Fylgi Trumps mælist 24 prósent - Sagður heimsins stærsta tröll

Auð­kýf­ing­ur­inn Donald Trump mælist vin­sælasta for­seta­efni Repúblikana­flokks­ins, sam­kvæmt nýrri könnun Washington Post og ABC sjón­varps­stöðv­ar­innar. Fylgi Trumps mæld­ist 24 pró­sent í könnun sem gerð var dag­ana 16. til 19. júlí. Það er tvö­falt meira fylgi en hjá næsta fram­bjóð­anda. Enginn Repúblikani hefur mælst með meira fylgi í könn­unum á þessu ári. Vin­sældir Trumps hafa sexfald­ast frá því í byrjun maí, skömmu áður en hann til­kynnti form­lega um að hann sæk­ist eftir því að vera for­seta­efni Repúblik­ana í for­seta­kosn­ing­unum 2016.

Næstur á eftir Trump í skoð­ana­könnun Washington Post og ABC News er Scott Walker, rík­is­stjóri Wisconsin fylkis. Hann til­kynnti um fram­boð sitt fyrir viku síðan. Jeb Bush, fyrrum rík­is­stjóri Flórída fylkis og bróðir George Bush fyrrum Banda­ríkja­for­seta, mælist með 12 pró­sent fylgi. Sjö aðrir fram­bjóð­endur í for­vali flokks­ins fengu þrjú til átta pró­sent fylgi en alls eru 16 í fram­boði.


Aldrei hafa verið svo margir fram­bjóð­endur í for­vali Repúblikana­flokks­ins. Því var ákveðið að ein­ungis tíu kæmust að í kom­andi sjón­varp­s­kapp­ræðum sem sjón­varps­stöðin Fox News stendur fyrir. Þær fyrstu verða haldnar þann 6. ágúst næst­kom­andi og verður valið í þær eftir mældum vin­sældum fram­bjóð­enda í skoð­ana­könn­unum. Nið­ur­stöður kann­ana í dag skipta því miklu máli, jafn­vel þótt kosn­inga­bar­áttan sé aðeins nýhafin fyrir alvöru.

Vinsældir dvína eftir skot á McCain

Frá því að Trump til­kynnti um fram­boð sitt til for­seta­efnis Repúblik­ana hefur hann látið hver umdeildu ummælin falla á fætur öðru. Á laug­ar­dag­inn sagði hann John McCain, öld­ung­ar­deild­ar­þing­mann flokks­ins og fyrrum for­seta­fram­bjóð­anda, ekki vera stríðs­hetju. Á 7. ára­tugnum var McCain fangi Norður-Víetnamska hers­ins í fimm og hálft ár og var pynt­aður ítrekað á þeim tíma.


Margir brugð­ust illa við ummælum Trumps um flokks­fé­laga sinn, auð­kýf­ing­ur­inn dróg lít­il­lega í land með ásak­anir sínar en baðst ekki afsök­unar.


Í skoð­ana­könnun Washington Post og ABC, sem gerð var dag­ana 16. til 19. júlí, féllu vin­sældir Trumps veru­lega eftir að hann gerði lítið úr John McCain. Blaða­menn Washington Post segja erfitt að meta það á þessum tíma­punkti hver þró­unin verður á vin­sældum Trumps í kjöl­far póli­tískrar árásar hans á McCain.

Er Trump heimsins stærsta tröll?

Vin­sældir Trumps meðal hluta kjós­enda Repúblikana­flokks­ins má meðal ann­ars rekja til óvæg­inna og harð­neskju­fullra ummæla hans um inn­flytj­endur í Banda­ríkj­unum. „Þegar Mexíkó sendir fólkið sitt, þá er það ekki besta fólkið þeirra. Þau senda fólk sem glíma við mörg vanda­mál og þau taka þessi vanda­mál með sér. Þau taka með sér fíkni­efni og glæpi. Þetta eru nauð­garar,“ sagði Trump í einni umdeild­ustu ræðu sinni um inn­flytj­endur í Banda­ríkj­unum frá nágranna­rík­inu Mexíkó.


Mörgum þykir afstaða Trump afar for­dóma­full og fáfróð. Vegna ummæla sinna hefur hann misst sjón­varps­samn­ing og fjöl­mörg fyr­ir­tæki hafa rift samn­ingum við hann. Engu að síður hafa vin­sæld­irnar haldið áfram að aukast í skoð­ana­könn­unum.


Nate Silver, rit­stjóri frétta­síð­unnar FiveT­hir­tyEight.com, birti í gær úttekt þar sem hann sagði Trump vera heims­ins stærsta „tröll“. Þar á hann við ein­stak­ling sem vilj­andi skapar ill­deilur og kallar á athygli með öllum til­tækum ráðum, meðal ann­ars illa ígrund­uðum og ögrandi skoð­unum. Silver er ósam­mála ákvörðun fjöl­mið­ils­ins Huffington Post um að skil­greina allt sem við­kemur kosn­inga­bar­áttu Trumps sem skemmti­efni en ekki póli­tískar fréttir. „Framboð hans er stjórn­mála­saga en ekki ein­göngu skemmti­efni,“ segir Silver. „Eftir tólf ár sem blaða­maður á inter­net­inu, þá hef ég lært að hið forn­kvæða er satt. Ekki gefa tröll­inu að borða. Eina leiðin til þess að drepa tröll eins og Trump er að veita því ekki athygli.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár