1800 íbúðir í Reykjavík til leigu á Airbnb - Er vefsíðan góð eða slæm fyrir borgina?

Rúmlega 1800 íbúðir og her­bergi í Reykja­vík eru skráð á hús­næð­is­leigu­síð­unni Airbnb.com. Verðið fyrir nótt­ina er afar mis­jafnt, allt frá um fjögur þús­und krónum fyrir dýnu­pláss á háa­lofti, til þak­íbúða á besta stað í Reykja­vík fyrir 130 þús­und krónur á nóttu. Algengt ásett verð fyrir íbúð mið­svæðis í Reykja­vík er um 150 til 170 doll­arar fyrir gistinótt, eða um tutt­ugu til 23 þús­und krónur.

Töl­fræðin sem gefin er upp á Airbnb bendir til að útleiga á íbúðum í Reykja­vík sé mikil. Ef slegnar eru inn mis­mun­andi dag­setn­ingar á næstu sex vikum þá er oft­ast minna en 20 pró­sent skráðra íbúða enn lausar. Flestar eru þegar bók­aðar af erlendum ferða­mönnum.


Mun fleiri íbúðir eru til útleigu í gegnum Airbnb í sumar heldur en síð­asta sumar. Í febr­úar var greint frá því að aukn­ing á fram­boði var 137 pró­sent milli jan­úar 2014 og jan­úar 2015. Þá voru íbúð­irnar til leigu um 1.300 tals­ins. þeim hefur fjölgað enn meira síðan þá og eru nærri tvö þús­und tals­ins. Fyrir íbúða­eig­endur, eða leigj­endur, getur það gefið miklar tekjur að leigja út íbúð­ina eða her­bergi til skamms tíma, oft­ast aðeins nokkra daga í senn. Ef erlendir ferða­menn dvelja í fimm daga og greiða tutt­ugu þús­und fyrir nótt­ina fær leigusal­inn hund­rað þús­und krónur fyrir.


En er útleiga íbúða­eig­enda og leigj­enda til ferða­manna góð eða slæm fyrir borg­ina? Þessu velta borg­ar­yf­ir­völd víða um heim fyrir sér þessi miss­erin. Í San Francisco, þar sem hug­myndin um Airbnb vakn­aði fyrst, hyggst borg­ar­stjórn setja þak á fjölda leyfi­legra gistin­átta í skamm­tíma­leigu. Stað­reyndin er sú að hags­munir íbúða­eig­enda geta farið þvert á hags­muni borg­ar­innar í heild. Áhrifin eru ekki síst mæl­an­leg í hækk­andi leigu­verði íbúða á vin­sælum svæðum.

Hagsmunir ekki endilega þeir sömu

Áhyggjur borg­ar­yf­ir­valda í San Francisco snúa ekki að þjón­ustu Airbnb sem slíkrar. Ef íbúða­eig­endur nýta sér síð­una sjaldan og leigja út til skamms tíma, í skamman tíma, þá skap­ast engin vanda­mál, einkum ef eig­endur greiða til­skylda virð­is­auka- og gistin­átta­skatta.


Áhrif Airbnb geta fyrst orðið nei­kvæð ef íbúða­eig­endur nýta hús­næði sitt alfarið í skamm­tíma­út­leigu til ferða­manna. Það getur verið íbúða­eig­endum í hag að leigja íbúð sína í gegnum Airbnb í stað þess að gera lang­tíma­leigu­samn­ing, ein­fald­lega vegna þess að miklu hærri fjár­hæðir fást með skamm­tíma­leigu. Borg­ar­hag­fræð­ingar í San Francisco reikn­uðu það út að virði lang­tíma­leigu­samn­ings í eitt ár er jafnt niður í allt að 120 dögum í skamm­tíma­leigu. Það þýðir að eig­and­inn þarf aðeins að leigja út íbúð­ina í gegnum Airbnb í 120 daga á ári til þess að hafa jafn háar tekjur af því og einum leigj­anda í heilt ár. Allar nætur sem hann selur umfram 120 skila sér því í auknum tekjum en ella.


Þetta má heim­færa til Reykja­víkur, þótt setja þurfi fyr­ir­vara um nákvæmni for­senda um kostnað, sem eru blaða­manns. Raunhæft dæmi er tveggja her­berga íbúð mið­svæðis í Reykja­vík, til dæmis í Vest­ur­bænum. Á lang­tíma­leigu­mark­aði kostar íbúðin 175 þús­und á mán­uði. Leigu­tekjur leigusal­ans eru þá 2,1 milljón króna á tólf mán­uðum. Kostn­aður vegna gjalda og við­halds er í þessu dæmi 20 pró­sent og tekjur leigusal­ans að frá­dregnum kostn­aði því um 1.575 þús­und krónur á ári.


Ef sami eig­andi kýs að leigja heldur út íbúð­ina sína í gegnum Airbnb þarf hann aðeins að hýsa ferða­menn í 112 nætur á ári til að fá sömu tekjur og af lang­tíma­leigu­samn­ingi. Er þá gert ráð fyrir að gistinóttin selj­ist á tutt­ugu þús­und krónur og að kostn­aður vegna starf­sem­innar, með gjöldum og við­haldi, sé 30 pró­sent af tekjum. Gistinæt­urnar 112 jafn­gilda 30 pró­sent nýt­ingu á ári. Nái hann 50 pró­sent nýt­ingu eru tekj­urnar um milljón krónum hærri en af lang­tíma­leigu­samn­ingi.

Dæmið ímyndað en hvatinn raunverulegur

Dæmið hér að ofan má snúa og teygja með til­liti til kostn­aðar og tekna af bæði lang­tíma- og skamm­tíma­leigu. Stað­reyndin er sú að í mýmörgum til­vikum sjá íbúða­eig­endur hag sínum betur borgið með skamm­tíma­út­leigu, ein­fald­lega vegna þess að tekj­urnar af því eru mun hærri. Þetta á sér­stak­lega við á vin­sælum ferða­manna­svæðum mið­svæðis.


Afleið­ing­arnar á leigu­mark­aði eru þær að fram­boð hús­næðis minnkar. Íbúðir hverfa af venju­legum leigu­mark­aði og fær­ast á skamm­tíma­leigu­markað, fyrir ferða­menn. Með minnk­andi fram­boði hækkar leigu­verð. Það hefur gerst í San Francisco borg þar sem leigu­verð hefur hækkað um 15 pró­sent á síð­asta ári.

Leiguverð í Reykjavík hefur líka hækkað

Ekki liggur fyrir hversu margar af skráðum íbúðum í Reykja­vík á Airbnb eru í skamm­tíma­leigu allt árið eða stóran hluta þess. Þær upp­lýs­ingar eru ekki aðgengi­legar. Fyrir liggur að stærstur hluti íbúð­anna er leigður út án starfs­leyfis. Það getur verið vís­bend­ing um að þær íbúðir eru yfir­leitt not­aðar af eig­endum eða lang­tíma­leigj­endum en ekki í starf­semi í anda gisti­heim­ila. Það þarf þó ekki endi­lega að vera, og ástæðan getur ein­fald­lega verið sú að not­and­inn borgar hvorki til­skilin gjöld né hafi sótt um leyfi fyrir útleig­unni.


Vegna verk­falls lög­manna sýslu­manns­ins á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, sem nú er afstaðið, eru ekki til nýlegar tölur um þróun leigu­verðs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þó er vitað að rétt eins og íbúða­verð þá hefur leigu­verð hækkað mest mið­svæðis og í nágrenni við mið­bæ­inn, í póst­núm­er­unum 101, 105 og 107. Samkvæmt þing­lýstum leigu­samn­ingum hækk­aði leigu­verð á þriggja her­bergja íbúð í Reykja­vík vestan Kringlu­mýra­brautar og á Sel­tjarn­ar­nesi um sirka 5 pró­sent frá apríl 2014 til mars 2015. Frá jan­úar 2013 til mars 2015, á 25 mán­aða tíma­bili, nemur hækk­unin ríf­lega 20 pró­sentum. Hækkunin er langt umfram verð­bólgu­þróun.

Er Airbnb góð fyrir Reykjavík og íbúa borgarinnar?

Hækkandi leigu­verð er slæmt fyrir þá íbúa Reykja­víkur sem eru á leigu­mark­aði vegna þess að útgjöld þeirra aukast. Áhrif á heild­ar­á­bata borg­ar­innar eru þannig nei­kvæð. Í San Francisco borg eru nei­kvæð áhrif þess að missa íbúð af lang­tíma­leigu­markað yfir á skamm­tíma­leigu­markað metin á 33 til 40 millj­ónir árlega. Talan er ekki endi­lega svo há í Reykja­vík.


Á móti er hækk­andi leigu­verð gott fyrir leigu­sala og rík­is­sjóð sem hefur skatt­tekjur af útleig­unni. Er það mat margra, og heldur Airbnb því sér­stak­lega á lofti í bar­áttu sinni við borg­ar­yf­ir­völd víða, að vef­síðan fjölgi ferða­mönnum. Kenn­ingin er sú að ferða­menn komi frekar þangað sem íbúðir eða her­bergi eru aðgengi­leg í gegnum Airbnb. Og það er gott fyrir ferða­manna­iðn­að­inn. Á Íslandi eyddi hver ferða­maður sem kom í júní að með­al­tali um 135 þús­und krónum í ferð­inni með greiðslu­korti. Að hluta hefur pen­ing­unum verið eytt í Reykja­vík. Áhrif þess eru góð á heild­ar­á­bata borg­ar­innar.


Í San Francisco meta borg­ar­hag­fræð­ingar það þannig að Airbnb er góð fyrir borg­ina og leigu­sala þegar íbúðir eru leigðar til skamms tíma, í skamman tíma. Þegar íbúðir eru aftur á móti teknar af lang­tíma­leigu­mark­aði og leigðar alfarið í gegnum Airbnb er leigusal­inn eini sig­ur­veg­ar­inn. Það er lík­legt að reikni­dæmið skili svip­aðri nið­ur­stöðu í Reykja­vík.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár