Umbrotatímar deilihagkerfis

Heims­meist­ara­mót FIFA í Brasilíu trekkir að 3,7 millj­ónir ferða­menn þetta árið. Flestir þeirra gista á hót­el­her­bergjum eða gisti­heim­ilum eins og við má búast. Einn af hverjum fimm hafa hins­vegar kosið að hreiðra um sig í íbúðum heima­fólks.

Bras­il­íu­menn eru þekktir fyrir hlý­legt við­mót en svo er ekki að gisti­plássin standi fólki til boða án end­ur­gjalds. Plássin voru öll aug­lýst til leigu á vef­síð­unni Airbnb.

Deilihagkerfið


Airbnb er eitt þeirra fyr­ir­tækja sem kenna sig við deili­hag­kerfið (e. shar­ing economy). Fjár­festar binda vonir við að deili­hag­kerfið riðji sér til rúms og að með raf­rænum mark­aðs­torgum megi auka nýtni sem skili sér til neyt­enda í hag­kvæmni og fjöl­breytt­ari fram­boði. Vaxt­ar­mögu­leikar þess­ara sprota er mik­ill þar sem fram­boð og eft­ir­spurn á vörum og þjón­ustu er mætt af not­endum síð­unnar en ekki virð­is­keðju fyr­ir­tæk­is­ins.

Fjár­fest­ing og eign þess­ara félaga er mæld í not­enda­fjölda og virkni fremur en afkasta­getu verk­smiðja og fjölda sölu­staða.

Airbnb lauk nýverið fjár­mögnun þar sem fyr­ir­tækið var metið á 10 millj­arða doll­ara. Heild­ar­fjár­magn sem dælt hefur verið í sprot­ann slagar hátt í millj­arð doll­ara. Verð­matið þótti mörgum merki um bólu­myndun í nýsköp­un­ar­fjár­fest­ingu líkt og þeirri sem sprakk um alda­mótin. Fyr­ir­tækið var stofnað fyrir aðeins sex árum með ein­falda hug­mynd um að tengja saman ferða­langa og eig­endur svefn­sófa. Í dag er eig­endum fast­eigna gert kleift að leysa úr læð­ingi falið virði eigna sinna og hámarka nýtni með því að leigja pláss til fólks, hvort eð er auka­her­bergi, tré­hús út í garði eða heilu sveita­vill­urnar með sund­laugum og det hele. Með ein­faldri leit á vef­síðu Airbnb má sjá að hund­ruðir hér á landi drýgja tekjur sínar með þessum hætti yfir sum­ar­mán­uð­ina.

[embed]http://issuu.com/kjarninn/docs/2014_06_26/32[/embed]

Úr 30 þúsund í 300 þúsund gístinætur


Airbnb teygir nú anga sína til 190 landa og þús­undir borga. Fyrir tveimur árum fimmtu­dag­inn 19. júní voru 30,000 gistinætur bók­aðar í gegnum vef­inn. Nú í síð­ast­lið­inni viku á sama degi voru þær 300,000 tals­ins.

Þjón­ustan inn­heimtir þóknun fyrir hverja bókun en sleppur við ýmsan rekstr­ar­kostnað sem hefð­bundin hótel og gist­hús þurfa að standa undir. Sam­an­burð­ur­inn er áhuga­verður, en rekstr­ar­mód­elið er í raun gjör­ó­líkt.

Uber sniðgengur þröngt regluverk


Svipaða sögu er að segja af leigu­bíla­fyr­ir­tæk­inu Uber. Nýjungin þar felst í að bóka far með aðstoð snjall­síma. Appið sér um að finna næstu Uber bif­reið, mæla vega­lengd, gjald­færa, birta skrán­ingu bíl­stjór­ans, áætla ferða­tíma o.fl. Í London var þjón­ust­unni nýverið hleypt af stokk­unum en við­tökur voru síður góðar hjá hand­höfum leigu­bíla­leyfa. Ökumenn hinna ein­kenn­andi svörtu black cabs í Lundúnum sjá fram á harðn­andi sam­keppni og mót­mæltu með því að stöðva umferð víðs­vegar.

Uber snið­gengur þröngt reglu­verk og eft­ir­lit leigu­bíla með umdeildum króka­leiðum, þ.e. með því að skil­greina sig ekki sem leigu­bíla­þjón­usta heldur ann­ars vegar eðal­vagna­þjón­usta eða bíla­leigu eftir því sem hentar betur hverju sinni.

Hér á landi ganga leigu­bíla­leyfi sölu manna á milli fyrir háar fjár­hæðir þar sem fram­boð á leyfum er langt undir eft­ir­spurn. Með núgild­andi fyr­ir­komu­lagi eru stjórn­völd ann­ars vegar að koma til móts við neyt­endur með eft­ir­liti og hins­vegar gagn­vart bíl­stjórum og leigu­bíla­stöðum eru tekjur tryggðar með tak­mörk­uðu fram­boði. Hvar­vetna sem Uber drepur fæti storkar snjall­þjón­ustan þessu jafn­vægi – eða öllu heldur ójafn­vægi. Í mörgum borgum hefur þjón­ustan verið bönnuð með öllu til að vernda starfs­stétt leigu­bíl­stjóra. Dæmi eru um að bréfa­skriftir til emb­ætt­is­fólks og áróður í fjöl­miðlum hafi undið ofan af slíkum bönnum.


Snjalllausnir greiði götur deilihagkerfisins


Nýsköp­un­ar­sjóðir binda vonir við að snjall­lausnir greiði götur deili­hag­kerf­is­ins á fleiri sviðum. Frum­kvöðlar kepp­ast við að heim­færa hug­mynda­fræð­ina á ýmsa vöru­flokka og þjón­ustu. Skoð­ana­kann­anir benda til þess að enn örli á íhalds­semi í fólki, þ.e. að fæstir vænti þess að drýgja tekjur af því að finna fleirum not á eigum sínum, eða ímyndi sér að nýta slíka þjón­ustu. Ef til vill er það munur kyn­slóða hvort að fólk geti hugsað sér að veita ókunn­ugum aðgang að íbúð­inni sinni yfir helgi eða lána kjól til konu í næstu götu í sömu mitt­is­stærð. Yngri kyn­slóðir þekkja það úr sjón­varps­þátt­unum Friends að á Man­hattan er búseta óraun­hæf fyrir flesta ef hver og einn gerir kröfu um eigin inn­gang, bað og eld­hús. En með því að deila er hægt að auka lífs­gæði með betri nýt­ingu og lifa í sátt og sam­lyndi með félögum sínum og lífs­föru­neyti.

Tækni­legir þættir og fjár­hags­legir hvatar spila þó eflaust stærra hlut­verk í vexti og þeim vonum sem fjár­festar binda við fyr­ir­tækin. Upp­lýs­inga­öldin hefur gert sam­skipti ein­fald­ari og hag­kvæm­ari. Þar sem fyrir var tölvu­póstur og spjall­borð er nú fjöl­breytt flóra af sér­hæfð­ari lausnum knúin af tölvu­ský­inu.

Viðskiptasaga skráð


Eitt af því sem mark­aðs­torgin í deili­hag­kerf­inu eiga sam­eig­in­legt er að við­skipta­saga allra aðila er skráð. Hverskyns ósæmi­lega hegðun má rita í umsögnum með til­heyr­andi refsi­stigum. Slíkt dregur úr mögu­leikum þess sem hlýtur umsögn á að eiga í frek­ari við­skiptum. Ein­stak­lingur með þús­und jákvæðar umsagnir á upp­boðsvefnum eBay vill ekki sverta orð­spor sitt og kepp­ist við að halda þeim prófíl til að auka líkur á því að næsti kaup­andi láti slag standa. [Þetta er svona jákvæð útgáfa af big brother effectinum]
Þegar ófor­skammaður leigj­andi á Airbnb skil­aði íbúð í rúst um mitt árið 2011 bar á nei­kvæðri umfjöllun og dóms­dags­spám. Þjón­ustan brást fljótt við og kynnti strax víð­tækar inn­bús­trygg­ingar fyrir alla að kostn­að­ar­lausu. Svo virð­ist sem eign­ar­spjöll séu svo fá að Airbnb getur tekið fjár­hags­legu óþæg­indin sem þeim fylgja á sig. Þrátt fyrir slíkar trygg­ingar liggur í augum uppi að ætli leigj­andi að hafa greiðan aðgang að mark­aðs­torg­inu aftur er betra að safna sér plúsum en mínusum. Til­raunin sem byrj­aði fyrir sex árum heppn­að­ist.

Nýtum auðlindir jarðar betur


Deili­þjón­ustur eiga margar hverjar undir högg að sækja vegna úrelds reglu­verks og óskýrra laga­setn­ingar. Dæmin um hörð við­brögð leigu­bíl­stjóra við Uber eru mörg og til und­an­tekn­inga að snjall­síma­lausnin ryðji sér til rúms í borgum án nokk­urra mót­mæla eða væfla­gangs í stjórn­sýslu. Í til­felli orlofs­hús­þjón­ust­unnar Airbnb hafa þau mál verið til skoð­unar hjá rík­is­skatt­stjóra hér á landi síðan sum­arið 2013. Fæstir afla sér til­skil­inna gisti­leyfa til að breyta ung­linga­her­bergi í ferða­mannag­ist­ingu tvær til þrjár vikur á ári.
Það er hins­vegar sið­ferð­is­leg skylda okkar að fagna öllum þeim fram­förum sem stuðla að betri nýt­ingu auð­linda jarðar. Með skýrri kröfu til skjótrar en skyn­samrar aðlög­unar reglu­verks­ins má bæta hag okkar allra til lengri tíma. Það þarf ekki að deila um.

Umfjöll­unin birt­ist fyrst í nýj­ustu útgáfu Kjarnans. Lestu hana hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár