Tvö kynferðisbrot komu inn á borð lögreglunnar í Eyjum um helgina

Tvö kyn­ferð­is­brot komu til rann­sóknar hjá lög­regl­unni í Vest­manna­eyjum um helg­ina. Fyrra málið kom inn á borð lög­reglu aðfara­nótt sunnu­dags og á að hafa átt sér stað í kringum mið­nætti kvöldið áður, að því er fram kemur í til­kynn­ingu frá lög­regl­unni í Vest­manna­eyjum, þar sem farið er yfir störf lög­regl­unnar um liðna versl­un­ar­manna­helgi. Einn maður var hand­tek­inn eftir skipu­lagða leit í Herj­ólfs­dal. Um málin tvö segir:

„Tvö kyn­ferð­is­brot komu til rann­sóknar hjá lög­reglu. Fyrra málið kom inn á borð lög­reglu aðfara­nótt sunnu­dags en meint brot á að hafa átt sér stað í kringum mið­nætti kvöldið áður. Þol­and­inn, ung stúlka, fékk við­eig­andi aðstoð og var flutt á neyð­ar­mót­töku á Land­spít­al­ann í Reykja­vík og var til­nefndur rétt­ar­gæslu­maður. Rannsókn er að mestu lokið en óljóst um máls­at­vik.

Seinna málið var til­kynnt lög­reglu að kvöldi sunnu­dags en á að hafa átt sér stað eftir mið­nætti aðfara­nótt sunnu­dags. Um tengda aðila er að ræða og fékk konan við­eig­andi aðstoð og var flutt á neyð­ar­mót­töku á Land­spít­al­ann í Reykja­vík og var til­nefndur rétt­ar­gæslu­maður. Vett­vangur var rann­sak­aður og sak­born­ingur hand­tek­inn af lög­reglu skömmu eftir til­kynn­ingu þar sem skipu­lögð leit fór fram af honum í Herj­ólfs­dal. Málið telst upp­lýst og rann­sókn vel á veg komin.“

Fram kom í dag að þrjár konur hafi leitað til neyð­ar­mót­töku kyn­ferð­is­brota á Land­spít­al­anum í Fossvogi eftir versl­un­ar­manna­helg­ina. Brotin voru öll framin á Þjóð­há­tíð í Eyjum. Þá vildi Páley Borg­þórs­dóttir, lög­reglu­stjóri í Vest­mann­eyjum, ekki upp­lýsa frétta­stofu RÚV um hvort kyn­ferð­is­brot hafi komið á borð lög­regl­unnar um helg­ina, en vís­aði til til­kynn­ingar, sem nú hefur verið birt á vef­síðu lög­regl­unnar.

„Lögregla telur 15.000 manns hafa sótt þjóð­há­tíð Vest­manna­eyja að þessu sinni. 26 lög­reglu­menn sinntu lög­gæslu og 100 gæslu­menn. Auk þeirra var starf­andi læknir í dalnum og annað heil­brigð­is­starfs­fólk, áfallateymi og sjúkra­flutn­inga­menn. Áfallateymi aðstoð­aði fólk við ýmis mál svo sem sjálfs­vígs­hugs­anir, kvíða og fleira. Barna­vernd­ar­starfs­menn sinntu auk þess málum barna undir 18 ára aldri sem komu upp á hátíð­inni,“ segir um hátíð­ina. Er það mat lög­regl­unnar að henni hafi tek­ist vel til við lög­gæslu.

„Miðað við fyrri hátíðir fór þjóð­há­tíðin vel fram og er það mat lög­reglu að lög­gæsla hafi gengið vel á hátíð­inni og gæsla hafi verið öflug. Viðbragð í sjúkra­skýli, hjá áfallateymi og barna­vernd var gott og fjöl­mörgum sem var sinnt vegna mis­mun­andi erf­ið­leika. Það er miður að upp hafi komið kyn­ferð­is­brot en áhersla var á vönduð og fag­leg vinnu­brögð við þeim þar sem rann­sókn­ar­hags­munir og hags­munir brota­þola voru settir í for­gang. Það er mat lög­reglu og áfallateymis að vel hafi tek­ist til með að senda ekki taf­ar­lausar upp­lýs­ingar um alvar­leg­ustu brotin til fjöl­miðla heldur að veita slíkar upp­lýs­ingar á réttum tíma­punkti eins og alltaf hafi staðið til.“

Fíkni­efna­mál voru mörg á hátíð­inni eða alls 72 tals­ins. Mest var hald­lagt af hvítum efnum og í að minnsta kosti 5 þeirra var um sölu og dreif­ingu að ræða. „Að mati lög­reglu þykir þessi árangur í fíkni­efna­málum hafa komið í veg fyrir alvar­leg ofbeld­is­brot þar sem þekkt er að af neyslu hvítra efna verða menn árás­ar­gjarn­ari en ella.

Engar alvar­legar lík­ams­árásir voru kærðar til lög­reglu en sex mál vegna minni­háttar lík­ams­árása eru til rann­sóknar án þess þó að hafa verið kærðar. Eitt mál kom upp er varðar nytja­stuld og eigna­spjöll og hefur það verið upp­lýst,“ segir lög­reglan í Vest­manna­eyjum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kynferðisafbrot

Aðsent

Friðrik Þór Gestsson

Hvenær er nauðgun rétt­læt­an­legur fórn­ar­kostn­aður?

Núna þegar stytt­ist í versl­un­ar­manna­helg­ina þá kemur upp umræðan um Þjóð­há­tíð í Vest­mann­eyjum og allt það sem þar ger­ist. Eins og flestir vita þá hefur Lög­reglu­stjór­inn í Vest­mann­eyjum ákveðið að til­kynna ekki fjöl­miðlum um kyn­ferð­is­brot sem til­kynnt verða á hátíð­inni fyrr en ein­hverjum dögum eftir hátíð­ina. Þannig áður en hátíðin byrjar og áður en nokkur gestur er kom­inn í dal­inn...
Pistillkynferðisafbrot

Ásdís Ólafsdóttir

Köln, konur og kyn­ferð­is­brot

Rétt fyrir mið­nætti á gamlárs­kvöld var saman kom­inn mik­ill fjöldi fólks við dóm­kirkj­una í Köln til að fylgj­ast með flug­elda­sýn­ingu á ára­mót­unum. Meðal þeirra voru yfir þús­und karl­menn af arab­ískum og norður-afrískum upp­runa og réð­ust hópar þeirra að konum á svæð­inu eftir að flug­elda­sýn­ingin hófst. Yfir 600 konur leit­uðu til lög­reglu og lýstu hvernig menn­irnir áreittu þær, káf­uðu á þeim,...
Fréttir

Lög­reglan í Eyjum skrifar frétt um öll brot á Þjóð­há­tíð, nema kyn­ferð­is­brot

Lög­reglan í Vest­manna­eyjum birti í dag frétt á heima­síðu sinni þar sem hún fór yfir þau mál sem komu upp hjá henni á meðan að á Þjóð­há­tíð í Eyjum stóð um helg­ina. Það er að segja öll þau mál sem snú­ast ekki um kyn­ferð­is­brot, en lög­reglan í Vest­manna­eyjum var búin að ákveða það í aðdrag­anda Þjóð­há­tíðar að upp­lýsa ekki um...
Fréttirkynferðisafbrot

Þing­maður Bjartrar fram­tíðar segir þögn um kyn­ferð­is­brot í Eyjum „algjört rugl“

Björt Ólafs­dóttir, þing­maður Bjartrar fram­tíðar, fjallar um bréf lög­reglu­stjór­ans í Vest­manna­eyjum þar sem hún fór fram á að við­bragðs­að­ilar á þjóð­há­tíð í Eyjum tjái sig ekki um kyn­ferð­is­brot við fjöl­miðla í stöðu­upp­færslu á Facebook, og kemst að þeirri nið­ur­stöðu að málið sé "algjört rugl". Björt rekur málið, og rök­semdir fyrir því að upp­lýsa um tíðni kyn­ferð­is­brota, í löngu máli í...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Fyrir mán­uði skrif­aði lög­reglan í Eyjum fréttir um kyn­ferð­is­brot - Nú má ekki segja frá þeim

Lög­reglu­stjór­inn í Vest­manna­eyjum hefur ekki verið að skora mörg vin­sæld­ar­stig eftir að hún sendi út bréf til allra við­bragðs­að­ila sem tengj­ast þjóð­há­tíð í Eyjum og brýndi fyrir þeim að upp­lýsa fjöl­miðla ekki um kyn­ferð­is­brot sem gætu komið upp á hátíð­inni um helg­ina. Þrátt fyrir að lög­reglu­stjór­inn, Páley Borg­þórs­dóttir, hafi gefið það út að þetta sé gert til að hlífa brota­þolum...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár