San Francisco borg tapar á Airbnb - Vilja setja þak á fjölda gistinátta

Víðtæk notkun á hús­næð­is­leigu­miðl­inum Airbnb í San Francisco í Banda­ríkj­unum hefur leitt til veru­legra hækk­ana á leigu­verði í borg­inni. Borg­ar­yf­ir­völd eru ugg­andi um nei­kvæð áhrif vef­síð­unnar á leigu­mark­að­inn og skoða nú þann mögu­leika að setja lög sem tak­marka enn frekar fjölda leyfi­legra gistin­átta í skamm­tíma­leigu.

Margir hús­næð­is­eig­endur í San Francisco sjá hag sínum betur borgið með útleigu til skamms tíma í gegnum Airbnb, að hluta eða öllu leyti, í stað þess að leigja íbúðir sínar til lengri tíma. Þetta hefur leitt til sam­dráttar í fram­boði á leigu­í­búðum fyrir íbúa borg­ar­innar og til­heyr­andi hækk­unum á leigu­verði, sem hefur rokið upp um 15 pró­sent á síð­asta árinu. Í vin­sælum hverfum borg­ar­innar hefur fram­boð á leigu­í­búðum til lengri tíma dreg­ist saman um allt að 40 pró­sent.


Í maí síð­ast­liðnum birtu borg­ar­hag­fræð­ingar San Francisco nýja skýrslu um hag­ræn áhrif Airbnb í borg­inni. Nið­ur­staða þeirra er að sá kostn­aður sem hlýst af hækk­andi íbúða- og leigu­verði vegna Airbnb sé mun meiri en tekj­urnar af þeim ferða­mönnum sem heim­sækja borg­ina og gista í Airbnb íbúðum, greiða fyrir það gjald, eyða pen­ingum í borg­inni auk þess sem leigusalar greiða gistin­átta­skatt vegna starf­sem­innar. Nokkurs konar ábata- og kostn­að­ar­grein­ing hag­fræð­ing­anna er því sú að heild­ar­á­hrif Airbnb séu nei­kvæð fyrir borg­ina í dag.


Lausnin sem litið er til felst í áður­nefndu hámarki á fjölda gistin­átta í íbúða­hús­næði. Borg­ar­yf­ir­völd kanna meðal ann­ars þessar vik­urnar mögu­leika þess að inn­leiða lög sem setja 60 daga árlegt hámark á fjölda gistinótta. Þannig gæti íbúða­eig­andi aðeins leigt íbúð sína í skamm­tíma­leigu í sam­tals 60 daga á ári. Með laga­breyt­ing­unum vilja stjórn­völd draga úr hvata íbúða­eig­enda til þess að leigja eign sína í gegnum Airbnb og beina hags­munum þeirra í lang­tíma­leigu­samn­inga.

Deila við borgaryfirvöld víða

Fyr­ir­tækið Airbnb var stofnað í San Francisco árið 2008 og eru höf­uð­stöðvar þess í borg­inni í dag, eins og höf­uð­stöðvar margra ann­arra nýrra og ört vax­andi fyr­ir­tækja í tækni­geir­anum. Vöxtur Airbnb und­an­farin ár hefur verið ótrú­legur. Virði fyr­ir­tæk­is­ins miðað við síð­ustu hluta­fjár­við­skipti eru 24 millj­arðar doll­arar og er talið að tekjur Airbnb í ár verði hærri en 900 millj­ónir doll­ara.


Vöxt­ur­inn hefur ekki komið fyr­ir­tæk­inu að kostn­að­ar­lausu og við­skipta­mód­elið, oft kennt við hið svo­nefnda deili­hag­kerfi, hefur mætt and­stöðu. Þrátt fyrir fyr­ir­hug­aðar laga­setn­ingu, þá er skiln­ingur borg­ar­yf­ir­valda í San Francisco á starf­semi Airbnb tölu­vert meiri en í mörgum öðrum borgum. Starf­semi félags­ins var til að mynda gerð lög­mæt í San Francisco seint á síð­asta ári. Heimilt er að leigja út íbúð sína í 90 daga í skamm­tíma­leigu á ári og ótak­markað ef aðeins er um að ræða her­bergi eða hluta hús­næðis, og eig­andi þess er áfram búsettur í því.


Við­horfið hefur verið þver­öf­ugt ann­ars staðar í Banda­ríkj­unum, til dæmis í New York borg, þar sem borg­ar­yf­ir­völd hafa viljað tak­marka starf­semi vef­síð­unnar veru­lega. Raunar þarf ekki að fara vestur um haf til að finna deilur vegna vin­sælda Airbnb, í Reykja­vík hafa eft­ir­lits­að­ilar viljað sporna gegn útleigu í gegnum síð­una.

Borgin yrði af skatttekjum

Viðbrögð stjórn­enda Airbnb við skýrslu borg­ar­hag­fræð­ing­anna voru meðal ann­ars þau að opin­bera um þá skatta sem félagið greiðir í mán­uði hverjum til borg­ar­sjóðs, en skatt­arnir eru inn­heimtir af þeim sem leigja út íbúðir sínar á Airbnb.com. Í hverjum mán­uði greiðir Airbnb rúm­lega eina milljón doll­ara í borg­ar­sjóð, eða jafn­virði um 130 millj­óna króna á mán­uði. Samkvæmt útreikn­ingum Airbnb yrði San Francisco af um 50 millj­ónum doll­ara tekjum á næstu tíu árum, verði lög inn­leidd sem setja hámark við fjölda gistin­átta. Þá benda stjórn­endur Airbnb á að fleiri ferða­menn komi til borga þar sem eru Airbnb leigu­í­búðir, auk þess sem skamm­tíma­út­leiga hjálpi íbúða­eig­endum og -leigj­endum við að ná endum saman.

Matið þarf að vera rétt

Skýrsla borg­ar­hag­fræð­inga San Francisco er merki­leg fyrir margra hluta sakir, en tekið er fram að skortur á upp­lýs­ingum geri það að verkum að ekki sé hægt að reikna nákvæm­lega hvaða áhrif Airbnb hefur á leigu­mark­að­inn í borg­inni og leigu­verðið. Reikni­líkan þeirra sýni þó að nei­kvæð áhrif þess að missa hverja íbúð af lang­tíma­leigu­mark­aði yfir á skamm­tíma­leigu­markað séu á bil­inu 250 til 300 þús­und doll­arar, eða á bil­inu 33 til 40 millj­ónir króna.


Framlögð lausn er áður­nefnt þak á fjölda gistin­átta á ári hverju. Þetta þak má ekki vera of hátt, þannig að áhrif þess séu engin, né of lágt, þannig að leiga í gegnum Airbnb yrði gerð nán­ast ómögu­legt, líka þeim sem ekki hafa tekið íbúðir af lang­tíma­leigu­mark­að­inum heldur leigja aðeins út eigin íbúð af og til. Eins og fyrr greinir er íbúða­eig­endum í San Francisco heim­ilt í dag að leigja út íbúðir sínar í allt að 90 daga á ári í skamm­tíma­leigu.


En stjórn­mála­menn vilja lækka þakið og hafa einkum rætt tvær til­lögur. Sú fyrri er að hækka þakið í 120 daga en láta það gilda um alla, sama hvort öll íbúðin sé til leigu eða ekki. Hin til­lagan gengur mun lengra og myndi setja hámarks­fjölda gistin­átta í 60 nætur. Vonir borg­ar­yf­ir­valda standa til að með réttu hámarki gistin­átta sjái eig­endur leigju­í­búða hag sinn í að leigja þær út í meiri mæli til langs tíma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár