Charleston morðinginn sömuleiðis ákærður fyrir tilraunir til manndráps

Dylann Storm Roof, sem ákærður er fyrir að hafa skotið níu svarta kirkju­gesti í Charleston til bana með köldu blóði þann 17. júní síð­ast­lið­inn, hefur verið ákærður fyrir þrjár mann­dráp­stil­raunir að auki. Þetta til­kynnti sak­sókn­ari máls­ins í dag, en frétta­mið­ill­inn TIME greinir frá mál­inu.

Skotárásin átti sér stað við bibl­íu­kennslu þegar Roof, sem er 21. árs, stóð skyndi­lega upp og hóf að skjóta á við­stadda. Níu lágu í valnum eftir árás­ina, en hún er rakin til djúp­stæðs kyn­þátta­hat­urs. Nokkrar kirkjur svartra hafa verið brenndar til grunna í Suður-Karólínu eftir að voða­verkið átti sér stað.

Dylan Storm Roof hefur verið ákærður fyrir að myrða níu kirkju­gesti, og vopna­laga­brot, en ákær­urnar er varða til­raun til mann­dráps stafa af kirku­gestum sem lifðu af árás­ina. Hann á að mæta aftur fyrir dóm­ara í októ­ber.

Alrík­is­yf­ir­völd í Banda­ríkj­unum hafa ekki upp­lýst um hvort Roof verði sóttur til saka fyrir hat­urs­glæp, en emb­ætt­is­menn banda­ríska dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins hafa látið hafa eftir sér að voða­verkin upp­fylli skil­yrði fyrir slíkri sak­sókn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár