Donald Trump hótar sjálfstæðu framboði

Auð­kýf­ing­ur­inn og ólík­inda­tólið Donald Trump úti­lokar ekki að bjóða sig fram án aðkomu Repúblíkana­flokks­ins, njóti hann ekki sann­gjarnar með­ferðar í for­kosn­inga­bar­áttu repúblik­ana til for­seta­kosn­ing­anna í Banda­ríkj­unum 2016. Þannig gæti farið, hljóti Trump ekki útnefn­ingu í for­vali repúblik­ana, að hann bjóði sig engu að síður fram til for­seta Banda­ríkj­anna, gegn fram­bjóð­anda Demókra­ta­flokks­ins og fram­bjóð­anda Repúblikana­flokks­ins.

Að mati Trumps hefur fram­kvæmda­stjórn Repúblikana­flokks­ins ekki sýnt fram­boði hans mik­inn stuðn­ing til þessa. Við­tök­urnar hafi verið aðrar en þegar hann hefur lagt flokknum til stuðn­ingsfé í gegnum tíð­ina.

Erlendir fjöl­miðlar hafa fjallað um mögu­legt fram­boð Trumps á eigin vegum, meðal ann­ars Politico og Business Insider. Blaða­maður Business Insider segir að sjálf­stætt fram­boð hans gæti reynst martröð fyrir Repúblikana­flokk­inn, þar sem Trump myndi sækja fylgi sitt í raðir sömu kjós­enda.

Kosn­inga­bar­átta Trumps hefur á köflum verið lyg­inni lík­ust. Hann hefur ráð­ist harka­lega að virtum flokks­fé­lögum, meðal ann­ars John McCain fyrrum for­seta­efni flokks­ins, og látið afar gagn­rýni­verð ummæli falla um inn­flytj­endur í Banda­ríkj­unum. En þótt margir hristi haus­inn yfir illa ígrund­uðum ummælum hans þá fellur póli­tísk sýn hans vel í kramið hjá mörgum Banda­ríkja­mönnum. Í könn­unum mælist hann lang­vin­sæl­asti fram­bjóð­and­inn í for­vali Repúblikana­flokks­ins, en alls eru sextán í fram­boði.

Miklar vin­sældir og sýni­leiki Trumps hafa valdið öðrum fram­boðum nokkrum áhyggjum, ekki síst vegna þess að með miklum látum þá stýrir Trump í raun kosn­inga­bar­átt­unni. Á sama tíma og margir Repúblikanar vilja ráð­ast að fram­boði Trumps, þá eru aðrir sem telja það óráð. Í nýlegri grein NY Times er fjallað um stöð­una og bent á að ef Trump verður hrak­inn burt þá aukast lík­urnar á sjálf­stæðu fram­boði hans.

Til marks um að varla líði sá dagur án þess að Trump vekji á sér athygli, þá lét hann Anderson Cooper, frétta­mann CNN, heyra það í við­tali sem birt var í gær, mið­viku­dag. „Ég get sagt þér að fólk treystir þér ekki og það treysta ekki fjöl­miðlum,“ sagði Trump, sak­aði fjöl­miðla um að vera óheið­ar­legir og Cooper sér­stak­lega um að spyrja sig ein­göngu um nei­kvæða hluti.

Viðtalið má sjá hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár