem liggja hon­um til grund­vall­ar varð­andi frétta­flutn­ing af kyn­ferðis­brota­mál­um sem upp kunna að koma á Þjóð­há­tíð. Sú til­raun til þögg­un­ar sem þar er lögð til er al­ger­lega úr takt við þau meg­in­sjón­ar­mið um upp­lýsta og opna umræðu sem lýð­ræðis­sam­fé­lög hljóta að styðj­ast við vilji þau standa und­ir nafni. Það er skylda fjöl­miðla að segja frá of­beld­is­glæp­um og það þjón­ar hags­mun­um engra nema of­beld­is­mann­anna að þegja um þá. Um það þekkj­um við því miður alltof mörg dæmi frá liðnum ára­tug­um. Það er eng­in betri aðferð til að fyr­ir­byggja og lág­marka of­beldi held­ur en að tala um það af hrein­skilni. Hvernig eig­um við með öðrum hætti að tak­ast á við for­dóma og rang­hug­mynd­ir og fyr­ir­byggja gróu­sög­ur af öllu tagi? Stjórn­ir BÍ og FF hvetja lög­reglu og aðra við­bragðs­að­ila til þess að ræða þau of­beld­is­brot, kyn­ferðis­brot jafnt sem önn­ur, sem upp kunna að koma á þjóð­há­tíð með op­in­ská­um hætti með hags­muni al­menn­ings að leið­ar­ljósi. Það er bein­lín­is sam­fé­lags­leg og lýð­ræðis­leg skylda þeirra að greina skil­merki­lega frá því sem ger­ist og frétt­næmt þykir á þjóð­há­tíð í þágu þeirra sem sækja hátíð­ina heim og heima­manna í Vest­manna­eyj­um.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár