Árangursleysi í byssumálum veldur Obama mestum vonbrigðum

Barack Obama Banda­ríkja­for­seti segir árang­urs­leysi í bar­átt­unni fyrir breyttri byssu­lög­gjöf í land­inu vera það sem valdi honum mestum von­brigðum í for­seta­tíð sinni. Eftir rúm sex ár í for­seta­stóli eru aðeins um átján mán­uðir eftir af for­seta­tíð hans. Á þessum tíma hefur Obama talað fyrir hertri byssu­lög­gjöf, sem er hvergi frjáls­lynd­ari en í Banda­ríkj­unum í hinum vest­ræna heimi, en ekki orðið ágengt.

Obama var í ítar­legu við­tali hjá BBC í gær þar sem hann ræddi meðal ann­ars von­brigði sín yfir hversu illa hafi gengið að lög­binda „byssu­lög­gjöf byggða á heil­brigðri skyn­semi“. Viðtalið var tekið aðeins örfáum klukku­stundum áður en byssu­maður myrti tvo og særði níu ein­stak­linga í kvik­mynda­húsi í borg­inni Lafayette í Louisiana fylki í Banda­ríkj­unum. Viðtalið hafði ekki verið birt þegar atburð­ur­inn átti sér stað, í gær­kvöldi að stað­ar­tíma. Árás­armað­ur­inn var hvítur karl­maður, 58 ára að aldri. Hann framdi sjálfs­morð.


Yfir hund­rað manns voru í kvik­mynda­salnum þegar árás­armað­ur­inn hóf skot­hríð. Fólkið var að horfa á mynd­ina Trainwreck. Amy Schumer, aðal­leik­kona mynd­innar, brást við ódæð­is­verk­inu á Twitter og sagði hug sinn hjá öllum í Louisiana.

My heart is bro­ken and all my thoughts and prayers are with everyone in Louisiana.

— Amy Schumer (@amyschumer) July 24, 2015


Miklu fleiri byssur og miklu fleiri morð


Í við­tal­inu hjá BBC sagði Obama það vera baga­legt að engar veiga­miklar breyt­ingar hafi verið gerðar á byssu­lög­gjöf í Banda­ríkj­unum þrátt fyrir end­ur­tekin fjöldamorð á und­an­förnum árum. „Ef þú skoðar gögn um Banda­ríkja­menn sem hafa verið drepnir í hryðju­verka­árásum frá 9. sept­em­ber 2011, þá eru þeir færri en hund­rað. Ef þú skoðar gögn um fjölda þeirra sem hafa verið myrtir í byssu­árásum, þá eru það tugir þús­unda,“ sagði for­set­inn.


Byssu­eign Banda­ríkja­manna er mun algeng­ari meðal almenn­ings en þekk­ist í öðrum vest­rænum ríkjum. Samkvæmt frétt banda­ríska fjöl­mið­ils­ins Vox eiga Banda­ríkja­menn ríf­lega 40 pró­sent af öllum byssum í almenn­ings­eigu í Banda­ríkj­unum, en skot­vopn í eigu almenn­ings í heim­inum eru um 644 milljón tals­ins, sam­kvæmt gögnum Sam­ein­uðu þjóð­anna. Banda­ríkja­menn, sam­tals um 330 milljón tals­ins, telja 4,4 pró­sent af mann­kyn­inu.


Taflan hér að neðan sýnir mann­dráp með byssum á hverja milljón íbúa í fjórtán vest­rænum ríkjum. Í Banda­ríkj­unum voru 29,7 skotnir til bana á hverja milljón íbúa árið 2012, langtum fleiri en í sam­an­burð­ar­löndum.

[caption id="attachment_34896" align="aligncenter" width="800"] Manndráp í Banda­ríkj­unum og öðrum vest­rænum ríkjum á hverja milljón íbúa. Kortið er fengið af Vox.com[/caption]

Hræðilegur fjöldi árása á óbreytta borgara


Árás byssu­manns­ins á óbreytta borg­ara í gær er ekki sú fyrsta og, því miður, ólík­lega sú síð­asta í Banda­ríkj­unum. Frétta­síðan Vox fjallar um fjölda slíkra árása á síð­ustu árum og segir að gögn bendi til að þær hafi færst í auk­ana. Þrjú ár eru liðin frá því að byssu­maður myrti tólf og særði 70 í kvik­mynda­húsi í Aurora í Colorado fylki. Þá eru aðeins örfáar vikur síðan ungur hvítur maður skaut níu svarta kirkju­gesti í Charleston til bana. Hann hefur verið ákærður fyrir hat­urs­glæp.


Í annarri frétt Vox í dag segir að 226 manns hið minnsta hafi látið lífið í 72 byssu­árásum fjöldamorð­ingja í Banda­ríkj­unum frá því í des­em­ber 2012. Í þeim mán­uði myrti byssu­maður tutt­ugu börn, sex full­orðna og sjálfan sig í grunn­skól­anum Sandy Hook í bænum Newton í Connecticut fylki.


Með­fylgj­andi kort er birt í umfjöll­un­inni. Það sýnir öll fjöldamorð (e. mass shootings) í Banda­ríkj­unum síðan í des­em­ber 2012. Kortið er unnið af Stand­ford háskóla.


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár