137 þúsund ferðamenn eyddu 135 þúsund krónum hver í júní

Heild­ar­velta erlendra greiðslu­korta á Íslandi í júní nam 18,5 millj­örðum króna og jókst um nærri 40 pró­sent frá fyrri mán­uði. Sam­an­borið við júní 2014 nemur aukn­ingin milli ára 31,5 pró­sentum. Þetta sýna nýjar tölur Seðla­banka Íslands um greiðslu­miðlun í síð­asta mán­uði.

Ef töl­urnar eru bornar saman við fjölda ferða­manna í júní­mán­uði, þá jafn­gildir greiðslu­korta­notk­unin því að hver erlendur ferða­maður hafi notað debet- eða kredit­kort fyrir tæp­lega 135 þús­und krónur hér­lendis. Það er meira en í júní í fyrra, þegar hver ferða­maður eyddi að með­al­tali um 127 þús­und krónum með greiðslu­korti á Íslandi. Tölur yfir fjölda ferða­manna mið­ast við brott­farir erlendra ferða­manna í flugs­stöð Leifs Eiríks­sonar í mán­uði hverjum og eru fengnar frá Ferða­mála­stofu.

Línu­ritið hér að neðan sýnir veltu erlendra greiðslu­korta á Íslandi deilt niður á fjölda erlendra ferða­manna í hverjum mán­uði, á tíma­bil­inu frá júní 2014 til júní 2015. Greiðslu­korta­notk­unin er minnst í sept­em­ber, októ­ber og nóv­em­ber 2014 en eykst frá febr­úar síð­ast­liðnum. Það sem af er ári var hún greiðslu­korta­notk­unin mest í maí, nærri 145 þús­und krónur hjá hverjum ferða­manni sem kom í þeim mán­uði til lands­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár