Lögreglustjórinn í Eyjum vill ekki að fjölmiðlar fái að vita um kynferðisbrot á þjóðhátíð

Páley Borg­þórs­dóttir, lög­reglu­stjóri í Vest­manna­eyjum, hefur sent út bréf til allra við­bragðs­að­ila sem tengj­ast þjóð­há­tíð í Eyjum og brýnt fyrir þeim að upp­lýsa fjöl­miðla ekki um kyn­ferð­is­brot sem upp koma á þjóð­há­tíð um helg­ina. Vísir greinir frá þessu og birtir bréfið sem Páley sendi.

„Ég legg því til að allir við­bragðs­að­ilar, allir gæslu­menn, starfs­menn neyð­ar­mót­töku, heil­brigð­is­starfs­menn, sjúkra­flutn­ings­menn og allir þeir sem koma að þessum brotum og fá upp­lýs­ingar starfa sinna vegna gefi engar upp­lýs­ingar um þessi mál. Með engum upp­lýs­ingum á ég við að hvorki verði gefið upp hvort að það hafi komið upp brot eða ekki. Besta svarið hvað ykkur varðar er „Við höfum enga heim­ild til að veita slíkar upp­lýs­ingar“,“ skrifar Páley.

Hún segir að þessir aðilar geti vísað á lög­reglu ef þeir eru spurðir, en segir svo jafn­framt í bréf­inu að hún hafi tekið ákvörðun í sam­ráði við áfallateymi þjóð­há­tíðar og félags­þjón­ustu Vest­manna­eyja­bæjar að lög­reglan muni ekki veita fjöl­miðlum upp­lýs­ingar um kyn­ferð­is­brot um helg­ina.

Í bréf­inu segir líka að fjöl­miðlar vilji helst fjalla um kyn­ferð­is­brot. Það sé afar þung­bært fyrir „aðila kyn­ferð­is­brots“ að mál þeirra séu í fjöl­miðlum á sama tíma og verið sé að takast á við brot, byrja kæru­ferli og slíkt. „Eins og ítrekað hefur komið fram í umræð­unni eykur það van­líðan aðila og fjöl­skyldna þeirra að mál þeirra, jafn við­kvæm og þau eru, komi til opin­berrar umræðu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kynferðisafbrot

Aðsent

Friðrik Þór Gestsson

Hvenær er nauðgun rétt­læt­an­legur fórn­ar­kostn­aður?

Núna þegar stytt­ist í versl­un­ar­manna­helg­ina þá kemur upp umræðan um Þjóð­há­tíð í Vest­mann­eyjum og allt það sem þar ger­ist. Eins og flestir vita þá hefur Lög­reglu­stjór­inn í Vest­mann­eyjum ákveðið að til­kynna ekki fjöl­miðlum um kyn­ferð­is­brot sem til­kynnt verða á hátíð­inni fyrr en ein­hverjum dögum eftir hátíð­ina. Þannig áður en hátíðin byrjar og áður en nokkur gestur er kom­inn í dal­inn...
Pistillkynferðisafbrot

Ásdís Ólafsdóttir

Köln, konur og kyn­ferð­is­brot

Rétt fyrir mið­nætti á gamlárs­kvöld var saman kom­inn mik­ill fjöldi fólks við dóm­kirkj­una í Köln til að fylgj­ast með flug­elda­sýn­ingu á ára­mót­unum. Meðal þeirra voru yfir þús­und karl­menn af arab­ískum og norður-afrískum upp­runa og réð­ust hópar þeirra að konum á svæð­inu eftir að flug­elda­sýn­ingin hófst. Yfir 600 konur leit­uðu til lög­reglu og lýstu hvernig menn­irnir áreittu þær, káf­uðu á þeim,...
Fréttir

Tvö kyn­ferð­is­brot komu inn á borð lög­regl­unnar í Eyjum um helg­ina

Tvö kyn­ferð­is­brot komu til rann­sóknar hjá lög­regl­unni í Vest­manna­eyjum um helg­ina. Fyrra málið kom inn á borð lög­reglu aðfara­nótt sunnu­dags og á að hafa átt sér stað í kringum mið­nætti kvöldið áður, að því er fram kemur í til­kynn­ingu frá lög­regl­unni í Vest­manna­eyjum, þar sem farið er yfir störf lög­regl­unnar um liðna versl­un­ar­manna­helgi. Einn maður var hand­tek­inn eftir skipu­lagða leit...
Fréttir

Lög­reglan í Eyjum skrifar frétt um öll brot á Þjóð­há­tíð, nema kyn­ferð­is­brot

Lög­reglan í Vest­manna­eyjum birti í dag frétt á heima­síðu sinni þar sem hún fór yfir þau mál sem komu upp hjá henni á meðan að á Þjóð­há­tíð í Eyjum stóð um helg­ina. Það er að segja öll þau mál sem snú­ast ekki um kyn­ferð­is­brot, en lög­reglan í Vest­manna­eyjum var búin að ákveða það í aðdrag­anda Þjóð­há­tíðar að upp­lýsa ekki um...
Fréttirkynferðisafbrot

Þing­maður Bjartrar fram­tíðar segir þögn um kyn­ferð­is­brot í Eyjum „algjört rugl“

Björt Ólafs­dóttir, þing­maður Bjartrar fram­tíðar, fjallar um bréf lög­reglu­stjór­ans í Vest­manna­eyjum þar sem hún fór fram á að við­bragðs­að­ilar á þjóð­há­tíð í Eyjum tjái sig ekki um kyn­ferð­is­brot við fjöl­miðla í stöðu­upp­færslu á Facebook, og kemst að þeirri nið­ur­stöðu að málið sé "algjört rugl". Björt rekur málið, og rök­semdir fyrir því að upp­lýsa um tíðni kyn­ferð­is­brota, í löngu máli í...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár